Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1991, Page 135

Andvari - 01.01.1991, Page 135
ANDVARI „SÖNGUR ER í SÁLU MINNI“ 133 Oft sorgarljár við hjarta hneit hjá hljóðri moldargröf. Þú sólna sól, þú ljósa ljós, sem leiftrar skærst við tregans ós og stafar styrk og fró, við hljóðlát, ósæ innhrif þín hver andans perla vex og skín og leiðir líf að ró. Til þín, til þín um heiðloft há minn hugur væng sinn ber. Mín æðsta von og innsta þrá í eining hníga að þér. IX Þess verður að geta hér, að þann 6. júní 1892 giftust Sigurjón Friðjónsson og Kristín Jónsdóttir í Einarsstaðakirkju og hófu um það leyti búskap á þriðjungi Sands í Aðaldal á móti Friðjóni föður hans. Þar fæddust þeim átta börn á fjórtán árum, en eitt þeirra lést á fyrsta ári. Vorið 1906 andaðist Haraldur Sigurjónsson á Einarsstöðum. Varð þá að ráði að Sigurjón og Kristín flyttust þangað og leigðu hálfa jörðina til næstu sex ára. Hann var þá 38 ára. Þar fæddust þeim Kristínu þrjú börn. Vorið 1913 fluttust þau loks í Litlulaugar í Reykjadal. Áskell Sigurjónsson er fjórði í aldursröð barna Sigurjóns og Kristínar, fæddur á Sandi 13. mars 1898 og man vel árin á Einarsstöðum. Greinir hann svo frá í bréfi sínu: „Það var á Einarsstaðaárum okkar að ég varð áskynja um áhuga föður míns á „dulrænum“ bókmenntum innlendum og útlendum. Hann keypti tímaritin Ganglera og Morgun og las stundum upphátt fyrir fólkið úr þessum ritum. Hann keypti og hafði undir höndum skyld rit, bæði á íslensku og erlendum málum. Þó að faðir minn hefði ekki mikil peningaráð, þá keypti hann furðu mikið af íslenskum bókum jafnóðum og þær komu út, bæði skáldrit og heim- spekirit eða guðfræðirit, og las þessar bækur upphátt eins og sagt var, einkum ef hann hafði sjálfur áhuga á efni bókanna. Man ég t.d. að hann las upphátt fyrir fólkið „í baðstofunni" sögur Einars Hjörleifssonar nýútkomnar, „smá- sögur“ Guðmundar bróður síns (Tólf sögur, Átta sögur o.s.frv.), Árin og ei- lífðin (ef ég man rétt). Þýddar skáldsögur (Á Guðsvegum e. B'. Bj. og fl.norskar sögur). Einnig man ég, að hann las stöku sinnum sögur á Norður- landamálunum, dönsku eða norsku, og þýddi þær á íslensku um leið og hann las. En þó hann skildi þessi mál vel og ég hygg næstum til hlítar, þá vildi sá lestur verða stirðlegur og ekki vel eðlilegur. Annars þótti mér faðir minn lesa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.