Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1949, Side 40

Andvari - 01.01.1949, Side 40
36 Barði Guðmundsson ANDVARI allir í senn níu köflum síðar, þá er greint er frá brúðkaupi foreldra Höskulds Hvítanesgoða. En ekkert eiga þeir þó sain- an að sælda fyrr en í 79. kafla sögunnar. Þá lætur höfundur Skarphéðin kúga Mörð til þess að selja Högna á Hlíðarenda sjálfdæmi fyrir víg Gunnars. Sá atburður er í beinu orsaka- sambandi við rógburð Marðar, er leiddi til dráps Höskulds Hvítanesgoða. Þar liggja leiðir Marðar og Njálssona saman á hinn örlagaríkasta hátt. Frá sjónarmiði höfundar séð er höf- uðhlutverk Njálssona í sögunni það að drepa Höskuld fóstur- bróður sinn og þola siðan friðþægingardauða í brennunni. Með rógi sínum er Mörður upphafsmaður ógæfunnar. Þess vegna er hann og Njálssynir kynntir samtimis, og Mörður með einkunnarorðunum: „Hann var slægur maður í skap- lyndi, en illgjarn i ráðum.“ Merði Valgarðssyni var einnig fengið það hlutverk i hendur að koma Gunnari að Hlíðarenda á kné. Fyrir vígi hans standa höfðingjarnir Gissur hvíti og Geir goði. Um leið og þeir koma til sögunnar fær Mörður að nýju dóm sinn kveðinn upp og nú með orðunum: „Hann var slægur og illgjarn.“ Má af þessu marka, að höfundur hefur haft víg Höskulds og Gunnars sér- staklega í huga, er hann lýsir skapgerð Marðar. Lýsingar þessar eru þannig hliðstæðar þeim ummælum höfundar Þor- gilssögu, sem beint er að Þorvarði i Saurbæ, þá er frásögnin liefst af drápi Þorgils skarða. Og öllum þrem frásögnununi af vígunum lýkur með nálega sama hætti: „Víg Gunnars mælt- ist illa fyrir um allar sveitir." „Víg Höskulds spurðist um allar sveitir og mæltist illa fyrir.“ „Mæltist víg þetta allilla fyrir um allar sveitir.“ En um dráp Þorgils er komizt svo að orði: „Spurðust tíðindi þessi um allt land. Létu menn illa yfir þessum tíðindum." „Mæltist þetta verk illa fyrir.“ Þá er Njáluhöfundur greinir frá upptöku fimmtardómsgoð- orðanna, nefnir hann sem hliðstæðu við hið nýja goðorð Höskulds „Laufæsingagoðorð í Eyjafirði“. Mannaforræði þetta hlýtur að hafa verið meðal þeirra goðorða, sem Þorgils skarði og Þorvarður Þórarinsson deildu um. Hér mun Þor- varður Þórðarson í Saurbæ hafa haft nokkra aðild, því að líkur

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.