Fálkinn - 04.01.1965, Qupperneq 7
Konan á myndinni heitir Michele
Morgan, frönsk kvikmyndaleikkona, er
iðulega hefur sézt hér í kvikmyndum.
Maðurinn, sem er með henni á mynd-
inn, heitir Bernhard Oury og er fram-
kvæmdastjóri fyrir einhverju fyrirtæki
suður í Frakklandi. Þau hafa þekkzt í
nokkur ár og verið að sögn ágætir vinir.
Svo var það s.l. sumar, að leikkonan
var að leika í kvikmyndinni „Landru“.
Eitt atriði myndarinnar er tekið í Fen-
eyjum, og þegar verið var að vinna að
því, átti Bernard leið þar um og dvaldi
þar nokkurn tíma. Þá felldu þau hugi
saman, eins og sagt er, og brúðkaup
þeirra stendur nú fyrir dyrum, ef það
hefur þá ekki þegar farið fram.
VILL EKKI EINHVER HJÁLPA
ÞESSARI STLLKIJ?
Þessi stúlka, sem við birtum myndir af, heitir Hellen Lui og segist
vera tuttugu ára gömul. Hún vinnur við það á daginn að selja appelsín-
ur og aðra ávexti úr vagni, sem hún hefur á aðalmarkaðstorginu í Hong-
kong, þar sem hún á heima. Á kvöldin selur hún ferðamönnum á hótel-
inu Miramar Arcade minjagripi. Hún segist eiga sér einn draum: Hún
vill gjarna komast til Norðurlanda, helzt Noregs eða Svíþjóðar og fá
þar vinnu. Ekki sem ljósmyndafyrirsæta eða sýningarstúlka, heldur sem
barnfóstra og fóstra bláeyg og ljóshærð börn. Og hún spyr, hvort ein-
hver vilji ekki útvega sér þannig vinnu. Hún tekur það fram, að hún
hafi engan áhuga á að passa stóra stráka, þótt þeir séu ljóshærðir og
bláeygir.
v.-.-v •• '•.-vy
\. •• v
FALKINN
7