Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1949, Side 93

Andvari - 01.01.1949, Side 93
andvaiu Alþýðumenntun og skólamál á íslandi á 18. öld 8!) margbreyltan kost prentaðra bólca að ræða. En þess ber að gseta, að hér nægir ekki að líta eingöngu til prentaðra bólca og bókakosts manna undir þá grein. Vér vitum, að afar mikið var þá til i landinu af kandritum, og þessi handrit, sum afar forn, voru ekki neinir stássgripir. Þau voru notuð þessi hand- rit, lesin og afskrifuð. Og þótt dæmi séu til frá 17. öld um hirðulauslega meðferð handrita, einkum torlesinna skinnhand- rita, er afskrifuð höfðu verið, eru hin miklu fleiri, er vitna um, að alúð var á lögð að varðveita slíka gripi. Og líkast til voru handritin meira notuð og lesin en hinar prentuðu bækur, þorri þeirra. Prentverkið var einokað að kalla mátti í þarfir kirkj- unnar, en slíkt sakaði ekki svo mjög hinar þjóðlegu bók- menntir. Landsmenn voru að fornri venju alls ekki háðir prentsmiðjunni um bókakost sinn. Mætti um þetta taka dæmi af rímunum, vinsælustu og alþýðlegustu bókmenntagrein þjóðarinnar. Ekki verður séð, að það hafi háð þeim neitt, þótt ekki væru hér rímur prentaðar fyrr en á síðustu áratugum 18. oldar, að frátöldum biblíurímum; en afdrif biblíurímnanna vitna raunar bezt um vanmátt hins prentaða máls um langa hríð gagnvart hinum þjóðlegu, skrifuðu bókmenntum. Þjóðin otti jafnan nógar rímur í handritum, las þær og lærði. Svo var °g um sögur og ýmis forn fræði. Á síðara hluta 17. aldar er byrjað að safna hér handritum í þeim tilgangi að senda þau úr Iandi, og með byrjun 18. aldar verður þessi smölun °g ótflutningur handritanna með skipulögðum hætti svo um- svifamikill, að í mörgum greinum heldur við auðn. Um sama leyti gerir hér ægilega drepsótt, er kippir burtu um þriðjungi landsfólksins. Samfara þessu er hið mesta harðæri um langt skeið, og þar á oi'an bætist spillt og agasamt stjórnarfar. Þarf naumast að furða sig á því, þótt heldur dvínaði áhugi manna om bókleg fræði við þvílíka atburði. Og þegar alls þessa er gætt, mætti lýsing biskupanna frá 1717 virðast sannlegri, en hun á þó að vísu aðeins við um fyrstu áratugi 1S. aldarinnar. Samkvæmt skýrslum Harboes um lestrarkunnáttu lands- manna almennt og menntunarástand prestanna var víða all- 111 jög ábótavant um þessi efni. Að því er lestrarkunnáttu

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.