Andvari - 01.01.1949, Blaðsíða 20
16
Eiríkur Einarsson
ANDVARI
við þetta tækifæri í huga þarfir íslenzks landbúnaðar og
gladdist af því, er honum mátti til góðs gera. Minntist hann
þess, hve vel hefði verið um þátttöku Landsbankans í Skeiða-
áveituláninu, og einnig þess stuðnings, er Flóaáveitunni var
veittur, er gert var að skilyrði fyrir innanlandsláninu 1921,
að 1 millj. kr. af því færi til Flóaáveitunnar. — Þess er og
vert að minnast, er Magnús Sigurðsson og landbúnaðinn ber
á góma, að það var hann, er fyrstur manna hugsaði hinni
grónu grund svo hátt, að sveitirnar verðskulduðu að fá
sinn banka til eflingar starfi sveitanna. Það var hann, sem
neytti valdaaðstöðu sinnar til þess, að hinn fvrsti sveitabanki
á íslandi var reistur á Selfossi hausið 1918. Sumir af gamla
skódanum töldu það þó firru eina og bentu á Vatnajökul.
En Magnús og samherjar hans, er komu þvi til vegar, að
hann varð bankastjóri, báru sigur af liólmi. Fór Benedikt
Sveinsson, vinur Magnúsar, er þá var hankastjóri ásamt
honum, austur og ákvað staðinn á Selfossi. Unnu þar góðir
og þjóðhollir drengir saman að framgangi góðs málefnis.
Magnúsi Sigurðssyni varð það til láns, að samverkamenn
hans í Landsbankanum, hinir bankastjórarnir, voru flestir
ágætismenn og honum prýðilega samhentir fyrr og siðar.
F.ngum þeirra hallmælti hann, svo ég vissi til, nokkru sinni,
en hlýja hans og vinátta til margra þeirra, eldri og yngri,
leyndi sér ekki. Ætla ég og, að flestir eða allir þessara
manna, sem enn eru á lifi og starfa í landinu, blessi minn-
ingu Magnúsar og hafi hana í heiðri.
I fyrrnefndu samtali við Magnús Sigurðsson sextugan
lcvaðst hann fremur vilja lána út á lifandi menn en þorskinn
í sjónum; þeir gætu einnig lært að veiða þorskinn. Voru
honum þá í huga fátækir stúdentar og aðrir slíkir, er áttu
góðan talsmann þar sem hann var. Lánið var venjulega veitt.
Hef ég fyrr í grein þessari minnzt á þann þátt í sögu M. S.,
er lýtur að þeim málefnum. Kunni Magnús Sigurðsson vel
að vera með tignum mönnum, en umgengni hans á meðal
snauðra nauðleitarmanna var engu síður göfugmannleg og
fögur.