Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1949, Page 66

Andvari - 01.01.1949, Page 66
62 Hákon Bjarnason ANDVARI Viðurinn er sterkur og endingargóður. Tekur hann greni- viði mikið fram. Lerkið er meginlandstré, og þvi mætti ekki að óreyndu treysta því, að það gæti náð góðum þroska hér. En raunin hefur orðið sii, að sum lerkitrjánna, sem hér hafa verið sett, bera af flestum eða öllum öðrum erlendum barr- trjám. Reynsla manna í Tromsfylki í Noregi er hin sama og hér. Lerkið hefur víða þrifizt þar með ágætum, enda þótt menn héldu upphaflega, að úrkoman kynni að vera of mikii fyrir það. Varla er þó vafi á, að lerkið kann betur við sig fyrir norðan og austan heldur en sunnan lands. Aður hefur verið skýrt frá, hvaða þroska nokkur hinna elztu lerkitrjáa hafi tekið á Hallormsstað. En árið 1933 kom eitt pund af lerkifræi hingað, sem safnað hafði verið í nánd við Archangelsk í Rússlandi. Var því sáð í gróðrarstöðina á Hallormsstað, en á árunum 1937—1939 voru rúm 6000 þeirra sett í nærri 1,5 hektara lands í skóginum sunnan Atlavíkur. Þessi tré hafa þrifizt með þeim ágætum, að nú er þarna sam- felldur lerkiskógur um 4 metra á hæð að meðaltali. Mörg trjánna eru um og yfir 5 metra á hæð. Öll eru trén í mjög örum vexti, og hér mun ekki þurfa að bíða marga áratugi, unz góður nytjaviður fæst úr þessum stað. Æskilegt væri að auka ræktun lerkis, en fræ hefur ekki fengizt af þessum slóð- um síðan, og vafasamt er, hvort það muni fást fyrst um sinn. Hins verðum við að bíða ein 20 ár, að þessi tré fari að bera fræ. Úr Norður-Noregi og austan úr Evrópu getum við, ef ham- ingjan er okkur hliðholl, fengið þrjár barrviðartegundir, sem allar hafa náð noklcrum þroska hér á landi, en munu geta gefið enn betri raun. Slíkt er því góð viðbót við annað, sem fæst frá Vesturheimi. Á Suður- og Suðvesturlandi ætti því að mega rækta þessar trjátegundir með góðuin árangri: Sitkagreni, fjallaþöll, livít- greni, marþöll, skógarfuru, rauðgreni og enn fremur sums stað- ar fjallaþin, contortafuru og alaskasedrus. En á Norður- og Austurlandi: Lerki, fjallaþöll, hvítgreni, skógarfuru, rauð- greni og sennilega einnig fjallaþin og contortafuru. Hér ætti því að vera unnt að rækta allt að 9 mismunandi tegundir barr-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.