Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.12.1922, Blaðsíða 28
138 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
frá upphafi. En þegar af þessu sést hvernig lestrinum
hefir verið varið, verða dómar hans um Sambandið
og allar sögulegar frásagnir hans mikið skiljanlegri.
Hann hefir alls ekki getað lesið áfram eins og aðrir
menn.
B. Kr. skýrir frá stofnun Sambandsins á sína vísu,
en hún er á þá leið, að myndast hafi félagsskapur fárra
manna í Reykjavík, sem hugðu sér að aðstoða kaup-
félögin og koma þeim undir eina sambandsstjórn. Eigi
var kunnugt, að þeir hafi haft neina verslunarreynslu
að baki sér, en þó höfðu þeir örugga trú á að þeir
væra réttu mennirnir til að koma kaupfélagsskapnum
að liði. Takmarkinu hugsuðu þeir sér að ná með því
að stofna blaðið „Tímann“, að tryggja fyrirtækinu sem
best lán í Landsbankanum, að stofna Samband ísl. sam-
vinnufélaga og að stofna hinn svonefnda samvinnu-
skóla. Svo lýsir B. Kr., hve greiðlega þetta hafi alt
gengið. Fyrst hafi „Tíminn“ verið stofnaður, svo hafi
undirtök náðst í Landsbankanum 1917—1918, og þá
hafi vandaminsta verkið verið eftir, að stofna Sam-
bandið, sem stofnsett er þá að hans dómi 1919. því
næst skýrir hann ítarlega frá inntökuskilyrðum fyrir
kaupfélög í Samb., samábyrgðinni og hættunni af skuld-
unum, og að löglega geti enginn félagsmaður sagt sig úr
Sambandinu eða kaupfélögunum. Með þessu móti tókst
þegar að gera Sambandið að stói’verslun á stuttum
tíma með aðstoð Landsbankans. Og B. Kr. heldur áfram:
„þannig var þetta litla félag í Reykjavík búið að koma
miklum hluta landbúnaðarviðskiftanna undir einn hatt,
sem gerði því mögulegt að stjórna forlögum kaupfélag-
anna og fólkinu í landinu á þann hátt, er því þótti
best fara“. Að lokum segir svo höf.: „Mér hefir fund-
ist, að ekki yrði komist hjá, er skýrt er verslunarólag-
ið í landinu, að greina frá tildrögum þessum — sem
mér eru svo persónulega kunn. — Geri eg það til þess
að varpa dálitlu ljósi yfir tildrögin til stofnunar þessa