Andvari - 01.01.1949, Blaðsíða 32
28
Barði Guðmundsson
ANDVARI
getað átt til viðdvalar með mönnum sínum á grafarlæksbakk-
anurn í niðamyrkri og skammt frá heimilinu. Enda kemur
það skýrt fram í Þorgilssögu, að Þorgils og menn lians ótt-
uðust fyrirsát þarna. Bað Þorgils „menn búa sig og ríða á
hvað sem fyrir væri.“ En af því mun ekki hafa orðið.
Það liggur beint í hlutarins eðli, að Þorgils hafi sagt Þor-
varði frá ferðalagi þessu, þá er þeir fundust á Grund. Ber
það til, að Þorvarður hlýtur að hafa spurt hann eftir Hrafni,
þar eð fullur fjandskapur og ófriður var þá á milli hans og
þeirra Þorgils. Uin þetta þarf ekki heimilda við. Og nú vill
svo vel til, að við höfum þess ljós ummerki í Njálu, að höf-
undi hennar hafi verið minnisstæð laumuferð um endilangan
Laxárdal á öndverðri nóttu. Þannig er að orði komizt um
brottför Kaupa-Héðins og manna hans frá Hrútsstöðum: „En
þegar er Hrútur var sofnaður, tóku þeir klæði sín og vopn
og gengu út og fóru til hesta sinna og riðu yfir ána og svo
fram Hjarðarholtsmegin þar til er þraut dalinn.“ Líkingin á
milli ferða Kaupa-Héðins og Þorgils er auðsæ. Þeir gera báðir
langa lykkju á leið sína og fara að næturlagi um Laxárdal
af ótta við eftirreið höfðingja í Dölunr, senr tregðazt höfðu
við að greiða 90 hundraða skuld. Meira að segja lrefur Þor-
gils líklega konrizt franr hjá Birni og nrönnum hans nreð þvi
að lrleypa yfir Laxá og frarn dalinn Hjarðarholtsnregin. Til
þessa benda orð þau, er fylgt hafa hinni niðurfelldu frá-
sögn af viðskiptunr Þorgils og Bjarnar: „Menn Þorgils
nokkrir, þeir er riðið höfðu fyrri í náttnryrkrinu, riðu sína
leið til Miðfjarðar unr kvöldið.“ Þeir virðast ekki lrafa þurft
að víkja úr vegi.
Síðsumars árið 1255 sitja þeir Þorvarður Þórarinsson og
Þorgils skarði á Grund í Svarfaðardal og „töluðu um vand-
ræði sín.“ Þar hlustar Þorvarður á frásögn Þorgils af Lax-
árdalsævintýrinu. Þorvarður er þangað kominn „austan úr
fjörðum" í þeim erindagerðum að gerast höfðingi Svarfdæla.
Heimildir greindu frá því, að fyrrum hefðu austfirzkir menn
hafizt þar til metorða og valda. Ljótólfur, bróðurson Hróð-
geirs hvita landnámsmanns í Bakkafirði, gerðist goði Svarf-