Fálkinn - 04.01.1965, Síða 18
Einhvern veginn er það svo, að jafnvel
hreinustu skussar eiga ekki svo erfitt með
að þekkja Ford frá öðrum bílum. Þessir
Fordarar, sem skarta hér á síðunni eru frá
Kr. Kristjánssyni — Taunus 20 m, Consul
Cortina og Consul Corsair.
Það er rétt að gera Consul Corsair sérstak-
lega að umtálsefni. Þetta er mjög fallegur
bíll er kostar frá kr. 175.500,00 — 191.500,00.
(Takið ekki of mikið mark á verðinu, því
söluskattur og leyfisgjald getur ruglað þess-
ar tölur fyrr en varir). Fordmenn lögðu
mikla vinnu í að gera þessa bifreið sem
bezt úr garði, lágu yfir verkefninu í 21 mán-
uð. Smíðaðar voru átta bifreiðar mismun-
andi í útliti og af þeim var ein valin á mark-
aðinn; það var sú bifreið, sem einn mætur
maður sagði um: „lítur út fyrir að vera á
ferð, þótt hann standi kyrr.“ Og þeir segja
ennfremur í auglýsingabæklingi: Ef þú tek-
ur þúsund myndir af Corsair, hverja frá ólík-
um sjónarhóli þá muntu ekki fá eina einustu
ljóta mynd, eða sjá eina einustu ljóta línu.
Það er semsagt ekki minnimáttarkennd-
inni fyrir að fara hjá þessum höfðingjum,
enda ástæðulaust, þar sem þeir virðast hafa
unnið gott verk.
nýir bilar
Consul Cortina 2ja dyra
kostar kr. 155.500.00 og er
miðstöð innifalin í verðinu.
Consul Corsair 2ja dyra
kostar frá kr. 175.500.00 til
185.500.00 og er miðstöð
lnnifalin i verðinu.
Taunus 20 M er rennilegur bíll
eins og sjá má á þessari mynd.
Þessi kostar kr. 228.000.00 (sam-
kvæmt síðustu verðskrá). Vélin
er 6 sílindra og 95 ha.
18
FALKINN