Andvari - 01.01.2006, Blaðsíða 28
26
INGVAR GÍSLASON
ANDVARI
aður skattstjóri í Reykjavík 1930, 23 ára gamall. Skattstjóraembættinu
gegndi hann næstu fjögur ár, er hann varð fjármálaráðherra. Þetta var
vandasamt og umfangsmikið embætti. Þá var skattstjórinn í Reykjavík
auk þess formaður niðurjöfnunarnefndar í bænum, sem hafði með
höndum álagningu útsvara á bæjarbúa. Ekki er ólíklegt að brugðið
geti til beggja vona um vinsældir manna í slíkri stöðu. En Eysteini
tókst sem fyrr að stýra svo skútu sinni að hann naut fyllsta trausts fyrir
starfsemi sína, heiðarleika og sanngirni. En jafnframt mátti sýnt vera
að hann staðnæmdist ekki við embættisstörf ein, þótt þau lægju vel
fyrir honum og hefðu mátt endast honum til nokkurrar frægðar á ævi-
göngunni. Smám saman dróst hann meira og meira inn í stjórnmál á
vegum Framsóknarflokksins og naut mikils álits samstarfsmanna þar
og flokksmanna sem til hans þekktu vítt og breitt um landið.
En um það leyti sem Eysteinn gerist skattstjóri og fer auk þess
að eflast sem virkur þátttakandi í stjórnmálum, eru blikur á lofti í
efnahags- og viðskiptamálum vegna heimskreppunnar alkunnu sem
skollin var á, og ekki síður, að því er Framsóknarflokkinn snerti, að
brestir voru komnir í sambúðina við Alþýðuflokkinn. Ríkisstjórn
Tryggva Þórhallssonar stóð og féll með „hlutleysi“ Alþýðuflokksins.
Haustið 1930 ályktaði sambandsþing Alþýðuflokksins að hlutleysi
hans gagnvart ríkisstjórninni væri niður fallið, ástæður til slíks hlut-
leysis væru ekki lengur fyrir hendi. Orsakir þess að Alþýðuflokkurinn
treystist ekki lengur til þess að veita stjórninni hlutleysi áttu sér skýr-
ingar. Flokkurinn var innbyrðis ósamstæður. í flokknum voru bæði
sósíaldemókratar að norðurlandahætti og kommúnistar sem aðhylltust
snöggar, byltingarkenndar breytingar á þjóðfélaginu og sóttu kenningar
sínar til þeirra sem túlkuðu marxisma og leninisma róttækt, ef ekki bók-
staflega. Kommúnistar voru mjög gagnrýnir á hlutleysisafstöðu gagn-
vart ríkisstjórn Framsóknarflokksins. Þar að auki var almenn óánægja
í Alþýðuflokknum með kjördæmaskipunina, sem var flokknum ekki
hliðholl. Innanflokksátökin enduðu með því að Alþýðuflokkurinn
klofnaði. Kommúnistaflokkur íslands var stofnaður um mánaðamót
nóvember og desember 1930.
Alþingi var ekki að störfum þessa haustdaga og var ekki kvatt saman
til aukaþings til þess að ræða stöðu ríkisstjórnarinnar. Lögbundinn
samkomudagur þingsins var 15. febrúar og var því boði fylgt.
Ríkisstjórnin (framsóknarmenn) flutti frumvarp til stjórnarskrárbreyt-
ingar sem fólst í því að lækka kosningaaldur úr 25 árum í 21 ár og