Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2006, Blaðsíða 152

Andvari - 01.01.2006, Blaðsíða 152
150 STEINUNN INGA ÓTTARSDÓTTIR ANDVARI að sér er að ganga um með vini sínum í lystigarði á fögru sumarkvöldi (sbr. 53). Og á langferðum reynir hann ávallt að kynnast samferðamönnum sínum og stytta sér stundir við að spjalla við þá. Hann segist vera leiður þegar hann sér fátt fólk á ferli og ekkert óvænt gerist en gleðst þegar hann hefur skoðað Berlín og kynnst vingjarnlegum borgarbúum (sbr. 36). Tómas var víðförlastur íslendinga á sinni tíð36 og hann hefur verið vel meðvitaður um forréttindi sín og sérstöðu. Hann kallar sjálfan sig „hinn eina íslending, sem vogaði sér út í veröldina.“37 Hann veit að þeir sem halda sig á sömu þúfunni alla ævi fara mikils á mis. Það lætur því vel í eyrum hans, kitlar jafnvel hégómagirndina aðeins, þegar samferðakonur dást að honum: Hinar prússisku konur voru skemmtnar nrjög og kátar, og fundu ætíð nóg til umtalsefnis og töluðu mjög skynsamliga um allt; urðu þær mjög hissa að heyra eg væri frá Islandi. Vissu þær um föðurland mitt miklu meira en mér hefði getað til hugar komið, þóktust heppnar að hafa kynnzt við íslending, vildu vita nafn mitt og heimili og skrifuðu það hjá sér; sýndist þeim eg mætti vera sífellt uggandi um líf mitt í svo fjarlægu landi. Sagði eg þeim þá hvað eg hefði enn í áformi að ferðast, og fannst þeim þá enn meira um, sögðu eg væri öfundsverður er eg væri búinn að gjöra slíka ferð. Þókti mér það vel sagt og náttúrligt af kvenmanni, því bæði var rétt álitið að manni þykir eins gaman að slíkum ferðalögum þegar þau eru enduð eins og meðan á þeim stendur, og líka finnst þeim sem ístöðulítill er og aldrei hefir farið út af átthögum sínum, eins og á stóð fyrir þessum, heldur kvíðvænligt en gleðiligt að kasta sér meðal útlendra þjóða.38 Þótt Tómas færi víða og sæi margt breyttu ferðalögin ekki öllu um hleypi- dóma hans frekar en annarra. Hann fer ekki ofan af því að kaþólskir séu fáfróðari en lútherstrúarmenn og að Gyðingar séu skítugir, frekir og nískir. Tómas virðist yfirleitt hafa haldið sig sæmilega á meðan ferðaféð entist. Hann bjó í snyrtilegum herbergjum, borðaði góðan mat, svolgraði bjór og fékk jafnvel rakara til sín að morgni. Hann er einlægur og grunlaus á ferðalögum andstætt t.d. Hannesi Finnssyni biskupi sem ávallt var „tortrygginn á reisum“ eins og hann orðaði það sjálfur í Stokkhólmsrellu sinni. Tómas taldi það „for- sjálligast meðal ókunnra þjóða að dylja allan efa um trúnað þeirra sem maður á við að skipta og tala við þá einlæglega og sem kunningja meðan þeir ekki hafa gefið til annars neina átyllu“ (243). Annars lætur Tómas afar fátt uppi um líðan sína í Ferðabókinni og frásögnin er lítt fleyguð af persónulegum munum. Hlutlægar og nytsamar lýsingar eru allsráðandi, tilfinningar höfund- arins eru víðsfjarri þrátt fyrir yfirlýsingar í formála um að „köld orðavegun“ eigi ekki heima í slíkum bókum (4). Markmið hans hefur ef til vill verið að skrifa huglæga ferðasögu en nytsemin, uppfræðingin og föðurlandsástin eru svo fyrirferðarmikil að lítið svigrúm er fyrir frásagnir af persónulegum högum. En ekki má gleyma að Ferðabók Tómasar er aðeins uppkast, skrifað í tímaþröng, og óvíst hvernig hún hefði litið út í endanlegri gerð. Af efnistök- um að dæma má ætla að hefði honum unnist tími til að ljúka bókinni hefði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.