Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 17.06.1944, Qupperneq 40

Stúdentablaðið - 17.06.1944, Qupperneq 40
Bjaini Ásgeirsson alþingismaður: ISLENZKUR LANDRONAÐUR Stutt yfirlit um liðnar aldir. Það má segja að saga íslenzka landbúnað- arins og íslenzku þjóðarinnar, sé ein og hin sama allt fram á síðari hluta 19. aldarinnar. Þjóðin var bændaþjóð frá upphafi vega og yfirgnæfandi meirihluti hennar hafði fram- færi sitt af landbúnaði fram undir aldamótin 1900. Þó að hér væri jafnan stundaður veiði- skapur meðfram landbúnaðinum, þá var sú starfsemi lengst af sem einn liður í störfum bændanna, sem sóttu, eða létu húskarla sína sækja á sjóinn og fara til veiðifanga vissa tíma árs, og færa þá björg í búið. Einnig var þá stundaður margskonar iðnaður á heimil- unum samhliða öðrum bússtörfum einkum vetrarmánuðina. Þannig voru bændurnir allt í senn, bændur, sjómenn og iðnaðarmenn. Þeir voru engin sérstök stétt, heldur þjóðin sjálf. Þegar líða tekur á 19. öldina, fara að ger- ast nokkrar breytingar í þessum efnum. Sjáv- arútgerðin færist nú smám saman í aukana. Sjóþorpin stækka og önnur ný myndast. Smám saman skapast hér íslenzk sjómanna- stétt, er einvörðungu sinnir því starfi. Um svipað leyti rís upp ný starfsstétt í þjóðfélag- inu, verzlunarstéttin, og færist fljótt í auk- 38 ana. Bráðlega skýtur svo upp kolli visir að íslenzkri iðnaðarstétt. Með eflingu íslenzkrar bankastarfsemi upp úr aldamótunum fleygir þessari þróun fram. Fjármagnið dregst ó- sjálfrátt að hinum nýju starfsgreinum, er reyndust arðgjöfulli en landbúnaðurinn með sínum aldagömlu starfsaðferðum. Fram- leiðslutæki sjávarútvegsins fullkomnast stig af stigi. Fyrir aldamótin höfðu seglskúturnar leyst árabátana að nokkru leyti af hólmi, og síðar taka togararnir og vélbátarnir við af þeim. Bæirnir þjóta upp hver af öðrum með ný og fjölbreytt atvinnuskilyrði, en starfshættir haldast lítt breyttir við landbúnað, og um- bætur þar eru stórstígar lengi vel. Þyrpist nú fólkið úr sveitunum til kaupstaða og sjávar- þorpa, en að sama skapi fækkar þeim, sem landbúnað stunda. Eftirfarandi tölur tala skýru máli um þessa þróun: Árið 1880 stunduðu landb. 73.2% þjóðarinnar — 1900 — 1920 — 1930 — 1940 — — 51. % — — — 42.9% — — — 35.8% — — — 30.0% — Þegar endurreisnarbarátta þjóðarinnar tók STÚDENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.