Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.12.1922, Blaðsíða 21
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 131
vegna þess, að ekki hafi verið hægt að halda fund í
tæka tíð. Ólestur í rekstri félaga hefir ætíð haft lengri
aðdraganda, svo að erfiðleikar við fundahöld eru alls
ekki því til fyrirstöðu, að slíkur félagsskapur geti þrif-
ist hér á landi.
8. Að önnur lönd „eiga gnægð af hæfustu mönn-
um til að standa fyrir slíkum félagsskap" ætti ekki að
fæla menn hér frá samskonar félagsskap. pvert á móti
sýnir það, hvers virði félagsskapurinn er talinn að vera
þar. Reynslan virðist líka sýna, að menn hafi yfirleitt
átt völ á kaupfélagsstjórum, sem hafa staðið kaupmönn-
um fyllilega á sporði, og það er sorglegur sannleikur,
að engir kaupfélagsstjórar hafa reynst ver heldur en
sumir þeir, er áður hafa verið kaupmenn. Ef félagsskap-
urinn er góður; má mannfæðin ekki heldur standa hon-
um fyrir þrifum, heldur verður að ala menn upp til
starfsins. —
9. Um endurskoðunina er það að segja, að hversu
nauðsynleg sem hún er, hefir ónóg endurskoðun víst
aldrei orðið félögunum til falls. Meinsemdin hefir altaf
verið hin sama — lánsverslun — og hún hefir ekki fal-
ið sig í skugganum. En um endurskoðunina verður síðar
rætt, og einnig ráð höf. gegn lánsverslun.
10. Síðasta athugas. höf. er um samábyrgðina. þyk-
ist hann hafa gert þá miklu uppgötvun, að hvorki „bók-
lesarinn“ né nokkur annar hafi skýrt þjóðinni frá, að
ensku kaupfélögin noti enga samábyrgð. Hitt dettur hon-
um ekki í hug að álíta, að einmitt þeir staðhættir, sem
nann í fyrri liðum þessara athugasemda er búinn að
segja að séu öðruvísi í enskum verksmiðjuhéruðum en
hér, geti verið orsök þess, að hægt er að komast af
með takmarkaða ábyrgð þar, þó að hún geti ekki
nægt hér.
Að ensku félögin geta komist af með takmarkaða
ábyrgð, orsakast fyrst og fremst af þéttbýli, er gerir
mjög mörgum fært að nota sömu kaupfélagsstofnunina.
9*