Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1991, Page 164

Andvari - 01.01.1991, Page 164
162 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI III Það er ekki vonum fyrr að út sé gefið á íslensku doktorsrit Ivars Orglands, Stefán frá Hvítadal og Noreg. Rit þetta varði höfundur við Háskóla íslands 1969 og var það þá gefið út á nýnorsku. Má varla minna vera en íslendingar láti þýða þær bækur sem útlendir fræðimenn hafa ritað um helstu skáld þjóð- arinnar, en stundum hefur raunar orðið furðulöng bið á því. Ivar Orgland samdi áður bók um æskuár Stefáns, fram til þess að hann hélt til Noregs 1912. Kom hún út á íslensku 1962. Eftir doktorsritið mun hann hafa ritað sem svarar heilu bindi um seinni ár Stefáns og kemur það vonandi fyrir al- mennings sjónir áður en lýkur. Svo segir á kápu bókarinnar um Stefán og Noreg að hún sé „að stofni til“ doktorsrit Orglands. Þetta er furðulegt því ég fæ ekki betur séð en bókin sé rétt og slétt þýðing norska ritsins. Hér er engu við aukið, ekki einu sinni nýjum formála, né heldur bætt við skrá um helstu ritgerðir um skáldið, því sem síðan hefur verið skrifað. Það er aðallega ritgerð Kristjáns Karlssonar í nýrri útgáfu Ljóðmæla, 1970. Fengur er líka að smágrein Hannesar Péturs- sonar, „Skáld í Bessatungu“ í bók hans, Úr hugskoti. En það er einkum skáldskapur Stefáns á seinni árum sem þeir Kristján og Hannes hafa góðar athugasemdir um. Sá skáldskapur kemur lítt við sögu í bók Orglands, Stefán frá Hvítadal og Noregur. Undirtitill hennar, þýddur beint úr norsku, rétt eins og þýðingin sé gefin út fyrir ófróða lesendur, er svofelldur: „Rannsókn á norskum áhrifum á íslenskt ljóðskáld á 20.öld.“ Annað dæmi, dálítið spaugi- legt, um það hversu nákvæmlega frumtexti Orglands er þræddur: í skamm- stöfunum heimilda getur að líta fjölvíða SEB og SEP. Hvað skyldi það vera? Jú, hér er átt við „Stefáns etterlatne böker“ og „Stefáns etterlatne papirer“. Og útvarpsfyrirlestur Þórbergs Pórðarsonar fær skammstöfunina RF, þ.e. Radioforedrag! - Hér hefði víst mátt íslenska eða gera einhverja grein fyrir þýðingunni. Annars er þýðing Steindórs Steindórssonar læsileg. Að vísu hnaut ég um sífellda notkun tengingarinnar „allt um það“ í stað „enda þótt“ eða „hvað sem því líður.“ - Bókin er 360 síður, auk myndasíðna, skiptist í ellefu kafla, þar fyrir utan viðauki, m.a. með myndum af handritum. Hér er því um stórt verk að ræða sem ekki er unnt að gera full skil í stuttu máli. Eins og nafn bókarinnar gefur til kynna eru það norsk áhrif á skáldskap Stefáns frá Hvítadal sem Ivar Orgland kannar hér. Þeirra gætir langmest í Söngvum förumannsins, fyrstu bók skáldsins, 1918, og er hún því í sjónar- miðju. Rannsóknin er ævisöguleg og samanburðarfræðileg í þröngri merk- ingu. Ferill Stefáns í Noregi 1912-15 er rakinn í smæstu atriðum sem um verður vitað, reynt að hafa upp á því hvað hann las í dönskum, sænskum og þó einkum norskum skáldskap og orkaði á hann. Þau áhrif eru þó einkum rakin að því er tekur til yfirborðslegra orðalags- og bragarháttalíkinga. Um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.