Andvari - 01.01.1939, Qupperneq 118
114
Einokunarfélögin 1733—1758
Andvari
verzlunarhús sín og eftirsföðvar skulda hér og vöru-
geymsluhús í Kaupmannahöfn, ganga til félagsins eftir
matsverði, sem var 81 139 rdr., en ekki taldist það til
hlutafjár. Um leið og félagið var stofnað tók það lán,
sem nam h. u. b. 15 000 dölum, og voru þá alls nálega
200 000 dalir Iagðir í íslenzku verzlunina, en það er
upphaflega misskilningur Skúla Magnússonar, að þetta
hafi allt verið hlutafé. Öllu meinlegri er þó sú missögn
um þetta félag, sem raunar stafar frá dönskum fræði-
manni, að það hafi einnig rekið verzlun á Finnmörk,
og verið kallað íslands- og Finnmerkurfélagið (Det is-
landsk-finmarkske kompagni). Finnmerkurverzlunin var
frá 1729 veitt þremur kaupsýslumönnum í Kaupmanna-
höfn afgjaldslaust, því að hún þótti ekki gróðavænleg.
Enginn þeirra gekk nokkurn tíma í íslenzka verzlunar-
félagið, og það neitaði með öllu að fást við verzlun á
Finnmörk, þegar þeir gengu frá, og félaginu var boðin
hún, 1740. Þessi misskilningur mun stafa af því, að ein-
okunarfélaginu 1733—42 hefir verið ruglað saman við
hörmangarafélagið 1743—58; sbr. síðar. Brytt hefir
einnig á þeim misskilningi, að einokunarfélagið frá 1733
hafi staðið í sambandi við hörmangaralagið (stéttarfé-
lag hörmangara í Kaupmannahöfn), en svo var ekki,
heldur var um eitt skeið hörð deila milli þeirra félaga,
eins og brátt mun sagt nánar. Þó voru sumir af stofn-
endum verzlunarfélagsins einnig í hörmangaralaginu,
og áttu kaupmenn, sem í því voru, 32 000 dali af hluta-
fé verzlunarfélagsins, eða nálega þriðjung hlutafjárins,
og ekki áttu meðlimir neins annars stéttarfélags svo
marga hluti. Næst hörmangaralaginu gekk bruggaralagið 0
1) Ég nota orðið lag (flt. lög) um stéttafélög atvinnurekenda,
eins og þau tíðkuðust á 17., 18. og fram á 19. öld (d. lav). Þau
félög eru stundum kölluð gildi á íslenzku, en það er einmitt sama