Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1949, Page 43

Andvari - 01.01.1949, Page 43
andvahi Örgumleiði, gerpir, Arnljótarson ð.l Þorvarð Þórarinsson, og það er sjálfsvörn. Frásögnin af viðskiptum Skarphéðins og Höskulds Hvitanesgoða er kjarn- inn í Njálu. Enda mun Njála fyrst og fremst vera skiáð í tilefni af ritun Þorgils sögu skarða. tTt frá því sjónarmiði, sem nú hefur verið lýst, er auð- velt að skýra, hvers vegna heitið Arnljótarson kemur fvrii i Njálu og einmitt í upphafi Víga-Hrappsþáttar. Hrappur hinn yngri í Laxdælu leitaði á náðir manns, sem kenndui var við móður sína. Það lá því beint við að láta manninn, sem liðsinnti Njálu-Hrappi, einnig vera kenndan við móður- ina, og Arnljótarson var nairtaekt auðkenni honum til handa. Þessu valda frásagnirnar í Þorgilssögu af stefnumótinu á Grund og útkomu ívars „Arnljótarsonar“. Þær ýfa upp minningar Þorvarðs Þórarinssonar um brigð Þorgils^ skarða. Að sjálfsögðu hefur Þorvarður vitað mæta vel, að ívai vai ckki Arnljótarson, heldur Englason, en liér skiptir það engu máli. Vegna þess að greinin um Ivar geymdi frumorsökina að vináttuslitunum við Þorgils og að baráttunni við hann er Arnljótarnafnið Þorvarði hugstætt, þegar hann byrjar að rita þáttinn af Víga-Hrappi og rekja orsakaferilinn að drápi Höskulds Hvítanesgoða. Með útkomu ívars, sem kallaður ei Arnljótarson í Þorgilssögu, hefst sú atburðarás, sem leiðii til dauða Þorgils skarða. Með útkomu Kolheins stýrimanns hefst sú atburðarás, sem leiðir til dauða Höskulds. Nafnið Arn- íjótarson birtist í Njálu nákvæmlega á þeim stað, sem helzt mátti við því búast. Gegnir sama mála um svarfdælsku nöt'nin: gerpir og Örgumleiði. Stefnumótið á Grund í Svarfaðardal °g útlcoma Ivars með konungsbréfið til Þorgils skarða mynda þáttaskipti í baráttunni um arfleifð Sighvats Sturlusonar, sem átti rætur sinar að rekja til skuldadómsins eftir Örlygsstaða- bardaga. Það er því einnig að vonum að mæta nafni Kolbeins l|nga þar í sögu, sem Mörður er í fyrstu kynntur ineð skap- gerðareinkennum Þorvarðs í Saurbæ, eins og þeim er týst i Þorgilssögu.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.