Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 46
22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR6
Langar þig til að vinna á lífl egum
og fjölbreyttum vinnustað?
Íþróttafélagið HK leitar að sjálfstæðum og
ábyrgðafullum karlmanni, ekki yngri en
20.ára, í fullt starf sem baðvörður.
Starfi ð felst m.a í baðvörslu, þrifum og hús-
vörslu. Umsækjendur þurfa að hafa gaman
af börnum og mannlegum samskiptum.
Áhugasamir sendið umsókn á hk@hk.is eða
HK, Digranes - íþróttahús, 200 Kópavogi.
- Lifið heil
www.lyfja.is
Lyfja hf. leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi
til að veita forstöðu lyfjaútibúi í flokki 1 á Höfn í Hornafirði .
Starfs- og ábyrgðarsvið
Í starfinu felst m.a. að bera faglega ábyrgð á rekstri lyfjabúðarinnar, annast
daglegan rekstur og umsýslu og sjá til þess að unnið sé samkvæmt lögum
og reglugerðum um lyfsöluleyfi.
Um er að ræða spennandi starf og tækifæri fyrir metnaðarfullan
lyfjafræðing. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1. des-
ember 2009. Í boði er krefjandi og áhugavert starf á skemmtilegum
vinnustað í vaxandi bæjarfélagi, flutningsstyrkur og húsnæði á hagstæðum
kjörum.
Hæfniskröfur
Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
Stjórnunarhæfileikar, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Í sveitarfélaginu Hornafirði búa um 2.500 manns. Þar er öflugt félags-
og menningarlíf og aðstæður til uppeldis barna hinar ákjósanlegustu.
Í sveitarfélaginu eru framhaldsskóli, grunnskóli, tveir leikskólar,
tónlistarskóli og öflug heilbrigðisþjónusta auk allrar almennrar þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Hallur Guðjónsson, starfsmannasviði:
sími 530 3800, hallur@lyfja.is
Umsóknarfrestur er til 20. september 2009 og farið verður með allar
umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf. eru karlar jafnt sem konur hvattir
til þess að sækja um stöðu hjá fyrirtækinu.
Hlutverk Lyfju er að stuðla að góðri heilsu og vellíðan. Frá upphafi hefur Lyfja verið brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs og boðið upp á
ýmsar nýjungar í faglegri þjónustu. Fyrirtækið rekur apótek og heilsubúðir víðs vegar um landið ásamt því að starfrækja lyfjaskömmtun
til einstaklinga og stofnana. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns. Lykillinn að árangri er starfsfólkið okkar og því höfum við það að
markmiði að fá hæft fólk til liðs við okkur, skapa eftirsóknarverða vinnustaði þar sem góður starfsandi ríkir og að starfsfólk fái tækifæri
til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í starfi. Einkunnarorð okkar eru áreiðanleiki, umhyggja og metnaður.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
4
68
33
0
8.
20
09
Við leitum að sjálfstæðu, skipulögðu og metnaðar-
fullu starfsfólki sem hefur áhuga á að ganga til liðs
við framsækið og spennandi fyrirtæki.
Lyfjafræðingur – Lyfja, Höfn í Hornafirði
Austur Indíafélagið auglýsir
Vegna mikilla anna vantar okkur að ráða framreiðslumenn
og aðstoðarfók í sal.
Við leitum að metnaðarfullu og kraftmiklu fólki með
framúrskarandi þjónustulund.
Áhugasamir sendi nauðsynlegar upplýsingar á
austurindia@austurindia.is
We are hiring for waitstaff and kitchen help. If you are
ambitious, energetic and service oriented please do apply.
Send all relevant info to austurindia@austurindia.is