Fálkinn - 18.07.1966, Síða 31
NÝ STJARNA
í HOLLYWOOD
ÆR mega fara að vara sig, Ursula
Andress, Jean Shrimpton og fleiri
eftirsóttar stjörnur kvikmynda og tízku-
blaða, því að nú er komin fram á sjón-
arsviðið ný gyðja sem þegar er orðin
fræg um allan heim af myndum í blöð-
um og tímaritum. Hún er leikkona, en
enginn veit enn hvernig hún leikur
nema samstarfsfólkið í fyrstu ^ kvik-
myndinni hennar, MILLJÓN ÁRUM
FYRIR KRISTS BURÐ. Þar segir hún
ekki eitt aukatekið orð því að það
er álit lærðra manna, að ekki hafi verið
búið að finna upp nein tungumál á
þeim löngu liðnu tímum.
Þetta er ástarsaga á steinöld, sam-
tölin fara fram með stunum og skrækj-
um, urri, hvæsi og ámóta hljóðum.
Hættur eru margar og geigvænlegar í
líki fornaldarófreskja og náttúruham-
fara, en að sjálfsögðu fer allt vel að
lokum. Kvenhetjan gengur um í for-
sögulegum bikinibaðfötum úr loðskinni
og snyrtir andlit sitt á nútímavísu.
Myndin mun brátt koma á markað-
inn, en aðalstjarnan er nú að leika
í þriðju kvikmynd sinni. Hún heitir
í Raquel Welch og er fædd í Chicago
5. september 1942. Faðir hennar var
efnaður verkfræðingur af fransk-
■ spænskum ættum, og Raquel ólst upp
: á góðu og glöðu heimili. Hún var falleg
strax í bernsku og varð fegurri með
í hverju árinu sem leið, dreymdi um leik-
list frá því að hún var smáhnáta. söng
dægurlög þegar hún var þriggja ára
og las upp ljóð fyrir gesti sem komu,
lék í barnaleikriti fimm ára, aðalhlut-
verk í skólaleikriti sjö ára, átta ára
byrjaði hún að læra ballett og söng í
kirkjukór, seytján ára flutti hún veður-
fregnir í sjónvarpinu, átján ára gerðist
hún módel. og nítján ára fór hún til
Hollywood. Smáhlutverk í nokkrum
Framh. á bls. 40.
| Atrifti ur steinaldarmyndinni
FALK.I NN
31