Fálkinn - 04.01.1965, Síða 33
Kopavogshæli ...
Framhald af bls. 9.
leiðslur og hjálpar. Greindar-
vísitala þeirra er frá 50 til 70
eða 75. Sé um börn að ræða
þurfa þau að njóta sérstakrar
skólagöngu og uppeldis, sem
ekki er hægt að veita í vana-
legum skóla. Lunderni þeirra
og skapgerð ræður oft úrslit-
um um hæfni þeirra og það
er reynsla Dana og Norðmanna
að 80% af vanvitum geti orðið
færir um að sjá fyrir sér ef
vel tekst til um kennslu og
uppeldi.
íslenzku orðin, sem hér eru
notuð til flokkunar eru hin
sömu og notuð eru í lögum um
fávitahasli frá 1936 og það sak-
ar ekki að geta þess að þau
lög hafa verið sétt af furðu
mikilli framsýni, því að þar er
gert ráð fyrir öllum deildum
sem nú tíðkast á stofnunum
fyrir vangefið fólk.
Á Kópavogshæli eru 114
vistmenn eins og áður er getið,
þar eru 93 fullorðnir en 21
barn og unglingar. Þessir vist-
menn skiptast þannig í greind-
arflokka: örvitar eru 62, hálf-
vitar 42 og vanvitar 10. Þessi
hlutföll sýna að aðeins er hægt
að vista þá einstaklinga sem
mestum vandkvæðum hafa
valdið. Hins vegar er þörf á
fleiri hælisrúmum fyrir þá sem
betur geta bjargað sér en þarfn-
ast þó leiðsagnar og kennslu.
Þau hjón Ragnhildur og
Björn fræða mig á þessum stað-
reyndum áður en við göngum
inn á fyrstu deildina og heils-
um upp á vistfólkið. Þótt tvö
stór hús hafi verið reist á tólf
árum er of þröngt um vist-
mennina en húsnæðisvandræð-
in leysast að miklu leyti þegár
nýja húsið verður tekið í notk-
un á næsta ári. En til þess að
bæta úr brýnni þörf hefur ver-
ið brugðið á það ráð að koma
sumum vistmönnum fyrir í
kjallara eldri húsanna.
Fyrsta stofan sem við kom-
um inn í er mannlaus. Þar búa
tveir menn, þeir eru úti við
þessa stundina. Þarna er ekki
líkt neinu hæli. Það er engu
líkara en komið sé inn í stáss-
stofu hjá tveimur jungherrum
í bænum, tveir svefnsófar und-
ir vegg, skrifborð úr tekki og
á því stendur vandað útvarps-
tæki, á veggjum eru hansa-
hillur, nokkrar bækur og ýmis
konar smámunir. til skrauts,
mynd í ramma á skrifborðinu,
teppi á gólfinu.
— Svona vildum við helzt
hafa öll herbergin, segir Ragn-
hildur, þeir sem hér búa hafa
verið allra manna lengst á hæl-
inu. Þeir kunna vel að meta
þokkalegt umhverfi, leggja
metnað sinn í að þrífa og snurf-
usa herbergið. Það er okkar
reynsla að fólkinu líði betur
ef reynt er að hafa snoturt í
kringum það. Þó er það ekki
alls staðar hægt. Sums staðar
þýðir ekki einu sinna að hafa
gluggatjöld. En með því móti
að færa þetta smám saman í
betra horf, þá læra flestir að
meta hlýlegar og smekklegar
vistarverur. Og það stuðlar
aftur að meiri hugarró og jafn-
vægi.
í næsta herbergi standa þrjú
sjúkrarúm, skrifborð og glugga-
tjöld. íbúarnir í þessu her-
bergi eru viðlátnir og fagna
okkur innilega. Hér búa þrír
bræður, systir þeirra er einnig
á hælinu. Þeir heilsa mér með
handabandi og það skín hlýja
og gleði úr andlitinu. Mér
verður á að spyrja hvort þeir
séu þríburar, það mætti halda
þeir væru einn og sami maður-
inn í þríriti, svo líkir eru þeir.
En þetta eru ekki þríburar,
aftur á móti voru foreldrar
þeirra náskyldir. Einn þeirra
gengur um gólf og verður helzt
fyrir svörum, annar situr og
leggur kapal og sá þriðji situr
einnig og fylgist með bróður
sínum leggja kapalinn. Allir
þrír eru þeir snyrtilega klædd-
ir svo hvergi er á þeim blett-
ur né hrukka, allt viðmót
þeirra einkennist af stakri
kurteisi og góðlæti. Þeir eru
hógværir og frjálsmannlegir í
senn, koma fram eins og sannir
aðalsmenn. Þeir eru aldir upp
í blásnauðu koti í einhverju
afskekktasta byggðarlagi lands-
ins.
Þeir hafa gengið til venju-
legra sveitastarfa og eru ágæt-
lega liðtækir við heyskapinn
á Kópavogsbúinu. Og Björn
rifjar upp atvik frá því í fyrra
sumar þegar hey lá'flatt á tún-
inu en útvarpið spáði rigningu.
Það var gengið að því með
oddi og egg að bjarga heyinu
og allir sem vettlingi gátu vald-
ið lögðu hönd á plóginn. Því
þótti Birni undarlegt að einn
bræðranna hélt að sér höndum
og hafðist ekki að. Björn vék
sér þá að honum og spurði
hvort hann vissi ekki að von
var á rigningu. Bróðirinn leit
þá til lofts og brosti síðan við
Birni um leið og hann svaraði:
„Ég held það verði ekkert
úr þessu.“
Og það kom ekki dropi úr
lofti í Kópavogi þann daginn,
þótt rigndi um allt Reykjanes
og Mosfellssveit.
Framhald á næstu síðu.
með
hirzlu tindir skrúliur
og aniiað smádót'?
Ef svo, þá er S41001” skáp"
urinn lausnin*
Framleiddir í þrem stœrð»
niii: 16, 24 og 32 sktiffu.
VINNUHEIMILID AÐ
REYKJALUNDI
Aðalskrifstoía
Reykjalundi, sími um Brúarland.
Skrifstofa
í Reykjavík Brœðraborgarstíg 9, sími 22150.