Fálkinn - 08.05.1963, Síða 12
mann þar sem Eyþór Stefánsson er.
Án hans er hætt við, að leikstarfsemi
væri ekki eins mikil hér á Króknum
og raun ber vitni um.
— Er ekki mikið sama fólkið sem
stendur í þessu?
— Jú, það er nú gallinn við þetta að
mörgu leyti. Þá er hætt við, að menn
þreytist. Við sýnum ekki færri en tvö
leikrit á ári, um jólin og svo á Sæl-
unni og stundum oftar. Menn verða því
hlutverkaháir hér.
— Hver undirbýr Sæluna?
— Til skamms tíma hefur hér verið
aðeins eitt samkomuhús, Bifröst, og
stjórn þess hefur undirbúið dagskrána.
Það eru kvikmyndasýningar hvern
dag, leiksýningar, samsöngur og svo
skemmtanir félaga. Nú er komið hér
annað hús, Alþýðuhúsið, og það hefur
sitt prógramm.
Við gengum upp á sviðið. Tjaldið var
dregið fyrir, en við heyrðum að fólkið
var farið að streyma inn, þótt ekki væri
nema stundarfjórðungur frá því að
karlakórinn hætti söng sínum. Þeir voru
að ljúka við að koma tjöldunum fyr:r
í fyrsta þáttinn, baðstofunni. Það vakú
furðu okkar hvað þeir voru fljótir að
þessu og eins hvað tjöldin voru góð.
— Hver gerir þessi leiktjöld?
— Hann heitir Jónas Þór Pálsson.
— Hefur hann eitthvað fengizt við
þetta að ráði?
— Hann hefur ekki lært neitt til þess
og aðeins fengizt við þetta sem áhuga-
12
FALKINN