Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 22. ágúst 2009 27
... Sigurður er úr Njarðvíkum.
... Heiða ólst upp í Hafnarfirði.
... Sigurður gerði sína fyrstu plötu með hljómsveitinni Fálk-
um úr Keflavík árið 2001.
... síðan hefur hann komið að gerð fjölda platna.
... Heiða stofnaði fatafyrirtækið Nikita ásamt Rúnari
sambýlismanni sínum árið 2000.
... í dag selur Nikita föt sín í yfir þrjátíu löndum um allan
heim.
... heimildarmynd um ævintýraför Hjálma til Jamaíka var frumsýnd í Austurbæ í gærkvöldi.
... Að Nikita heldur garðpartí og forsýningu á nýrri verslun sinni á Laugavegi 43 í kvöld, sem opnar formlega í sept-
ember.
... þrátt fyrir að vera gríðarlega hávaxinn hefur Sigurður aldrei spilað körfubolta.
... Heiða stundar ekki bara snjóbretti og hjólabretti, hún hjólar líka í mótokross.
➜ VISSIR ÞÚ AÐ...
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
70
41
0
8/
09
SAMAN FINNUM VIÐ
RÉTTU LEIÐINA
Úrræði vegna greiðsluerfiðleika
Kaupþing býður viðskiptavinum sínum ráðgjöf og ýmis
úrræði sem létt geta fjárhagsstöðu heimila í greiðsluvanda.
Meðal úrræða sem bankinn býður til að stuðla að lausn
á greiðsluvanda eru:
• Ráðgjöf • Greiðslujöfnun
• Breyting á lánaskilmálum • Tímabundin frestun afborgana
• Lenging lánstíma • Skuldaaðlögun
Fáðu ítarlegri upplýsingar um úrræði vegna greiðsluerfiðleika
á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444 7000 eða komdu
við í næsta útibúi Kaupþings.
að selja alheiminum eitthvað sem
er takmarkað af tungumálinu. En
engu að síður ætluðum við alltaf
að verða heimsfrægir á Íslandi.“
Rassskelling ofalda gríssins
Hefur kreppan haft einhver óvænt
áhrif á ykkar störf? Er eitthvað
jákvætt í stöðunni?
Heiða: „Kreppan á Íslandi hefur
ekki bein áhrif á okkur sem fyrir-
tæki. Nær öll okkar starfsemi er
í útlöndum, í dollurum og evrum.
Höfuðstöðvarnar okkar eru bara
hér og við borgum laun í íslensk-
um krónum. Það er allt og sumt.“
Sigurður: „Í fyrsta lagi er þetta
náttúrlega engin kreppa, miðað
við hvernig þetta var hérna
fyrir seinna stríð. Þá var ekki til
matur. Það er nóg til af mat og við
eigum enn þá hreint vatn. Þetta er
ekki svo slæmt. Ókei, við getum
kannski ekki alveg verið að blæða
í flatskjá í hvert einasta herbergi,
enda er það fokking fásinna að
ímynda sér að lífið eigi að vera
þannig.“
Heiða: „Ég á ekki einu sinni einn
flatskjá!“
Sigurður: „Áhrifin á þjóðina sem
slíka eru eiginlega bara rass-
skelling fyrir ofalinn grísinn.
Hættu nú að éta svona mikinn
humar, farðu út í sólina og gerðu
eitthvað af viti.“
Heiða: „Já, þetta hafði að mörgu
leyti góð áhrif á fólk og var ákveð-
ið spark í rassinn. Fólk virðist
staldra við og hugsa aðeins meira
um hlutina.“
Sigurður: „Kreatívitetið er orðið
miklu meira. Sem er náttúrlega
ekkert nema gott. Gluggapóstur-
inn heldur alltaf áfram að koma.
Skatturinn er alltaf á eftir þér. Það
breytist ekkert. En ég græt ekki
yfir glötuðum tækifærum því það
er fyrst núna sem tækifærin eru
að myndast. Við snúum okkur bara
út úr þessu. Það eina sem er auð-
vitað hræðilegt við þetta ástand
er þetta margsannaða grandvara-
leysi feitu grísanna sem hafa kom-
ist í valdastöður.“
Heiða og Hjálmarnir
Hvernig haldið þið að ykkur
myndi vegna ef þið mynduð skipta
um starf? Hvernig tónlist mynd-
ir þú semja, Heiða, og hvernig
föt myndir þú hanna, Sigurður?
Hvern mynduð þið fá ykkur til
liðsinnis?
Heiða: „Í fyrsta lagi þá yrði þetta
algjört disaster, alla vega hjá mér.
Ég hef aldrei lært á hljóðfæri og
ég kann ekki að syngja. En ég
gæti samt vel hugsað mér að vera
í hljómsveit. Tónlistin mín yrði
frekar melló. Kannski myndi ég
bara gera reggí. Bob Dylan myndi
líka hafa mikil áhrif á mig, ég
hlusta svo mikið á hann.“
Sigurður: „Myndirðu ekki bara fá
mig með þér?“
Heiða: „Jú, ég myndi alveg pott-
þétt fá þig. Við yrðum líka svo flott
á sviði saman. Já, ætli ég myndi
ekki bara fá ykkur alla strákana
í Hjálmum. Ég gæti auðveldlega
dottið inn í ykkar fíling.“
Sigurður: „Ég held ég gæti varla
unnið sem fatahönnuður. Ég hef
svo ofboðslega takmarkaða sýn
á hvernig mér finnst að aðrir eigi
að klæða sig. Ég hef verulegan
athyglisbrest á því sviðinu. En ég
myndi pottþétt fá Kidda (Guðmund
Kristin Jónsson) með mér í fata-
hönnunarbransann. Hann er A-
maður, vaknar á morgnana, svar-
ar tölvupósti og svona. Ég vakna
hins vegar iðulega um hádegi en á
það líka til að vinna fram á nótt.“
Heiða: „Svo þú ert ekki alveg þessi
níu til fimm týpa? Það er ég ekki
heldur. Svo nær maður heldur ekki
alltaf að vera skapandi ef maður
ætlar að vera mjög skipulagður,
þótt það sé auðvitað nauðsynlegt
að vera hvort tveggja þegar maður
rekur fyrirtæki. Þess vegna skipt-
ir gott samstarfsfólk öllu máli.“
Sigurður: „Það skiptir öllu máli.
Við Kiddi erum góðir að vinna
saman og líka góðir vinir. Þannig
að við getum líka spjallað um
vesen með konurnar og svoleið-
is dótarí. Eins og allir verðum
við líka sárir út í hvor annan og
svona. En þetta er svona langvar-
andi samband sem hefur verið
mjög pródúktívt og skemmtilegt.
Það er mjög mikils virði í þessu að
hafa einhvern til að bakka mann
upp. Því stundum er maður alveg
í ruglinu, svona þannig.“
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...