Andvari - 01.01.2006, Page 66
64
INGVAR GÍSLASON
ANDVARI
hann líka raunsær og vissi að málafylgja er þolmörkum háð í lýðræð-
islegum samskiptum, stjórnmál eru samningamál oftar en ekki, list
hins mögulega!
Lokaord
Eins og þessi aldarminning ber með sér var Eysteinn Jónsson fyrst og
fremst þekktur sem dugandi og áhrifamikill stjórnmálamaður. Hann
hefur mörgum fremur sett svip á samtíð sína, beinlínis markað spor á
vegferð íslenskrar þjóðar á 20. öld. Saga aldarinnar verður ekki sögð án
þess að nafn hans verði nefnt oftar en margra annarra.
A það hefur fyrr verið drepið að Eysteinn átti sér ýmis áhugamál
utan stjórnmála. Hann var ágætlega að sér um flest sem varðar íslenska
sögu, bókmenntir og náttúrufræði og fylgdist ætíð vel með heims-
málum og greindi þau af ekki minni áhuga og skarpskyggni en önnur
stjórnmál. Alkunna er, enda talsvert um það skrifað, að Eysteinn var
útivistarmaður og náttúruunnandi. Hann sótti þrótt í útivistina, var
göngugarpur og skíðamaður og raunar forgöngumaður á sviði útivistar
og manna fróðastur um allt sem að landafræði laut og nánast sér-
fræðingur um gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur. Hann var því hinn
færasti leiðsögumaður, ef í það fór, og eftirsóttur fyrirlesari og greina-
höfundur um almenningsferðir í landinu. Útivistaráhugi Eysteins var
honum hollur hvað líkamsheilsu varðar, en einnig að því leyti að það
veitti honum tækifæri til að hitta fólk úr ýmsum áttum og lifa með því
í góðum félagsanda í heilnæmu umhverfi. Þetta var áreiðanlega ágæt
uppbót á það - sem mér virtist - að hann var ekki sólginn í samkvæm-
islífið, þótt í því eigi ráðherrar og alþingismenn margra kosta völ, ef
þeir vilja nýta sér það. Hvað það snertir gerði Eysteinn að sjálfsögðu
skyldu sína, en ekki mikið fram yfir það.
Eysteinn átti mörg ár ólifuð eftir að hann hætti beinum afskiptum
af opinberum málum. Þótt hann drægi sig út úr félags- og stjórnmála-
lífi frá því sem áður var, skorti ekki áhuga hans á þjóðmálum, enda
hélt hann vel andlegri og líkamlegri heilsu fram á efstu ár. Skíðaferðir,
göngur og hvers kyns útivist stundaði hann af kappi og lét sig þau mál
varða í ræðu og riti.
Eysteini var á efri árum sýndur margvíslegur heiður sem þakklætis-
og virðingarvottur fyrir stórbrotið ævistarf. Samþingsmaður hans og