Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1949, Page 46

Andvari - 01.01.1949, Page 46
42 Hákon Bjarnason ANDVARI inilli fjalls og fjöru.“ Þau fáu dæmi, sem hér hafa verið dregin fram, benda í þá átt, að trúnað megi leggja á þessi orð hans. Og þegar unnt er að benda á sams konar dæmi úr nærri öllum héruðum landsins, virðist einsætt, að frá- sögn Ara sé rétt. Hann ritar lýsingu sína um tvö hundruð árum eftir að land er albyggt orðið, og þó margt skóglendið liafi eyðzt á þeim tíma, mun hann varla hafa sagt meira cn hann vissi með sanni. Máltækið hermir, að vaninn blindi menn, og því er sízt að undra, þótt margur eigi erfitt með að átta sig á því, hvernig landið hefur litið út fyrir þúsund árum, þegar horft er yfir hið hlásna og liálfeydda land, sem við nú byggjum. íslenzka björkin. Með frjórannsóknum og stuðningi gam- alla heiinilda má án efa l'á allnákvæma hugmynd um út- breiðslu íslenzku hirkiskóganna á landnámsöld. Slíkar rann- sóknir eru mjög girnilegar og gætu orðið til mikils fróðleiks. En þær verða að híða þess, að einhver vilji taka starfið upp. Miklu erfiðara verður að ltveða nokkuð á um gæði hinna fornu íslenzku birkiskóga. Að vísu má fara nærri um sunit með því að draga ályktanir af því, sem við nú þekkjum. Hæstu birkitré eru um 11 metra, og sum þeirra eru enn í all- hröðum vexti, og virðist ekkert mæla á móti, að þau muni mörg ná meiri hæð. Skógur, sem vaxið hefur frá rótum á 35—40 árum og notið fullkominnar friðunar allan tímann, hefur komizt upp í 7 og jafnvel 8 metra hæð. Slík tré geta ef til vill náð 15 metra hæða eða meira, áður en þau hafa náð þroskaaldri. En þótt einstök tré og jafnvel heilir skógar geti verið bein- vaxnir og hávaxnir, er ekki þar með sagt, að öll íslenzk björk geti tekið slíkum þroska. Svo er talið í Flóru íslands, að hér séu aðeins til tvær tegundir birkis, skógviðurinn eða iimbjörkin annars vegar, en fjalldrapinn hins vegar. Að vísu er talað um tvö afbrigði ilmbjarkarinnar, sem eiga að vera hér.víða um land, auk alls konar hastarða milli fjalldrapa og ilmbjarkar. En þessi skipting er alveg ófullnægjandi. Því

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.