Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1949, Page 38

Andvari - 01.01.1949, Page 38
34 Barði Guðmundsson ANDVARI daginn 21. janúar 1258, síðasta daginn sem Þorgils lifði, að fnndum þeirra frænda bar enn saman. Töluðu þeir þá „margt um héraðið og um skipti sín. — Urðu aldrei þverbrot með þeim í talinu.“ Þeir „skildust heldur fálega“, segir sögurit- arinn á ný, og fylgir þeim orðum þessi stórmerkilega klausa, sein er forspjallsgrein að frásögninni af drápi Þorgils skarða þá um nóttina: „Þorvarður úr Saurbæ var hinn mesti vinur nafna síns af bændum í Eyjafirði. Hafði Þorvarður Þórarins- son jafnan tal við hann. Hann þótti vera nokkuð óheill og illráður." Ummæli þessi eru auðskilin og hin mikilvægustu, þegar þcss er gætt, hvar þau standa í sögunni. Að hyggju höfundarins hefur Þorvarður í Saurbæ átt þátt í því, að nafni hans og vinur tók Þorgils skarða af lífi. Sú hlutdeild hefur bersýnilega verið fólgin í undirferli og rógi. Það sýna orðin: „bafði jafnan tal“ og „óheill og illráður“, svo að ekki verður um villzt. Af framanskráðum greinum Þorgilssögu má marka, að upphaf þeirrar viðburðarásar, sem leiddi til vígs Þorgils skarða, sé útkoma ívars „Arnljótarsonar“ með konungs- bréfið. Enda varði Þorgils valdatöku sina í Eyjafirði með því að skjóta sér bak við skipan Hákonar konungs. Þetta er harla athvglisvert atriði, þar eð aðdragandi dráps Höskulds Hvíta- nesgoða hefst einmitt með íslandsför Ivolbeins Arnljótarson- ar. í Njálu hefur Kolbeinn ekkert annað hlutverk en að flytja Hrapp utan. Af þeirri utanför leiðir hrakningur Njálssona í Noregi, dráp Þráins, upptaka Hvítanesgoðorðsins og svo vig Höskulds. Þegar Njálssynir biðja föður sinn um utanfarar- leyfi, segir hann: „Erfið mun ykkur verða utanförin, svo að tvísýnt mun verða, hvort þið haldið lífinu, en þó munið þið fá sæmd í sumu og mannvirðing, en eigi örvænt, að af leiði vandræði, er þið komið út.“ Er hér vitanlega fyrst og fremst átt við hrakninga Njálssona vegna Hrapps og víg Þráins. Og enn fremur segir Njáll, þá er rætt var um upptöku fimmtar- dómsgoðorðanna: „Það er mörgum mönnum kunnugt, hversu fór með sonum mínum og Grjótármönnum, að þeir drápu Þráin Sigfússon, en þó sættumst vér á málið, og hefi ég nú

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.