Andvari - 01.01.1949, Page 35
andvari
Örgumleiði, gerpir, Arnljótarson
31
vera veginn af Hrappi syni „Örgumleiða Geirólfssonar gerp-
ls-“ „En til eftirmáls eru Vopnfirðingar.“
Af nöfnunum Örgumleiði og gerpir mátti bezt ráða, hvar
hugur Njáluhöfundar dvaldi, er hann ritaði upphafsgrein
Hrappsþáttar. Móðurnafn Kolbeins Arnljótarsonar er þó ekki
síður mikilvægt til skýringar á hugsanagrundvelli þeim, sem
greinin hvílir á. Eins og heitið Örgumleiði og viðurnefnið
gerpir á Arnljótarson sér aðeins eina hliðstæðu, svo kunn-
llgt sé. Sumarið 1260 sendi Hákon konungur Hákonarson ívar
Arnljótarson til Islands með skattakröfur á hendur lands-
mönnum. Og nú má sjá af Njálu, að höfundur hennar hefur
haft Hákonarskattheimtu og Þrándheim í liuga um leið og
hann kynnti Kolbein Arnljótarson sem þrænzkan stýrimann.
Næstu orðin á undan nafni hans eru jíessi: „Kári sagði, að
bann myndi þetta sumar koma til Noregs með skatta Há-
honar jarls og myndu þeir þar finnast. Og svo kom, að þeir
sammæltust á það. Síðan létu þeir Njálssynir út og komu við
Þrándheim.“ Hugrenningatengsl höfundar milli skattheimtna
Hákonanna, Þrándlieims og þrænzkur, og svo móðurnafna
stýrimannanna, eru næsta ljós. Móðurnafn sitt hlýtur Kolbeinn
stýrimaður eftir móður Ivars, og er vert að athuga tildrög
þessarar nafngiftar nánar.
í sögu Þorgils skarða er Ivari Arnljótarsyni eignuð sendi-
för ívars Englasonar til Islands sumarið 1255. Hefur það
valdið ruglingnum, að báðir ívararnir voru sendir af Hákoni
honungi og í sömu erindagerðum. Að vísu er það svo, að í
Þorgilssögu, eins og hún nú liggur fyrir, er Ivar kallaður
Arnljótsson, en hér er tvímælalaust um ritvillu eða mál-
fræðilegan misskilning afritara að ræða, svo sem í Njálu-
handritum þeim, er hafa Ivolbeinn Arnljótsson í staðinn fyrir
Arnljótarson. Konuheitið Arnljót virðist aldrei hafa verið
hotað hérlendis. Er það því eðlilegt, að sumir héldu, að Arn-
Ijótarson væri afbökun úr Arnljótsson, sem sé slcökk eignar-
fallsending notuð. Greinin um ívar í Þorgilssögu hljóðar
þannig:
,,Það sumar, er Þorgils bjó í Ási, kom til íslands ívar Arn-
3