Fálkinn - 17.12.1932, Side 42
38
F Á L K I N N
Klæðaverksmiðjan Gefjun á Akureyri, eign S.í. S.
lagssamtök áttu upptök sín í
-■ingeyjarsýslu eins spratt og
ar liinn fyi'sti vísir til allsherj-
rsamtaka landsmanna í sam-
vinnumálum. Jafnskjótt og
kaupfjelagshreyfingin hafði náS
útbreiðslu til næstu hjeraöa
hófu Þingeyingar viðleitni um
að koma til leiðar samstarfi
fjelaganna. Voru þau samtök i
fyrstu andlegs eðlis en náðu
brátt til framkvæmda um sam-
eiginleg innkaup og sölu inn-
lendra framleiðsluvara. Þótti þó
sjerstaklega miklu skifta, að vel
tækist með að vinna markað
fyrir framleiðsluvörurnar. Arið
1913 var á aðalfundi Sambands
íslenskra samvinnufjelaga í
Ystafelli lagt fast að Hallgrími
Ivristinssyni um að taka að sjer
erindrekastarfið fyrir fjelögin.
Taldi liann sig að vísu hafa
ærið verkefni við Kaupfjelag
Eyfirðinga, en ljet þó til leið-
ast um að eiga hlut að vörusöl-
unni fyrst um sinn. Gegndi
liann síðan erindrekastarfinu
iafnframt því að veita Kaup-
íjelagi Eyfirðinga forstöðu
þangað til á aðalfundi fjelags-
ins 1918 að liann kvaddi fjelag-
ið til þess að takast á hendur
forstjórn Sambands ísl. sam-
vinuufjelaga, sem liafði þá tek-
ið miklum vexti og fært út
starfsemi sína. Hafði Sigurður
Kristinsson bróðir Hallgríms,
verið önnur hönd hans á þess-
um árum og gegnt fram-
kvæmdastjórnarstarfinu í fjar-
veru hans. Enda tók hann nú
við forstöðu Kaupfjelags Ey-
firðinga við brottför Hallgríms
og síðar við forstjórn Sam-
bandsins við lát bróður síns
árið 1923.
Afrek Hallgríms Kristins-
sonar í samvinnumálum lands-
manna voru þau mestu, sem
unnin hafa verið af einstökum
manni. Hann hóf nýja stefnu
í skipulagi og starfsháttum sam-
vinnufjalaga, sem reyndist hag-
nýt og sigursæl, hann bygði
upp í Eyjafirði eitt hið sterk-
asta kaupfjelag landsins og
hann átti höfuðþátt í að byggja
i pp samvinnusamtök lands-
manna og má telja að Samband
lenskra samvinnuf jelaga sje
um form og starfsháttu að
mestu óbreytt verk hans enn
þann dag í dag.
Eins og fyr var greint var
Kaupfjelag Eyfirðinga, undir
forustu Hallgríms Kristinssonar
eitt hið öflugasta samvinnufje-
lag landsins. Hafa eftirmenn
Hallgríms í fostjórastöðunni,
Sigurður Kristinsson og núver-
andi forstjóri þess, Vilhjálmur
Þór, haldið vel í horfi, svo að
fjelagið hefir síðan eflst mjög
og fært starfsemi sína út til
fleiri greina. — Fer hjer á eft-
ir örstutt yfirlit um starfsþróun
fjelagsins, en hún hefir verið
mörg ár stórstíg einkum á síð-
ustu árum.
Auk hins eldra verslunarhúss.
þar sem viðskifti fjelagsins voru
lengi rekin hefir fjelagið ný-
lega reist á Torfunefi eitt af
stærstu verslunarhúsum á land-
inu af nýjustu gerð og hið
/andaðasta. Hús þetta er fjór-
lyft. A neðstu liæð eru brauð-
i’ús, vefnaðarvörubúð, járn- og
glervörubúð og nýlenduvöru-
búð. Á annari hæð eru skrif-
stofur fjelagsins, skrifstofur
Eyjafjarðarsýslu og útbú Bún-
aðarbankans. Á þriðju hæð
saumastofa Gefjunar og íbúðir,
á fjórðu hæð íbúðir og stór
fundarsalur fyrir fasta starfs-
menn fjelagsins, sem eru nú um
90 manns.
í stórri sambyggingu við
Kaupvangsstræti er kornvöru-
geymsla fjelagsins og kjötbúð,
sem fjelagið hefir rekið síðan
árið 1910. í þessu húsi var og
áður fyrri slátrunarhús fje-
lagsins. En árið 1928 reisti fje-
lagið stórt og vandað slátrunar-
hús á Oddeyrartanga. Keypti
það jafnframt frystihús og haf-
dsipabryggju af „Hinum Sam-
einuðu Islensku Verslunum" þar
á tanganum. Hefir það siðan
ækkað og bætt frystihúsið og
aukið við bygginguna. — Þar
sem áður var slátrunarhús við
Kaupvangsstræti kom fjeíagið
fyrir vjelum og tækjum Mjólk-
ursamlags Kaupfjel. Eyf., sem
var stofnað um þær mundir. Eru
vörur þessa samlags kunnar um
dt land og njóta einróma álits
sem ágætisvörur.
Árið 1930 reisti fjelagið ný-
tísku smjörlikisgerð við Kaup-
vangsstræti. Mun hún vera ein
af stærstu og vönduðustu smjör-
líkisverksmiðjum landsins. Það-
an kemur smjörlíkið „Freyja“.
Enn hefir fjelagið rekið brauð-
gerðarhús siðustu 2 árin.
í hinu eldra verslunarliúsi
fjelagsins við Hafnarstræti er
sölubúð þar sem seldar eru ýms-
ar vörur. Auk þess hefir fje-
lagið árið 1919 reist við Hafn-
/irstræti geymslu- og verslunar-
hús fyrir byggingarefni alls-
konar. Er það þrílyft hús, 25
m. langt. Hefir verslun fjelags-
ins með þá vöru aukist mjög
hin síðustu ár og má telja að
fjelagið reki nú einu fullkomnu
verslunina með þær vörur á
Norðurlandi.
Auk þess, sem nú hefir verið
talið hefir Kaupfjelag Evfirð-
inga umsjón með rekstri nokk-
urra fyrirtækja Sambands isl.
samvinnufjelaga á Akureyri.
Má þar fyrst telja Klæðaverk-
smiðjuna Gefjuni er Samband-
ið á og rekur í sambandi við
liana stóra saumastofu. Þá hefir
Sambandið rekið gæruverkun-
arstöð á Akureyri um allmörg
ár. Enn liefir Sambandið reist
þar Kaffibætisverksmiðju. Kem-
ur þaðan kaffibætirinn ,Freyja‘.
Loks er Sambandið að reisa á
Akureyri sápugerð, sem er að
taka til stai'fa um liessai- mund-
ir.
Við Kaúpfjelag Eyfirðinga og
slarfsgreinár Sambandsins á
Akureyri vinna nú 140 fast-
ir starfsmenn.
Kaupfjelag Eyfirðinga er nú
stærsta kaupfjelag landsins og
hefir verið það um alllangt skeið.
Er fjelagið stærsta verslunar-
fyrirtæki á landinu utan Reykja-
víkur og eitt meðal stærstu fyr-
irtækja landsmanna.
Fjelagið liafi á sínum tíma
l'orgöngu um nýtt samvinnu-
skipulag á landi lijer. Það hefir
ávalt staðið í fremstu röð um
að færa samvinnuna yfir á fram
leiðslusviðið. Þannig reisti það
1928 fyrsta nýtísku mjólkur-
vinslubúið á landinu. Hefir
starfsemi þess á síðustu árum
færst til fleiri og fleiri greina
sem horfa til aukinnar sjálfs-
bjargar, hagsældar og menn-
ingarsamtaka alþýðu manna á
fjelagssvæðinu.
(Jr sláturhúsi Kaupfjelags Eyfirð-
inga, Akureyri.
HÚSGAGNAVERKSTÆÐI
HJALTA SIGURÐSSONAR
Hafnarstræti 79. — Akureyri,
framleiðir húsgögn af ýmsum gerðum svo sem:
Borðstofu-, svefnstofu-, dagstofu-, og skrif-
stofu-húsgögn o. fl.
Alt unnið úr þurkuðum við. Húsgögn send gegn eftir-
kröfu ef óskað er. —
Verð og vörugæði þola allan samanburð.
H. SIGURÐSSON
•CD4OK=>4O»C3K=>K3«OK=>«O«C=MOK=^0C3K=>tC3K=HC3«O*O«C3*0«0«C3K=M
I SAUMASTOFA Stefáns Jónssonar f
* tekur að sjer saumaskap á allskonar karlmannafatnaði, I
: sömuleiðis aðgerðir á fatnaði, pressun og hreinsun. ?
| ÖLL VINNA FLJÓTT AFGREIDD OG MJÖG ÓDÝR |
♦ Virðingarfylst ,
| STEFÁN JÓNSSON |
♦O*0K340*O4OK3tOW=MO»O«OK3*aOK=WaK3tC3K=5»C3K=>»CD4CD«0*CD*