Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1949, Side 28

Andvari - 01.01.1949, Side 28
24 Barði Guðmundsson ANDVAIU þar um hríð. „En er voraði, þá Ingimundur eigi svo vistina að Sumarliða sem vera átti, og hljóp hann inn á strönd að hitta Ásgerði og hafði hana brott og út til Svarfaðardals á bæ þann, er heitir á Reykjarhamri." í annan stað bar það til tíðinda eftir dráp Helga prests, að goðorðsmennirnir Þorvarður Þorgeirsson og Önundur Þor- kelsson sendu sinn manninn hvor til Þoi’gerðar á Bratta- velli. Áttu þeir að „sitja fyrir, að Ingimundur væri þar ekki, og veiða hann, ef þeir mætti.“ Sú viðleitni bar þó engan Srangur fyrr en Ingimundur hafði flutzt að Reykjarhamri. Þá var það eitt sinn snemma morguns, að umsátursmennirnir sóttu hann heim við tíunda mann og drápu. Eftir víg Ásvarðs Jeitaði Hrappur sér hælis hjá manni, sem numið hafði lxonu á bi'ott líkt og Ingimundur. Þeir Guðbrandur og Þrándur son Iians sitja nú um Hrapp, sem jafnan leitar samfunda við Guðrúnu, en fá lengi vel ekki færi á lionum fremur en menn- irnir tveir að Brattavelli á Ingimundi. Á morgunsárinu dag noklxurn heppnast svo Þrándi og mönnum hans að finna Hrapp. Laulx þeirra viðsltiptum þannig, að Hrappur „vegur þrjá menn, en særir Þránd til ólífis, en eltir tvo til slcógar, svo að þeir báru enga njósn.“ Af framhaldi frásagnarinnar má ráða, að Njáluhöfundur hefur liaft tiu manna sveit í liuga, er hann lýsti viðureign Hrapps og Þrándar. Því að hann lætur einmitt fjóra menn koma strax eftir bardagann hlaup- andi til Hálíonar jarls og Guðbrands með fregnina af leiks- lokum. Þeir voru jarlsmenn. Er vert að veita þessu atliygli, því að flokkurinn, sem sótti Ingiinund heim að Reykjarliamri, var sendur að tilstuðlan tveggja höfðingja, og tala mannanna hin sama í báðurn tilfellum. Það er fjarri mér að halda því fram, að Víga-Hrappsþáttur Njálu séu stæling á þætti þeirra Sumarliða og Ingimundar, enda þættirnir ólíkir á margan hátt. En framanskráð dæmi taka af skarið um það, að Njáluhöfundur hefur í ríkum mæli stuðzt við Sumarliðaþáttinn, er hann ritaði um Hrapp. Þar við bætist svo það mikilvæga atriði, að Sumarliði á Tjörn virðist mynda hinn eðlilega tengilið í hugsun höfundarins á

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.