Vikan - 15.12.1960, Qupperneq 3
minnkun í að læra að dansa? Svo koma þeir
á ball og bjóSa okkur upp og hamast og hoppa
allt í kring um okkur, og alltaf eins, hvaSa lag
sem spilaS er. Svo er þaS verst, aS þeir sem
kunna ekki neitt eru duglegastir viS aS bjóSa
okkur upp.
Bláu tærnar.
Þú heldur þó ekki, að strákarnir leggi sig
niður við svo stelpulegt athæfi að læra að
dansa? Nei, og aftur nei. Þeir vilja heldur
„hamast og hoppa allt í kring um ykkur“ í
trausti þess, að danskunnáttan komi af sjálfu
sér. Þótt ég búist við, að það sé reyndar rétt
athugað hjá þeim, fellst ég alveg á, að æski-
legra væri að þeir lærðu að dansa og spör-
uðu ykkur bláu tærnar, og ekki eru þeir svo
fáir orðnir, dansskólarnir. —
Barn írá Agadir
Kæra Vika!
Nú er það eins og oft áSur, aS þaS er erfitt
aS koma orSum aS því sem mann langar til að
segja. Þannig er mál með vexti aS ég er búin
aS fá óstöðvandi löngun til aS taka ungbarn og
þaS helzt ednhvers staSar langt utan úr heimi,
til dæmis eSa helzt frá Agadir, þar sem svo
mikiS er af munaSarlausum börnum. Nú er þaS
bón min til þín kæra Vika, hvort þú gætir gefiS
mér upplýsingar hvert ég eigi aS snúa mér eSa
hvort nokkrir möguleikar séu aS koma þessu
i kring.
MeS fyrirfram þökk og beztu kveSjum.
Sigga.
Ýmsir annmarkar trúi ég að muni verða á
því, Sigga mín, en ef þú ert ákveðin í að
reyna þetta, væri þér ráðlegast að snúa þér
til Rauða krossins.
Heimfylgdin horfin
Kæra Vika!
Ég sný mér til þín, af því að ég hef séS aS
þú leysir öll vandamál. Ég skal segja þér, aS um
daginn hitti ég strák á balli, og ók hann mér
heim á eftir. Nú þarf ég endilega að hitta hann
aftur, en ég veit ekkert hvað hann heitir og
ekkert um hann annaS en það, aS hann var á
grænum Buick. Ég man ekki einu sinni, hvaSa
númer var á bilnum en hann var áreiSanlega
ekki úr Reykjavik. Hvernig á ég aS fara aS þvi
aS ná í strákinn? Mér er þaS alveg lifsnauSsyn?
Ein i vanda.
Nú fæ ég ekki betur séð en þú hafir sett
mig í vanda líka. Það eru nefnilega svo
margir Buick-bílar til á landinu, að erfitt
verður að finna þann rétta. Ef þú vissir, þótt
ekki væri annað en gælunafn á pilti, væri
það betra viðureignar. Það væri reynandi
fyrir þig að fara nokkrum sinnum aftur á
dansstaðinn, þar sem þú hittir hann, og vita
hvort hann slæðist ekki þar inn á ný. En
skyldi það nú bregðast, hef ég ekki betra ráð
að gefa þér en það, að næst, þegar einhver
ekur þér heim, leggir þú meira upp úr því
að vita hvað hann heitir og hvað hann er,
en hvaða tegund bíllinn hans er og hvernig
hann er litur.
Vist í Sviss
\
Kæra Vika!
Mig langar að vita hvort þú gætir gert mér
mikinn greiSa meS þvi aS segja mér eSa komast
aS, livort hægt sé aS komast i vist eSa létta vinnu
í Frakklandi, Sviss eSa öSrum suölægum lönd-
um til aS kynnast fólkinu og læra máliS.
Helga Jóns.
Ég hef gengið nokkra daga með vandamálið
þitt í huganum, Helga mín, án þess að hafa
fundið nokkra verulega úrbót fyrir þig. Helzt
myndi ég ráðleggja þér að skrifa ambassador
íslands í Frakklandi og leggja málin fyrir
hann, það er reglulega elskulegur maður við
að eiga. Utanáskrift til hans er Hr. Ambassa-
dor, Agnar Kl. Jónsson, Ambassade d'Islande,
124 Boulevard Haussmann 8 E., París. Gangi
þér vel og góða ferð.
Athugasemd
Nýlega var í Vikunni minnzt á innheimtu
Þorsteins Jónssonar á ReySarfirÖi í sambandi
við greiðsluerfiðleika á krepputímum. Kaupfé-
lög geta ekki afhent vörur fremur en kaupmenn,
ef enginn er gjaldgeta. í hallæri, hvort sem um
er aS ræSa pest eða óáran, semur kaupfélags-
stjórinn um einstaka skuldir til nokkurra ára
og er það hyggileg og mannúðleg aðferð, sem iðu-
lega er beitt í Kaupfélagi Héraðsbúa. Þar að
auki hefur Þorsteinn Jónsson uppgötvað sér-
stakt bjargræði fyrir bændur á Fljótsdalshéraði,
ef þeir voru orðnir fjárfáir eða jafnvel fjár-
lausir sökum skæðra fjárpesta eða óhentugs
veðurfars. Þó kom Þ. J. upp á vegum kaupfélags-
ins stórbúi með allt að 700 ám. Þennan fjár-
stofn lánaði hann fjárfáum bænum með vildar
kjörum, meðan þeir voru að koma upp nýjum
fjárstofni. Þá skiluðu þeir leigupeningnum, og
hann var notaður handa öðrum illa settum
bændum, er þess þurftu með. Mér þykir vænt um
að fá að nota tækifærið til að fræða hina mörgu
lesendur Vikunnar um, hversu ráðsnjallir leið-
togar samvinnufélaganna eru, ekki áðeins í
verzlunarmálum, heldur til að koma við þeim
tryggingum sem bezt eiga við íslenzka stað-
hætti, þegar gefur á bátinn.
Með þökk fyrir birtinguna.
Jónas Jónsson frá Hriflu.
pr jónavélarnar
ORION ELEGTRIC er fyrsta
2ja nálaborða rafmagnsprjóna-
vélin sem á markað kemur. Hún
hefur alla kosti ORION Uni-
versal, svo sem hinn vandaða
sleða sem rennur á hárnákvæm-
um brautum, spennifjöður sem
tryggir nákvæmlega jafna teigju
á garninu og þvi óvenju jafnt
prjón. Auk þess er hún drifin
með rafmótor sem stjórnað er
með fætinum eins og á sauma-
vél og hendurnar eru því lausar.
— PRJÓNIÐ BRÚÐARKJÓLINN HEIMA. —
Með ORION prjónavélinni er það leikur einn að prjóna sér
ullar- eða nælonkjóla eftir nýjustu tízku, heima í stofu.
Samkvæmiskjólar, blússur, peysur, hversdagskjólar, pils og
meira að segja brúðarkjólar úr nælon garni og með auka-
þræði úr silfri er auðvelt að prjóna á ORION.
Að sjálfsögðu prjóna Orion vélarnar öðrum fegurra prjón,
bæði í slétt- og útprjóni. í þær má nota sverasta ullargarn
og fínasta nælongarn.
Það er lögð áherzla á að hafa alltaf til reiðu í umboðinu
alla þá varahluti sem til greina geta komið og ennfremur
að hjá umboðinu starfa sérhæfðir ORION eftirlits- og
viðgerðarmenn.
ORION umboðið
Orion kjóll
Bolholti 6, sími 35124.
VIKANÍ 3