Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.12.1922, Blaðsíða 41
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 151
veitingu og leggur til, að lögum félaganna verði þann-
ig fyrir komið, að ábyrgð þeirra verði tekin gild. Verð-
ur nú að víkja að meðferð aðalfundar á málinu.
Á aðalfundi, sem haldinn var á Akureyri 27. júní,
voru mættir fulltrúar frá 6 félögum. Voi’u það flest
gamalreyndir samvinnumenn, en tveir voru nýir, Albert
Kristjánsson á Páfastöðum og Benedikt Guðjónsson á
Moldhaugum. Fimm manna nefnd var kosin á fundin-
um til þess ásamt framkvæmdastjóra að athuga fram-
tíðarstarfsemi Sambandsins, með sérstöku tilliti til er-
indrekans. I nefndinni áttu sæti: Sigurður Jónsson á
Arnarvatni, Stefán Stefánsson á Vargá, Albert Krist-
jánsson á Páfastöðum, Jón Hannesson á Undirfelli og
Jón Jónsson á Héðinshöfða. Nefndin bar tillögur sínar
fyrir fundinn í 5 liðum svohljóðandi:
a. „Fundurinn leggur eindregið til, að sambands-
stjórnin vinni að því að fá mann þann, sem nú er
ráðinn erindreki — og sem nefndin telur mjög
heppilega valinn — til að gegna starfinu áfram, ef
þess er nokkur kostur“. Samþ. í einu hljóði.
b. „Fundurinn lítur svo á, að æskilegast sé fyrir sam-
vinnuféjög landsins að hafa erindreka eingöngu í
sinni þjónustu til þess að annast sölu og innkaup
á helstu vörutegundum félaganna. En að þessu
sinni ræður fundurinn stjórn Sambandsins til að
leita til þingsins með fjárstyrk til að kosta erind-
rekann á sama rátt og á núgildandi fjárlögum. Fel-
ur fundurinn framkvæmdastjóra að flytja það mál
á þingi, ef framkvæmdastjóri telur það heppilegt,
þegar hann hefir kynt sér skoðun erindrekans á
málinu“. Till. samþykt.
c. „Fundurinn telur nauðsynlegt að S. I. S. komist í
þannig löguð bankasambönd, að það geti fengið að
láni þá peninga, sem það þarf að nota til að kaupa
inn erlendar vörur, og felst á tillögu erindrekans
í bréfi dags. 4. júní þ. á. til framkvæmdastjóra S. I.