Fréttablaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 32
32 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Þ
að kann að koma
furðulega fyrir sjónir
að kvennalandsliðið í
knattspyrnu nái þeim
frábæra árangri að
komast í lokakeppni
stórmóts fyrst eftir að Ásthildur
Helgadóttir ákvað að ljúka sínum
knattspyrnuferli. Hún er enn á
besta aldri knattspyrnumanns en
þrálát meiðsli gerðu það að verk-
um að hún ákvað að hætta. Hún
sér ekki eftir þeirri ákvörðun í dag
og samgleðst fyrrum liðsfélögum
sínum í landsliðinu.
„Ég sá fyrir mér þegar ég hætti
að við myndum komast á stórmót
innan fárra ára. Það var engin
spurning í mínum huga,“ sagði
Ásthildur. „En ég gerði þetta upp
við mig á sínum tíma. Vissulega
er söknuðurinn til staðar því þetta
var líf mitt í svo langan tíma. En í
dag er ég svo ánægð með fjölskyld-
una mína og litla drenginn minn.
Ég er ekki viss um að ég ætti þessa
fjölskyldu í dag ef ég væri enn á
fullu í boltanum.“
Ásthildi þarf vart að kynna. Hún
er án nokkurs vafa besta knatt-
spyrnukona sem Ísland hefur alið
af sér og á frábæran feril að baki
með landsliðinu sem og félagslið-
um bæði á Íslandi og í Svíþjóð.
Hún hætti árið 2007 og í lok maí-
mánaðar síðastliðins eignaðist hún
son, Hannes.
Þó hún sé ekki lengur að spila
finnur hún mikið fyrir áhuga á
EM í Finnlandi sem hefst á morg-
un. Fyrsti leikur Íslands er gegn
Frakklandi á mánudag.
„Það hefur ótrúlega mikið gerst
í kvennaboltanum og þá sérstak-
lega í kringum landsliðið. Lands-
menn hafa verið að sýna þessu
mikinn áhuga og ég held að allir
muni fylgjast mjög vel með mót-
inu.“
Krafa um að vinna alla leiki
Hún hefur fylgst vel með enda
systir hennar, Þóra Björg mark-
vörður, enn á fullu með landsliðinu
sem og æskuvinkona hennar, Katr-
ín Jónsdóttir, sem í dag er fyrir-
liði liðsins. Ásthildur segir að ein
helsta breytingin sem hún merki á
liðinu sé sú krafa sem gerð er um
að liðið nái árangri.
„Það er krafa um að liðið vinni
alla sína leiki og nær sú þróun
lengra aftur í tímann en frá því
þegar ég hætti. Þetta má rekja um
það bil tíu ár aftur í tímann. Mun-
urinn á liðinu nú og þá er að nú er
mun meiri stöðugleiki í frammi-
stöðu liðsins sem og miklu meiri
breidd í leikmannahópnum. Það
eru leikmenn sem eru yfirleitt á
varamannabekknum nú sem marg-
ir telja að eigi heima í byrjunar-
liðinu.“
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
landsliðsþjálfari hefur að mestu
leyti stólað á sömu ellefu leikmenn
í undirbúningnum fyrir mótið.
Það sé því nokkuð ljóst hvernig
byrjunarliðið verði skipað í fyrsta
leik.
„Ég skil vel að hann skuli gera
það því það er ákveðinn kjarni í
liðinu sem verður að byggja á og
þá sérstaklega í vörninni. Katrín
og Guðrún Sóley [Gunnarsdóttir]
eru alltaf í vörninni og lykilmenn í
liðinu. Það skiptir líka máli að leik-
menn finni fyrir trausti.“
Samheldni og barátta
Hún segir styrkleika liðsins aðal-
lega felast í þeirri samheldni og
þeim baráttuanda sem ríkir í lið-
inu. „Við höfum farið langt á þeim
atriðum og gerum það eflaust
áfram. Svo tel ég það einnig styrk
fyrir liðið að við erum með einn
sterkasta markvörð í heimi. Þóra
hefur sýnt oft áður að hún getur
gert gæfumuninn og lokað mark-
inu eins og þegar við unnum Kína
[4-1 í Portúgal], Frakkland [1-
0 á Laugardalsvelli] og gerðum
markalaust jafntefli við Banda-
ríkin. Svo er Margrét Lára gríð-
arlega mikilvæg liðinu og hún er
með sterka leikmenn sér við hlið.
Liðið er einnig sterkt í loftinu og er
það mikilvægt.“
Frakkaleikurinn mikilvægastur
Hún efast ekki um að liðið geti náð
árangri á mótinu. „Það er mik-
ilvægt að einbeita sér að fyrsta
leiknum því að ef við náum góðum
úrslitum gegn Frökkum gefur
það okkur aukinn styrk fyrir leik-
inn gegn Noregi. Það væri gott að
þurfa ekki að stóla á hagstæð úrslit
úr lokaleiknum í riðlinum, gegn
geysisterkum Þjóðverjum. En ég
hef fulla trú á að þeim takist að
komast áfram í 8 liða úrslit.“
Ásthildur kemst þó ekki til Finn-
lands þar sem hún er að flytja til
Svíþjóðar nú á næstu dögum en
mun fylgjast vel með. Hún er þó
með eitt heilræði til viðbótar fyrir
stelpurnar. „Það eru fáir veikleik-
ar í liðinu ef allt gengur upp. En
leikmenn verða þá að fara vel með
sig og passa að þær standist álag-
ið sem fylgir því að spila á svona
móti. Þær munu þó án nokkurs vafa
fara inn í mótið af fullum krafti
alveg eins og þær eiga að gera.“
Hef mikla trú á liðinu
Á mánudaginn hefur íslenska landsliðið í knattspyrnu leik á EM í Finnlandi. Ásthildur Helgadóttir
þekkir einna best til liðsins og ræddi Eiríkur Stefán Ásgeirsson við hana um möguleika liðsins ytra.
Leikmenn landsliðsins
MÓTHERJAR ÍSLANDS Í B-RIÐLI
■ Á miðjunni
Edda Garðarsdóttir er allt í öllu í
miðjuspili íslenska liðsins. Hún tekur
nánast allar horn- og aukaspyrnur
auk þess sem hún sinnir afar mik-
ilvægu varnarhlutverki á
miðjunni. Edda er eins
og svo margir aðrir í
landsliðinu fæddur
sigurvegari og
hefur sex
sinnum orðið
Íslandsmeistari
og fimm sinnum bik-
armeistari. Hún leikur
með Örebro í Svíþjóð.
■ Í vörninni
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir hefur
ásamt Katrínu Jónsdóttur alltaf verið
í byrjunarliði íslenska landsliðsins
síðan Sigurður Ragnar Eyjólfsson
tók við því. Þær skipa því
mikilvægan kjarna liðsins.
Guðrún Sóley hefur alls
fimm sinnum fagn-
að Íslandsmeist-
aratitlinum
og þrívegis
orðið bikar-
meistari. Hún
leikur nú með Djur-
gården í Svíþjóð.
■ Leiðtoginn
Katrín Jónsdóttir er fyrirliði liðsins og
leiðtogi þess jafnt innan vallar sem
utan. Hún starfar sem læknir á daginn
en hefur verið í knatt-
spyrnunni alla sína ævi.
Átta sinnum hefur hún
orðið Íslandsmeistari
og fjórum sinnum
bikarmeistari. Hún
lék með norska
liðinu Kolbotn
samhliða námi sínu í
læknisfræði þar í landi
og varð einu sinni norsk-
ur meistari með félaginu.
■ Í sókninni
Margrét Lára Viðarsdóttir er líklega
þekktasti leikmaður liðsins enda
mikið verið í sviðsljós-
inu. Hún er ekki nema
23 ára gömul en
hefur samt áorkað
að skora 48 mörk í
53 landsleikjum sem
er vitanlega einstæður
árangur. Hún varð þrí-
vegis Íslandsmeistari hér
á landi og tvisvar bikar-
meistari en hún leikur
nú með Kristianstad í
Svíþjóð.
■ Í markinu
Þóra Björg Helgadóttir verður líklega
aðalmarkvörður íslenska liðsins í
Finnlandi. Hún er með reyndari leik-
mönnum liðsins og af
mörgum talin með betri
markvörðum heimsins í
dag. Hún leikur með
Kolbotn í Noregi
en hefur einnig
leikið í Svíþjóð og
Belgíu. Hún hefur
þó alls átta sinnum
orðið Íslandsmeistari
og sex sinnum bikar-
meistari.
➜ LYKILMENN ÍSLENSKA LIÐSINS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
Þóra Björg Helgadóttir
Félag: Kolbotn, Noregi
Landsleikir: 63
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
Félag: Djurgården, Svíþjóð
Landsleikir/mörk: 61/1
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir
Félag: Örebro, Svíþjóð
Landsleikir/mörk: 30/1
Edda Garðarsdóttir
Félag: Örebro, Svíþjóð
Landsleikir/mörk: 71/2
Ásta Árnadóttir
Félag: Tyresö, Svíþjóð
Landsleikir: 34
Hólmfríður Magnúsdóttir
Félag: Kristianstad, Svíþjóð
Landsleikir/mörk: 43/10
Dóra Stefánsdóttir
Félag: Malmö, Svíþjóð
Landsleikir/mörk: 43/3
Katrín Jónsdóttir
Félag: Valur
Landsleikir/mörk: 85/13
Margrét Lára Viðarsdóttir
Félag: Kristianstad, Svíþjóð
Landsleikir/mörk: 53/48
Dóra María Lárusdóttir
Félag: Valur
Landsleikir/mörk: 47/9
Sara Björk Gunnarsdóttir
Félag: Breiðablik
Landsleikir/mörk: 18/5
Guðný Björk Óðinsdóttir
Félag: Kristianstad, Svíþjóð
Landsleikir: 14
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Félag: Djurgården, Svíþjóð
Landsleikir: 12
Erna Björk Sigurðardóttir
Félag: Breiðablik
Landsleikir: 27
Katrín Ómarsdóttir
Félag: KR
Landsleikir/mörk: 23/3
Rakel Logadóttir
Félag: Valur
Landsleikir/mörk: 15/1
Erla Steina Arnardóttir
Félag: Kristianstad, Svíþjóð
Landsleikir/mörk: 37/2
Rakel Hönnudóttir
Félag: Þór/KA
Landsleikir/mörk: 15/1
Sif Atladóttir
Félag: Valur
Landsleikir: 12
Fanndís Friðriksdóttir
Félag: Breiðablik
Landsleikir: 3
Kristín Ýr Bjarnadóttir
Félag: Valur
Landsleikir: 0
Sandra Sigurðardóttir
Félag: Stjarnan
Landsleikir: 5
16
17
18
19
20
21
22
Mánudagur 24. ágúst,
17.00 Frakkland
Íslenska liðið þekkir það
franska vel. Liðin voru í
sama riðli í undankeppni
EM og eru reyndar einnig
saman í riðli í undan-
keppni HM sem fer fram
í Þýskalandi árið 2011.
Ísland vann Frakka á
Laugardalsvelli haustið
2007, 1-0, og veit því vel
hvað þarf til að bera sigur
úr býtum. Frakkar ætla sér
þó stóra hluti.
Fimmtudagur 27. ágúst,
17.00 Noregur
Norðmenn hafa náð frá-
bærum árangri á þessum
vettvangi og hafa orðið
heimsmeistarar (1995),
Evrópumeistarar (1987 og
1993) og Ólympíumeist-
arar (2000). Norðmenn
hafa þar að auki alltaf
komist langt í stórmótum.
Ísland vann hins vegar
sigur á Noregi í fyrsta sinn
í vetur. Norska liðið hefur
verið að ganga í gegnum
breytingar og því talið
veikara en oft áður.
Sunnudagur 30. ágúst,
13.00 Þýskaland
Þjóðverjar hafa borið
höfuð og herðar yfir
aðrar þjóðir undanfar-
in ár. Þeir hafa fagnað
sigri í síðustu tveimur
heimsmeistarakeppnum
og geta nú unnið sinn
fimmta Evrópumeistaratitil
í röð og þann áttunda
á 20 árum. Þýskaland
hefur alls spilað 27 leiki í
lokakeppni EM og aðeins
tapað einum þeirra - á
Ítalíu árið 1993. Það er því
ekki að ástæðulausu að
Þjóðverjar eru taldir sigur-
stranglegastir í Finnlandi.
LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ
Þóra Björg
Katrín
Ólína Guðbjörg
Guðrún Sóley
Erna Björk
Edda Dóra St.
Sara Björk
Hólmfríður
Margrét Lára
Dóra María
Á EFTIR BOLTA KEMUR BARN Ásthildur með son sinn, Hannes Hjartarson, sem fædd-
ist í lok maí. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON