Andvari - 01.01.1949, Blaðsíða 24
20
Magnús Sigurðsson bankastjóri
ANDVARI
entist aldur til að inna af hendi, var að sitja fund Alþjóða-
bankans í London. Að þeim fundi loknum var ætlunin að
dvelja nokkru lengur erlendis, einhverra erinda og einnig sér
til hvíldar og heilsubótar. Hélt hann þá til Kaupmannahafnar
i kynnisför til Bergljótar dóttur sinnar, sem þar á heima.
Síðan hélt hann til Sviss og dvaldi þar um tíma og hvíldist.
Siðasti áfanginn var lengra suður, og mun hann hafa hugsað
sér að treysta sölumarkaði íslands i Miðjarðarhafslöndum,
jafnframt því að styrkja heilsuna. Var Bergljót dóttir hans
með honum, er numið var staðar í Genúa, en í lyftunni til
gistihússherbergja, er voru útveguð, hné hann niður og and-
aðist nokkru síðar. Hafði hann verið allhress og glaður í
hragði til þeirrar stundar, er þetta bar að, hinn 27. október
1947. — Var lík Magnúsar Sigurðssonar flutt heim til greftr-
unar, er fór svo fram i Reykjavik 14. dag nóvembermánaðar.
Var jarðarförin mjög fjölmenn og virðuleg. Yfir moldum
hans stóð meðal annarra fulltrúi frá Englandsbanka, er
vinir hans þar sendu til að heiðra minningu manns, sem þeir
liöfðu mætur á.
„Þágu vér mörg ráð þægileg af Njáli“, mælti Snorri goði
á Þingvelli eftir Bergþórshvols-brennu. Hið sama mættu nú
fjölmargir íslendingar segja, er þeir minnast Magnúsar Sig-
urðssonar látins. Og enn er sem hann syngi ættjörð sinni:
Evjan vor, þú varpar öllum böndum, verður frjáls og gengur
heilla-stig.