Fálkinn - 04.01.1965, Page 19
Fiat-bifreiðarnar eru vel þekktar hér á
landi, einkum Fiat 1100, sem hefur verið
einna mest seldur hér. Alls hafa verið seldar
hér um 500 Fiatbifreiðar. Það eru margir,
sem ekki vita, að Fiatverksmiðjurnar eru
meðal elztu fyrirtækja í bílaiðnaðinum —
hafa starfað ein 65 ár.
„Bíll dagsins,“ segja ítalirnir þegar þeir
ræða um nýjasta bílinn frá Fiat, Fiat 850,
sem er hvað verð og stærð snertir milli Fiat
600 og Fiat 1100. Fiat 850 er svar við
Volkswagentýpunni, verður sennilega dálítið
ódýrari, en mjög líkur að stærð, þótt hann
sé gjörólíkur að ytra útliti.
Á sama hátt og á Volkswagen er farangurs-
rými framí, en vélin afturí. Fiat 850 er 2ja
dyra og rúmar 4—5 í sæti. Hann virðist
mjög rúmgóður og það er kostur að hægt
er að leggja niður aftursætið til að koma
fyrir rúmfrekum farangri. Vélin er 4ra síl-
indra, 40 ha. og gírkassinn er fjögurra gíra.
Hámarkshraði er 120 km. á klst.
Að sjálfsögðu er búið að reyna bílinn í
hitabelti Afríku og á Suðurheimskautinu.
Orka, sem hefur umboð fyrir Fiat, á von
á Fiat 850 með vorinu.
slSíSgiSls
Wmm
tllÉllÍilllllll
Si. ’ '
iilitÁÍ:
ÍSáv1513:II::;
«
Hér sést hvernig vélin er staðsett og undirvagninn byggður á Fiat 850
Þannig lítur Fiat 850 út.
Þetta finnst okkur á rit-
stjórninni afburða fallegur
bíll, en hann er af gerðinnl
Fiat 2300 og kostar dálítinn
pening, líkl. 330—350 þús-
und kr. Véiin er 150 ha. og
mestur hraði 190 km á klst.
Það er enginn slíkur bíll til
á fslandi, en ef einhver hef-
ur áhuga á að kaupa, þá
hlýtur Orka að hafa áhuga
á að selja. Það sakar ekki
að geta þess um leið og
kaupin eru gerð, að það
hafi allt verið Fálkanum að
þakka að þið eignuðust
svona fínan bíl!
FALKINN
19