Stúdentablaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 6
Ó, ísland, fagra œttarbyggö,
um eilífð sé pín gæfa tryggð,
öll grimmd frá þinni ströndu styggð
og stöðugt allt pitt ráð.
Hver dagur líti dáð á ný.
Hver draumur rœtist verkum í,
svo verði íslands ástkœr byggð
ei öðrum pjóðum háð.
Svo aldrei framar íslands byggð
sé öðrum þjóðum háð.
& # #
Syng, frjálsa land, pinn frelsissöng.
Syng fagra land pinn brag
um gœfusumur, Ijós og löng,
um laufga stofna, skógargöng
og bættan barna hag.
Syng unaðssöngva, íslenzk pjóð,
syng um pitt föðurland,
með fornar sögur, frœgan óð,
hið frjálsa Alping, mennta sjóð
og norrœnt bræðraband.
Syng íslands þjóð — og pakka afl
í púsund ára raun.
Við ólög pung og ölduskafl
var unnið pinnar gæfu tafl
og langpreyð sigurlaun.
Syng frelsissöngva, frjálsa þjóð,
við fánans bjarta pyt.
Lát aldrei fölskvast œskuglóð,
ver öllu pjáðu mild og góð.
Lát ríkja ró og vit.
4
STÚDENTABLAÐ