Andvari - 01.01.1949, Blaðsíða 33
andvari
Örgumleiði, gerpir, Arnljótarson
29
dæla, og Ásgeir, bróðir Böðmóðs gerpis, sonur landnáms-
'nannsins í Breiðdal, var um svipað leyti höfðingsbóndi í
l^rekku, sem heita má, að liggi samtýnis við Grund. Má nú
gera sér grein fyrir því, hvers vegna Víga-Hrappur kemur
fram á sjónarsviðið i samfylgd með Örgumleiða, gerpi og
Hróðgeiri hvíta. Þegar Njáluhöfundur tekur að semja þátt-
lnn af Hrappi, hefur hugur hans verið bundinn við Grundar-
fundinn, viðræðurnar þar og umhverfið. Örgumleiði, gerpir,
Hróðgeir hvíti og Breiðdalur verða því nærtæk nöfn til notk-
unar í frásögninni. Þannig sem erindrekstri Þorvarðs var
háttað lá það beint við, að hann minntist hinna fornu aust-
firzku höfðingjaætta í Svarfaðardal. Frásögn Þorgils af Lax-
urdalsreiðinni og viðureigninni við Hjarðarholtsbóndann var
jafnframt vel til þess fallin að beina huganum að hinum lax-
dælska Viga-Hrappi. Það var ekki svo lítið, sem Laxdæla
greindi frá viðskiptum hins fornfræga Hjarðarholtsbónda.
Olafs pá og Víga-Hrapps. Þar fannst nafnið, er hæfði þeirri
s°gupersónu, sem Njáluhöfundur var að skapa. En betur fór
11 því að láta hinn nýja Hrapp ekki vera Sumarliðason, eins
°g hinn gamla. Stælingin var of augljós og Sumarliði lit-
laust nafn. Öðru máli gegndi um Örgumleiða og gerpi. Þessi
Uofn settu skarpt svipmót á ætterni Hrapps og verða því fyrir
'alinu, þegar hann er ættfærður. Þannig liggur beinast við
að hugsa sér tengslin til orðin milli hins laxdælska Viga-
Hrapps og hólmans Örgumleiða í Svarfaðardal, þótt hlekk-
Ul'inn, sem batt þá saman, muni vera vitund Njáluhöfundar
Sumarliða á Tjörn og máldaga kirkjunnar þar.
Eins og vænta mátti, er Víga-Hrappur látinn koma til sög-
Unnar sem vegandi. „Ég hefi vegið Örlyg Örlygsson Hróð-
geirssonar liins hvíta, en til eftirmáls eru Vopnfirðingar,“
Segir Hrappur við Kolbein Arnljótarson. Þessi orð virðast
cinnig vera sprottin af minningu Njáluhöfundar um Svarf-
oðardalsför Þorvarðs Þórarinssonar og Grundarfundinn. Þau
falla um leið og Hrappur greinir frá föður- og afanafni. Frá
Hofi í Vopnafirði, ættaróðali hinna fornu Vopnfirðingahöfð-
lngja, lá leið Þorvarðs til stefnumótsins á Grund. Þeir áttu