Andvari - 01.01.1949, Síða 2
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.
Saga íslendinga.
Gert er ráð fyrir, að ritverk þetta verði 10 bindi alls,
hvert bindi um 30 arkir, með myndum og uppdráttum, eftir
því sem þörf krefur og föng verða til.
Skipting efnisins i bindi verður i höfuðdráttum sem hér
segir: I. bindi nær fram til um 1100, II. bindi nær frá 1100
til 1264, III. bindi nær frá 1264 til 1500, IV. bindi nær frá
1500 til 1600, V. bindi nær frá 1600 til 1700, VI. bindi nær
frá 1700 til 1770, VII. hindi nær frá 1770 lil 1830, VIII. bindi
nær frá 1830 til 1874, IX. bindi nær frá 1874 til 1903 og
X. bindi nær frá 1903 til 1918.
Þegar eru komin út IV., V. og VI. bindi. — Nýtt bindi
er væntanlegt um næstu áx-amót. Er það VII. bindi, samið
af dr. Þorlceli Jóhannessyni prófessor.
íslendingar hafa alltaf unnað sögum og sagnafróðleik.
Þeir hafa líka oft verið kallaðir söguþjóðin. Með prentun
þessa ritverks gefst þeim kostur á að eignast ýtailegt og
vandað yfirlitsrit um sögu sína frá öndverðu til 1918.
Heiðinn siður á íslandi.
Þetta er skemmtilegt og fræðandi rit um trúarlíf íslend-
inga til forna eftir Ólaf Briem mag. art. Bókin flytur milc-
inn fróðleik um goð og landvætti, hof og hlót og aðra heiðna
siði. Hún er mjög vönduð að frágangi, með uppdrætti og
mörgum myndum. Allir, sem íslenzlcum fræðum unna,
þurfa að eignast þessa bók. Hún er elcki seld með félags-
bókunum, lieldur sérstaklega. Frestið ekki að eignast hana,
þar sem upplagið er rnjög lítið.