Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2006, Blaðsíða 106

Andvari - 01.01.2006, Blaðsíða 106
104 SIGURBORG HILMARSDÓTTIR ANDVARI En sannleikurinn er sá að ég hef aldrei verið að skrifa fyrir börn. Ég hef verið að skrifa bækur. Ég hef verið að skrifa bækur af því að ég get ekki annað. Ég hef skrifað þær fyrir fullorðið fólk, þroskaða lesendur, en þó þannig að unglingar gætu haft gagn af þeim.11 Það er engin von að almenningur skilji að þegar ég skrifa bók geri ég til hennar hinar ströngustu kröfur um listræna sköpun og reyni að láta hana að engu leyti standa að baki bókum góðra höfunda. Sjálfum finnst mér þetta hafa tekist stundum og mér líður illa af því, að aðrir skuli ekki koma auga á þetta, en þó skil ég það. Mfg hefði langað til að fólk vissi, að starf mitt á þessu sviði er brautryðjanda starf. Enginn Islendingur hefur skrifað bækur með sama sjónarmiði og ég. Að vísu er ég víst fyrsti barnabókahöfundur eða krakkabókahöfundur, sem nýtur ritstyrks. En hvers vegna er ég alltaf hafður með þeim lægstu, þrátt fyrir að ritdómarar telji bækur mínar góðar? Svarið við þeirri spumingu liggur ljóst fyrir. Það er vegna þess að jafnvel mislukkuð bók fyrir fullorðna nýtur meiri virðingar og er álitin æðri list en sæmileg bók fyrir krakka. Sé bók kennd við krakka verður hún brosleg og höfundurinn bamalegur. Það er þetta, sem mér leiðist. Þetta er að verða mér djúpstæð kvöl.12 Ekki er Stefán Jónsson einn um þá reynslu að barnabókahöfundar eru ekki litnir sömu augum og aðrir rithöfundar. Skemmst er þar að minnast Astrid Lindgren sem um áratugi hefur verið víðlesnasti og vinsælasti rithöfundur Norðurlanda en var aldrei svo mikið sem tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. En sennilega yrðu þær sögur Stefáns sem á sínum tíma voru gefnar út sem barna- og unglingasögur margar hverjar kynntar sem skáldsög- ur ætlaðar almennum lesendum ef þær væru að koma út á okkar dögum, engu síður en t.d. þær skáldsögur Einars Más Guðmundssonar og Jóns Kalmans Stefánssonar sem hafa að aðalpersónu barn í hörðum heimi, en engum dettur í hug að flokka sem barnasögur. 3 Stefán Jónsson skrifaði tvær skáldsögur sem ætlaðar voru fullorðnum lesend- um. Báðar voru þær metnaðarfull verk og mikil vinna lögð í samningu þeirra. Stefán batt vonir við að fyrir þær hlyti hann þá almennu viðurkenningu sem rithöfundur er hann taldi sig ekki hafa hlotið fram að því. Sendibréf frá Sandströnd sendi Stefán í samkeppni um skáldsögur sem Menningarsjóður efndi til árið 1959. Samkeppnin vakti mikla athygli og allhá peningaverðlaun voru í boði. Úrslitin urðu þau að Björn Th. Björnsson hlaut verðlaunin fyrir Virkisvetur en dómnefndin taldi Sendibréf frá Sandströnd næstbestu söguna. Sjálfur var Stefán mjög ánægður með Sendibréfið og mat það mest verka sinna. Það kom út árið 1960. Sögusviðið er Sandströnd, lítið þorp á árbakka sem vaxið hefur upp í kringun verslun og aðra þjónustu við sveitirnar í kring. Fyrsti hluti sögunnar er forsaga Sandstrandarþorpsins og er í rauninni mjög laustengdur aðalefni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.