Fálkinn - 18.07.1966, Síða 8
^ sumt
AÐ BLA í GLERKISTL
Sumum finnst mikið í það varið, að vcra skrítn-
ir og skemmtilegir. T. d. hafa alls konar fakírar
riðið húsum í Evrópu og sýnt af sér skringileg-
heit eins og að láta grafa sig lifandi, ganga á
eldi, stinga sig í gegn og með ýmsu öðru móti.
Maðurinn á myndinni heitir Tchandra og er
indverskur fakír. Hann skemmtir mönnum með
því að gista í glerkistu og hefur þegar verið
þar í þrjá mánuði, eða eitthvað á fjórða. Kúnst-
in er fólgin í því að liggja alltaf á bakinu. Einn-
ig er til nokkurs að vinna fyrir manninn, því
hann er að reyna að slá met í þessari grein.
Nú, en fyrra metið átti hann sjálfur reyndar.
BREYTING
TIL 6ATNAÐAR
Roberto Arias er kvæntur brezku ballerín-
unni Margot Fonteyn. Þar að auki var hann
ambassador Panama í London. Rétt eftir
hjónavígsluna varð hann fyrir skoti og varð
máttlaus fyrir neðan mitti. í mörg ár hafa
þau hjónin háð baráttu fyrir heilsu hans
og nú hefur hún borið þann árangur að hann
er farinn að staulast um á fótunum, sem
annars eru orðnir visnir af notkunarleysi.
Vonir standa þó til að eftir eitt eða tvö ár
verði þeir komnir í eðlilegt horf.
RAKARI...
A GRÆNNIGREIN
Tónlistarunnendur um allan hcim kannast
við franska tónskáldið Maurice Ravel, en
ha-m samdi á sinni tíð heimsfrægan bólero.
Þessi ágæti maður varð flugríkur á tón-
srníðum sínum, en lengi mjög veikur áður
en hann dó. Hann ánafnaði hjúkrunarkon-
unni, sem annaðist hann í banalegunni öll-
um tekjum af tónsmíðunum meðan hún væri
á lífi. Hún dó og ættingjar tónskáldsins
fóru í mál til að fá tekjurnar af tónverk-
unum. Rakari, sonur hjúkrunarkonunnar,
var hinn aðilinn og dómur féll á þá leið að
hann ætti að njóta milljónanna.
8
FÁLKINN