Vikan - 15.12.1960, Qupperneq 16
Eplaréttir
Eplasúpa úr nýjum eplum.
1% 1 vatn, % kg ný
epli, 1 dl sykur, %
tesk. salt, 1 rnsk.
kartöflumjöl, 1 dl
vatn. Safi úr %
sítrónu eða 1 tesk.
vanilju.
E'plin eru þvegin,
flysjuð, ef vill, skor-
in í bita (fræhúsin
tekin lir), iátin i
sjóðandi vatn og soðin, þar til þau
eru meyr Súpan er síuð, ef vili, i
gegnum gatasáld. Sykurinn er sett-
ur saman við. Jafnað er með kartöflu-
mjölsjafningi, sítrónusaíi og ef til vill
dálítið salt látið í eftir bragði. Borðuð
með tvíbökum.
Bökuð eplakaka (fljótleg).
600 gr ný epli eða 200 gr þurrk-
uð epli, 100 gr sykur, 75 gr
brauðmylsna, 50 gr smjörlíki (2
msk. rúsínur. en þeim má sleppa),
2% dl rjómi.
Eldtraust mót er smurt með
smjöri. Eplin eru flysjuð og skorin
i þunna báta. % hluti eplanna er
látinn i botn mótsins, % hluta syk-
ursins stráð yfir, því næst % hl.
brauðmylsnunnar og smjörsins i litl-
um bitum. Þannig er lagt til skiptis
og efst brauðmylsna og smjörbitar.
Kakan er bökuð við meðalhita, þar
til eplin eru meyr, um 20 mín. Borin
fram heit með þeyttum rjóma. Séu
notuð þurrkuð epli, eru þau lögð i
bleyti daginn áður. Þau eru soðin
ásamt rúsínunum með helmingnum
af sykrinum, þar til Þau eru nærri
gegnumsoðin.
Epli m/karamellusósu.
8 jafnstór epli, 50 gr rúsínur,
ávaxtasafi eða vin, sykurlögur,
S stórar makkarónukökur
Vaniljukrem.
5 dl mjólk, % stöng vanilja eða
dropar, 3 egg, sykur, 2 blöð mat-
arlím.
Karamellusósa.
150 gr sykur, möndlur.
Rúsinurnar eru lagðar í bleyti í
ávaxtasafa eða víni í lokuðu iláti yfir
nóttina Eplin eru flysjuð (fræhúsin
tekin úr), soðin í lítið sætum sykur-
legi, þar til þau eru meyr, en heil,
siðan kæld, fyllt með rúsinunum og
látin standa á makkarónukökunum,
þegar þeim er raðað á fatið. Mjólkin
er soðin með vaniljustönginni, eggin
þeytt með sykrinum (1—2 tesk.),
sjóðandi mjólkinni hellt saman við,
þeytt vel á meðan, látin yfir vægan
hita og þeytt mjög vel, annars aðskilst
kremið (má ekki sjóða). Þegar það
byrjar að stífna, er það tekið af og
matarlímið, sem legið hefur í bleyti,
látið í, — þeytt stöðugt, þar til krem-
ið er hálfkalt.
Sykrinum er hellt á heita, þurra
pönnu, látinn bráðna og hrært í, Þar
til myndazt hefur heit froða, 1% dl
af sjóðandi vatni hellt saman við,
hrært í og látið sjóða áfram nokkra
stund, kæit og hellt saman við van-
iljukremið, hellt á fatið með epl-
unum og söxuðum hnetum eða möndl-
um stráð yfir. Afgangurinn af krem-
inu er látinn í sósukönnu.
Jólabakst-
ur og
jólasælgæti
Rjómatertubotnar.
4 egg, 175 gr sykur, 50 gr hveiti,
50 gr kartöflumjöl, 1 tesk. lyfti-
duft.
Eggin eru þeytt mjög vel með
sykrinum. Hveiti, kartöflumjöli og
lyftidufti er blandað varlega saman
við, bakað strax i vel smurðum
tertumótum 1—2 t. E'innig má baka
þetta deig í hringmóti, en þá er viss-
ara að strá örlitlu hveiti eða brauð-
mylsnu í mótið. Skreytt með ávöxt-
um og Þeyttum rjóma eða ís og
ávöxtum.
Möndluterta.
4 egg, 100 gr sykur, 1-2 matsk.
hveiti, 1 tesk. lyftiduft, 100 gr
fíntsaxaðar möndlur, 1 pk. (100
gr) saxað suðusúkklaði.
Deigið er búið til á sama hátt og
rjómatertubotnarnir, möndlum og
súkkulaði blandað saman við, bakað í
tveimur tertumótum. Þegar tertan er
borin fram, er hún bleytt með ávaxta-
safa eða víni. Þunnu lagi af góðu
mauki er smurt yfir og bananasneið-
um ( eða öðrum ávöxtum) raðað yfir.
Skreytt með rjóma, banönum og rifnu
súkkulaði. Ágætt er að nota bara ann-
an botninn í tertuna og geyma hinn
þar til síðar.
Brún terta.
250 gr smjörlíki, 250 gr sykur, 1
egg, 500 gr hveiti, 3 tesk. lyftiduft,
1 tesk. kanill, 1 tesk. kakó, 1 tesk.
hjartasalt, % tesk. pipar, % tesk.
al'rahaxida, r.ijólk.
Venjulegt, hrært deig, mjólkinni er
bætt í s látt og smátt. Deigið á að
vera fremur þykkt, smurt á fjórar vel
s.-iurðar plötur, bakað við jafnan hita
og tekið strax af plötunni, lögð saman
með smjörkre.ni eða sultu og smjör-
kremi. (Smjörkrem er i uppskrift af
mommukökum í síðasta blaði.)
Hnoðuð terta.
•
500 gr hveiti, 250 gr sykur, 250 gr
smjörlíki, 1 tesk. hjartasalt, 1
tesk, kardimommur. 1 egg, kalt
vatn eftir þörfum.
Hnoðað deig, vætt út í með vatninu,
þar til það er hæfilegt, flatt út á
fjórar plötur eða bakað í mótum.
Þegar kökurnar eru kaldar, eru þær
lagðar saman með góðu mauki. Séu
botnarnir harðir, er ágætt, að maukið
sé aðeins volgt.
Góð ávaxtakaka.
175 gr smjörliki, 175 gr sykur, 3
egg, 225 gr hveiti, 2 sléttfullar
tesk. lyftiduft, hýði og safi úr 1
sitrónu, rúsinur, kúrenur og
súkkat (brytjað súkkulaði, ef
vill).
Smjörlíkið er hært vel með sykrin-
um, eggjunum hrært í einu og einu
ásamt einni matsk. af hveiti, ef með
þarf. Hveitinu er síðan bætt í smátt
og smátt ásamt hýðinu, safanum og
því, sem eftir er. Bakað i smurðu
hveitistráðu móti í um 45 mín. við
meiri undirhita (150°).
Konfektkaka.
Kakan:
4 eggjahvítur, 140 gr flórsykur,
140 gr kókosmjöl.
Kremiö:
100 gr smjör, 100 gr súkkulaði, 60
gr flórsykur, 4 eggjarauður
Framhald á bis. 41.
Jólodúkur
Gólfábreiða
Nú styttist óðum til jóla, og
hér kemur tilvalinn jóladúkur.
Efni: hvitur hör, stærð um
100x35 cm, grófieiki 10 þræðir
á 1 cin, jurtalitað haðmullar-
garn í þremur litum, rauð-
guium, grængulum og koks-
gráum, einnig fín javanál.
Byrjið að sauma miðhlómið
á stytlri kanti. Saumað er með
þremur þráðum i nálinni.
Byrjið í miðju blómi, 7 cm frá
yztu hrún á börmum.
Blómin eru höfð til skiptis
rauðgul og grængul. Saumið
nú blómin eftir teikningunni,
sem sést greinilega á I. mynd.
Atli, að i miðju blómi eru
saumuð 4 lykkjuspor út á
miili blaðanna.
Blómin eru staðsett þann-
ig, að 8 þræðir eru á milli
þeirra, þ. e. a. s. frá miðju til
miðju eru 24 + 8 + 24 = 56
þræðir.
Þegar útsaumi er lokið, er
dúkurinn faldaður með venju-
legum gatafaidi (húllfaldi),
saumuðum frá vinstri til
liægri á röngu með hvítu hör-
garni. Faldurinn er 1 cm á
Framhald á bls. 51.
Litlar gólfábreiður og renningar eiga alltaf staði á hverju
heimili. Hér kemur mjög einföld gerð slíkrar gólfábreiðu,
þ. e. a- s. prjónuð með garðaprjóni.
Bezt er að nota íslenzkt ullargarn í sauðarlitunum, gjarnan
má prjóna úr þvi tvöföldu og vinda þá saman tvo liti, prjónið
síðan ferninga. Smekksatriði er, hve við prjónum ferningana
stóra og marga, og fer það eftir því, hvaða stærð við viljum
hafa á ábreiðunni. — Hér kemur uppskriftin af ábreiðunni,
sem sést á myndinni:
Prjónið úr einföldu fjögurra þráða bandi. Fitjið upp 40 1.
á prjóna nr. 2, prjónið nokkuð fast með garðaprjóni, þar til
stykkið er um ferkantað eða 32 prjónar; fellið þá af. Prjónið
síðan 15 slíka ferninga, þá verður stærð ábreiðunnar 90x50 cm.
Saumið nú ferningana saman, og heklið eina umferð með
laufum eða fastahekli í kring. Hnýtið kögur á endana og
saumið gúmsvampsþynnu undir ábreiðuna til þess að fá mýkt
og einnig til þess, að hún haldist föst á gólfinu.
Tyllið ábreiðunni fastri við svampinn hér og þar með smá-
um sporum, svo að prjónið losni ekki frá svampþynnunni.
16 VIKAN