Andvari - 01.01.1991, Qupperneq 9
andvari
FRÁ RITSTJÓRA
7
Af ljóðaútgáfu í fyrra er markverð þýðing Sverris Hólmarssonar á
Eyðilandi Eliots. Frumsamdar ljóðabækur voru helstar eftir Kristján Árna-
son, Kristján Karlsson og Sigurð Pálsson. Nýjar útgáfur komu á verkum
tveggja nýrómantískra skálda, Huldu og Jónasar Guðlaugssonar ; um þær er
fjallað á öðrum stað í þessu riti.
Athyglin beindist mest að skáldsögum Fríðu Á. Sigurðardóttur, Gyrðis
Elíassonar, Péturs Gunnarssonar og Steinunnar Sigurðardóttur, - íslensku
bókmenntaverðlaunin féllu í hlut Fríðu, maklega. - Útgáfa barna- og ung-
lingabóka er í svipuðum farvegi og áður. Það er þó eftirtakanlegt að dregið
hefur mjög úr útgáfu á vönduðum þýddum unglingabókum. Forlög sem áður
sinntu slíkri útgáfu myndarlega, eins og Iðunn, halda nú að sér höndum.
Þarna sýnist mér einn veikasti hlekkur útgáfunnar. Vanræksla á þessu sviði
mun draga alvarlegan dilk á eftir sér og koma útgefendum sjálfum illilega í
koll. Þeir sem ekki venjast á lestur góðra bókmennta í bernsku og æsku
munu ekki halda uppi bókmenntaútgáfu í landinu á fullorðinsaldri.
Af ævisögum og endurminningum telst vafalaust til mestra tíðinda að nú
var lokið útgáfu á hinni stóru sögu Tryggva Gunnarssonar sem Þorkell Jó-
hannesson hóf á sínum tíma og Bergsteinn Jónsson tók við og leiddi til lykta.
Fyrir utan hreina markaðsútgáfu, fljótunnar ævisögur fjölmiðlaljósa á miðj-
um aldri, er helst að telja bækur um stjórnmálaforingja, en slíkum verkum
fjölgar nú mjög og virðist sem ein bókin af því tagi kalli á aðra. Að þessu
sinni voru gefnar út sögur Hermanns Jónassonar og Hannibals Valdimars-
sonar, fyrra bindi hvors verks um sig, en ólíkar bækur að gerð. Að ekki sé
gleymt ævisögu fyrrverandi þingmanns, Björns á Löngumýri, sem varð ein
söluhæsta bókin, ásamt ævisögu Bubba Morthens, hvortveggja skráð eftir
frásögn söguhetjunnar eins og fjölmargar og misjafnar ævisögur í seinni tíð.
~ Sérstöðu meðal ævisagna hefur svo rit Gils Guðmundssonar um Einar
Benediktsson skáld, samandregnar prentaðar heimildir um Einar og ævi
hans. Slíkt verk er góðra gjalda vert þótt nýrri túlkun sé ekki til að dreifa. En
rækileg könnun á skáldskap Einars bíður enn og hafa bókmenntafræðingar
vorir verið furðu tómlátir um hana.
Mörkin á milli ævisagna, þjóðlegs fróðleiks og fræðirita eru stundum
óglögg. Byggðarsaga verður gjarnan meiri og minni persónusaga, svo sem í
Mjófirðingasögum Vilhjálms Hjálmarssonar sem Menningarsjóður gaf út
þriðja bindi af. Nú er á dögum einn höfundur sem leggur markvissa rækt við
að semja heimildaþætti, Hannes Pétursson, og kom allstórt safn slíkra þátta
Fá hans hendi á árinu. Annað góðskáld, Þorsteinn frá Hamri, er einnig tek-
lr*n að sinna þessari grein og kom gott lítið verk af því tagi frá honum. - Af
fræðiritum eru þau tíðindi að út kom nýtt bindi, hið fimmta, af ritverkinu
^aga íslands sem virtist um skeið vera að lognast út af, og nýtt bindi íslenskr-
ar Þjóðmenningar sem Hafsteinn Guðmundsson stóð fyrir að koma af stað af