Fálkinn - 17.12.1932, Blaðsíða 24
20
F Á L K I N N
Lystigarðurinn á Akureyri — með gosbrunni i miðju.
Jónsson alþm., faðir Jóns bónda
á Munkaþverá, föður Stefáns
bónda þar, einarður maður og
prýðilega gefinn. Sveinn Skúla-
son, cand. phil., tók við blaðinu
1856 og lijelt því þar til 1861.
Hann var gáfaður maður og
ritfær, og varð Norðri áhrifa-
mikið blað í höndum hans.
Fyrstu (og bestu) palladómar
um þ ngmenn hjer á landi komu
út i Norðra 1859, og reit Sveinn
þá, en hann var þá orðinn þing-
maður.
Árið 1862 hóf Norðanfari
göngu sína undir stjórn Björns
Jónssonar, áður ritstjóra Norðra.
Kom það blað út samfleytt í 24
ár.
Kirkja var reist á Akureyri
fyrst 1862, og stendur hún enn
— Byggingarnefnd var sett fyr-
ir Akureyri 1857. í þessari
fyrstu byggingarnefnd staðar-
ins áttu þeir sæti: Eggert Briem
sýslumaður (búsettur á Esp r
hóli), E. E. Möller verslunar-
stjóri (faðir Friðriks póstmeist-
ara f 1932, föður Ólafs ritstjóra
í Rvík og þeirra systkna), Sig-
urður Sigurðsson trjesmiður,
J. G. IJavsteen (faðir Júlíusar
amtmanns og Jakobs kaupm. og
konsúls) og Björn Jónsson rit-
stjóri.
Akureyri varð sjerstakt sátta-
umdæmi 1853.
VII. Akureyri verður kaupstaður.
Það var 1855, að hafin var
barátta fyrir því af hálfu Akur-
eyringa, að þeir fáj í sínar hend-
ur stjórn bæjarmálanna. Sveinn
Skúlason flutti málið á þing:
1859. Frumvarpinu var mikið
breytt á þingi og þannig afgreitt.
Stjórnin synjaði því staðfesting-
ar, þótti það of frjálslegt, en
lagði nýlt frv. fyrir þ ngið 1861.
Þáð var afgreitt frá Alþingi með
þeim breyt ngum, sem stjórn-
inni geðjaðist ekki að. Gekk hún
fram hjá bænarskrá þings ns, en
gaf út, eftir eigin geðþótta reglu-
gerð um að gera verslunarstað-
inn Alcureyri að kaupstað og
■’m stjórn bæjarmálefna þar,
29. ágúst 1862. Eftir þessari
reglugerð var bænum stjórnað,
þangað til í árslok 1884. —
Fyrstu bæjarstjórn Akureyr-
ar skipuðu þeir E. E. Möller
verslunarstjóri, Jón Constant
Finsen hjeraðslækn r. Jón Chr.
Stephánsson timburmeistari, Ari
Sæmundsson' umboðsmaður og
Jóhannes Halldórsson cand.
theol. Átti nefndin fyrst fund
með sjer 17. apríl 1863.
Jóhannes Halldórsson var lengi
barnakennar., og síðar skólastjóri
á Akureyri, bróðir sira Daniels
á Hrafnagili, síðar á Hólmum.
íóhannes var hinn mesti merkis-
maður. — Jón Finsen var lækn-
:,r á Akureyri frá 1856—1866.
Þótti hann afbragðs læknir, og
varð seinna merkilegur í Dan-
mörku, en út af megnri misklið
við Pjetur amtmann Havsteen
liröklaðist hann hjeðan af land:
burt. — Hinna bæjarfulítrú-
anna hefir áður verið getið. —
Meðal annara merkra borgara
um þessar mundir og síðar má
nefna B. Steincke verslunar-
stjóra. Hann var hvatamaður að
stofnun barnaskóla á Akureyri,
stóð framarlega um hverskonar
nauðsynjaframkvæmdir, var
bókavörður amtsbókasafns ns,
kendi ungu fólki dans og veitti
tilsögn í guitarspili, hvorttveggja
endurgjaldslaust. Hann var
fyrsti sáttamaður á Alcureyr'.
Honum fórst alt vel hjer. Hann
fiutti í bæinn 1852.
Stefcin Oddsson Thoraren-
sen var fyrsti bæjarfógeti á Ak-
ureyri, varð sýslumaður við
burtför E. Briem 1859. Hann
gegndi embætt nu rúm 30 ár og
þótti hinn mesti öðlingur og
langt á undan sinum tíma um
meðferð sakamanna. Árið 1858
kom Carl Johan Höepfner í bæ-
inn seni verslunarfulltrúi fyr r
Pr. Guclmann, er þá hafði
(1857) keypt verslun föður síns,
Joh. Gudmann. Kemur liann
mikið við sögu bæjarins. Höepf-
ner dó 1901. Hann efldi til
samtaka meðal kaupmanna um
liátt verð á útlendum varningi
og lágt verð á innlendri vöru.
— Þótti bændum ilt að búa und-
:,r þessu, og dró það til sam-
taka þeirra í millum, undir for-
ustu Tryggva Gunnarssonar.
L’pp úr þeim samtökum reis
Gráinufjelagið 1870. Hóf það
verslun á Oddeyri 1872, eða fyr-
:'r rjettum 60 árum. Fyrstur
reisti hús á Oddeyri Lárus Hall-
grímsson, bróðir sr. Svein-
biarnar Hallgrímssonar, um
1860.
Jón Borgfirðingur kom í bæ-
inn 1862. Iiristján Magnússon
tómthúsmaður, faðir Magnúsar
ráðherra og þeirra bræðra,
fiutt, til bæjarins 1854 og bjó
bar siðan alla æfi. — 1875 tólc
Skafti Jósefsson að gefa út
Norðling á Akureyri.
1868 kom II. Schiöth brauð-
gerðarmaður i bæinn og var
þar upp frá því til dauðadags.
Hafa ættingjar hans mikið gert
fyrir Akureyr:, sjálfur hann og
kona hans, er stofnaði Lysti-
garðinn og plantaði í hann eig-
i.. hendi.
Bcirnaskóli var stofnaður á
Akureyri 1871 og spítali 1874.
Gaf Gudmann hann bænum og
umhverf,, enda ber spítalinn
enn nafn þessa stofnanda sins,
,;Gudmanns Minde“. -— Ráðhús-
ið gamla i gilinu, sem enn
stendur, og jafnframt er fang-
elsi, var reist 1874. Var Amts-
bókasafnið þá flutt þar inn.
Sparisjóður var stofnaður i
bænum 1876. Framfarafjelag
var stofnað í bænum 1879. —
Árið eft r hóf blaðið Fróði
göngu sína á Akureyri, undir
ritstjórn Björns Jónssonar, syst-
ursonar Einars Ásmundssonar i
Nesi. Björn kemur mikið við
sögu kaupstaðarins í 40 ár sem
prentari, blaðamaður, bæjarfull-
trúi og lögregluþjónn.
í ársbyrjun (10. jan.) 1884
var stofnuð á Ákureyri fyrsta
Goodtemplarastúka á Islandi,
ísafolcl. Stofnandinn var Norð-
maður, Ole Lied, en aðalkraftur
og forgöngumaður Reglunnar
á Akureyrj, var Friðbjörn
Steinsson bóksali, gáfaður mað-
ur, einn af allra nýtustu borgur-
um bæjarins, bæði fyrr og síðar
(t 1918).
Bærinn tók ótrúlega litlum
framförum rúm 20 ár, eftir það
að hann fjekk kaupstaðarrjett-
indj. Aðaláhugamál bæjarstjórn-
arinnar alt þetta tímabil (1862
—1885) var að varna því, að
fátækraframfæri færi vaxandi,
einkum með því að hindra flutn-
ing tómthúsmanna í bæinn.
Eggert Laxdal verslunarstjóri
kom i bæjarstjórn 1887 og Jak-
ob Havsteen, síðar kaupmaður,
litlu síðar. Þeir tveir, ásamt
Friðhirni Steinssyn:) og Jóni
Chr. Stephánssyni, voru einna
álirifamestir borgarar bæjarins
undir 40 ár.
Stofnendur Framfarafjelags-
ins voru þeir Friðbjörn Steihs-
'son og Eggert Laxdal. Kom það
á fót sunnudagaskóla fyrir :ðn-
nema og aðra, efndi til leikfim-
iskenslu og Ijet halda uppi al-
þýðufyrirlestrum. Frú Schiöth
lióf ljósmyndagerð á Akureyr:
milli 1870 og 1880. Um þær
mundir var farið að leika (sjón-
leikir), og var fyrst leik ð á
dönsku. Helstu leikeridurair
voru frú Schiöth og J. V. Hav-
steen. Af merkum borgurum,
sem komu i bæinn fyrir 1880,
ber að nefna Magnús Einarsson
organista, enn á lífi, brautryðj-
anda söriglistar á Norðurlandi,
Magnús Jónsson gullsmið, er
styrkt hefir ýmislegt í bænum
rausnarlega, járnsmiðina Sig-
rrð Sigurðsson og Jósef Jó-
hannesson, Snorra Jónsson, sið-
ar kaupmánn, og Jóhannes
Jónsson bátasm ð, föður Dóm-
hildar, ekkju Magnúsar ráð-
herra, Stephán Stephensen um-
boðsmann, Júlíus amtmann
Havsteen, Chr. Jolinasen kaup-
mann o. fl. — Fyrsti prestur,
búsettur í bænum, var sr. Guð-
mundur Helgason, síðar pró-
fastur í Reykholti. Hann kom
hingað 1880, eftir brottför síra
Daníels á Hrafnagili. Sr. Guðm.
þótti hjer sem annarsstaðar á-
gætur maður og naut að mak-
oglekum mikillar hylli og yirð-
ingar.
Um 1870 hafði Gudmann náð
hjer um bil allri verslun á Ak-
l reyri undir sig, þó að undir
tvemur nöfnum gengi: Gud-
n.ann og Höepfner, og 1875 náði
hciin ennfremur valdi á Hav-
steens verslun. Má því nærri
geta, hve voldugur Gudmann
■ar um þessai- mundir í bæn-
um.
Fyrstur verslunarstjóri Gránu-
ljelagsins á Oddeyri var Jósef
Blöndal, en við tók af honum