Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1991, Page 121

Andvari - 01.01.1991, Page 121
ANDVARI „SÖNGUR ER I SÁLU MINNU 119 leggja rækt við og áVaxta, þrátt fyrir erfið skilyrði. Hann var heill í því sem og öllum lífsháttum sínum, er mótuðust við óvenjulega hörð kjör í uppvexti hans á Sandi í Aðaldal á ofanverðri síðustu öld. Er ekkert of sagt í því um börn Friðjóns gamla á Sandi, sem Arnór sonur Sigurjóns skrifaði í Æviágrip föður síns 1967: „Börnin, er hann (Friðjón) ól upp síðustu áratugi aldarinnar, báru þess öll einhver merki, að þau væru börn hallærisins. Fað kom ekki allt fram í takmörkunum þeirra heldur einnig kostum, kröfum þeirra til sjálfs sín að duga, nægjusemi, sparneytni, aðgæzlu um fjármuni og nærri einstrengingsleg- um heiðarleika í fjármunalegum viðskiptum“. Þetta er nokkuð harðfærnisleg lýsing en áreiðanleg, ekki síst um Sigurjón, sem var elstur barnanna, og víst er að kröfuharka hans við sjálfan sig gerði hann alvörugefnari en æskilegt gat talist um svo gáfaðan mann og andlega frjóan. Kann það að hafa staðið list hans á vissan hátt fyrir þrifum, þrengdi svigrúm sköpunarviljans. En þrátt fyrir kvaðir hins daglega amsturs varð Sig- urjón að yrkja. Það var raunar hin mikla þversögn í lífi hans, að frá því hann var ungur maður heima á Sandi var honum ekkert eins hugleikið og ritstörf og skáldskapur. En það varð honum þó einungis tómstundaiðja, sem hann hafði enga viðunandi aðstöðu til að rækja fyrr en á efri árum. Hann var fátækur bóndi, tíu barna faðir og auk þess lengst af kvaddur til tímafrekra starfa í fé- lagsmálum sveitar sinnar og héraðs. III Þrátt fyrir þessar aðstæður, sem eru að öllum líkindum óskiljanlegar nú- tímafólki á íslandi, þá setti Sigurjón sér snemma ákveðin markmið í skáld- skap sínum og hvikaði ekki frá þeim. Hið fyrsta var í því fólgið að koma á samvinnu skynjananna, einkum heyrnar, sjónar og tilfinningar. Sjálfur skýrir hann það nánar í sendibréfi (1941): „Aðaláherzluna hef ég lagt og einkum framan af ævinni, á heyrnina, þ.e. það sem skáld kalla „söng- inn í sálinni“. Framan af ævinni mátti heita, að mér væri ómögulegt að yrkja án þess að heyra „sönginn innan að“. Mitt upphaflega skáldeðli virðist því hafa verið tónlistarlegs eðlis. Og „af því eg hef engin hljóð, eg ætla að finna rím í ljóð“. En orðlistinni kemur ekki vel saman við líkamlegt erfiði og þreytu fremur en öðrum listum. Og því getur oft farið svo, að þreytt skáld finni ekki „annað en tra, la, la“, og stundum ekki einu sinni það.-Til þess að lyriskt Ijóð njóti sín til fulls, þarf það venjulega tóna við, þess sem venjulega er kall- að lag og söngur, einmitt vegna þess, að það er tónlistarlegs eðlis. Og þetta þarf höfundur sjálfur að leggja til, ef hann getur. En geti hann það ekki, sem er hið venjulega, og geri aðrir það í staðinn, má við því búast, að það verði með hætti frábrugðnum hinum upphaflega „innri söng“ höfundar.-“ Sigurjón nefnir hér innri söng og er óhætt að leggja áherslu á, að yfirleitt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.