Fálkinn - 04.01.1965, Síða 22
Þa3 er fullt hús að Hálogalandi í kvöld, og
spennan liggur í loftinu. Við heyrum hratt fóta-
tak, tramp og stympingar, vœl í flautu og köll.
Skyndilega þögn, spenna, mark. Áhorfendur
öskra og bylta sér í sœtunum: Vei-ei-ei !! eða:
0- ú-ú !! Allt eftir því, hvað við á.
Þetta er hið árlega tœki'fœri, sem Mennta-
skólanemar í Reykjavík gefa sér til að ná sér
Iítillega niðri á kennurum. Raunar hefir það
venjulega mistekizt, þar eð kennarar eru vanir
að hafa betur. Þá er bara að reyna aftur. segja
menn. Síðan reyna þeir aftur og tapa á nýja leik.
Og ekki nóg með þetta. Hér reyna deildir skól-
ans með sér í pokahlaupi, keppt er við Háskólann
í körfubolta og att kappi við lið Verzlunarskólans.
Þetta er sem sé íþróttahátíð þeirra Menntskœl-
ingaima og þykir hin bezta upplyfting.
-OG
ÆSIST
IMÚ
EIKURIISIN
Ljósm. Jóhann Vilberg
Það var ekki dónalegt, Máladeildarliðið. Þarna
standa þær í upphafi pokahlaupsins: Gunnilla,
þungt hugsi, Donna og Dóra, að gefa einhverjum
áhorfanda auga. Svar hans hlýtur að hafa verið
uppörvandi, eða a. m. k. stóðu þær sig með ágætum.
22
Reynir Geirsson f
loftköstum. Andlit-
ið lýsir í senn
spennu og æsingi.
Hallgrímur Snorra-
son er kominn
í mark, og Gunnilla
er í loftinu. Þrátt
fyrir mikla hörku
lét Máladcildin í
minnipokann,
enda höfðum við
mikla samúð með
henni. Má bezt
marka það af því,
að við birtum
einungis myndir af
liði hennar.
FALKINN