Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.12.1922, Blaðsíða 35
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 145
og K. Sk. par af var einn fulltrúinn nýr, Bergsteinn
Kolbeinsson í Kaupangi.
Pöntunarfélag F1 j ótsdalshéraðs hafði þá sent úrsögn
sína af því að það var þá að hætta störfum. þrjár nýjar
deildir voru teknar inn í Sambandið á þessum fundi,
Verslunarfélag Steingrímsfjarðar, Verslunarfélag Hrút-
firðinga og Sláturfélag Vestur-Húnvetninga. Fulltrúar
þessara nýju félaga voru Guðjón Guðlaugsson á Hólma-
vík, Jósef Jónsson á Melum, og séra Hálfdán Guðjónsson
á Breiðabólsstað. Fjöldi gesta sat á fundinum frá ýms-
um samvinnufélögum víðsvegar um land, og nokkrir al-
þingismenn. Á fundinum voru bornar fram tillögur um
nokkrar lagabreytingar, þar á meðal að nafni félags-
ins væri breytt. Skyldi bera tillögurnar undir sambands-
deildirnar, og síðan láta þær koma til fullnaðarúrslita á
næsta aðalfundi.
Langveigamesta málið, sem lá fyrir fundinum, var
kjötsölumálið. Skýrði framkvæmdarstjóri Steingr. Jóns-
son frá störfum félagsins í því máli, lagði fram skýrsl-
ui' og reikninga og ýms bréf frá umboðsmanni þess í
Ivaupmannahöfn, Birni Sigurðssyni. Var kosin 5 manna
nefnd í málið. Sat í henni einn fulltrúi frá Sláturfélagi
Suðurlands, Björn Bjarnarson í Grafarholti. Kom nefnd-
in með langt og ítarlegt nefndarálit, sem samþykt var
á fundinum, um sláturhús og slátrun, úrgangskjöt,
flokkun, merkingu og sölu á saltkjöti. í nefndarálitinu
er tekið svo til orða:
„Nefndin telur nauðsynlegt að öll kjötverslun sam-
bandsdeildanna komist á eina hönd og gangi. í gegnum
umboðsmann þann, er framkvæmdastjóri semur við.
Einnig teljum vér nauðsynlegt að fullkomin samvinna
takist milli Sambandsfélagsins og Sláturfélag Suður-
lands um kj ötverslunina. Sé það markmið þessara fé-
laga að vinna saman að því, að þau hafi með hönd-
um sölu á öllu íslensku kjöti erlendis".
Var svo framkvæmdastjóra falið að leita slíkra
10