Vikan - 15.12.1960, Page 18
Oft er fólk, og þá ekki sizt yngra
fólkið, í vandræðum með að finna
upp eitthvað til að skemmta sér við
á jólunum á milli þess sem það belgir
sig út af góðum mat eða dundar við
að dytta að jólatrénu. Algengast er
að fólk grípi í spil, en það er margt
annað til sem hægt er að gera sér
og öðrum til skemmtunar. Hér ætlum
við að benda ykkur á nokkra leiki,
sem tilvalið er að fara í, er kunningj-
ar líta inn á jólunum.
1. Fyrst er hér leikur, sem margir
munu þekkja. Allir fara úr herberg-
inu nema einn, sem lokar dyrunum
og breytir stöðu einhvers hlutar í
herberginu. Síðan koma allir inn aft-
ur og leikurinn er i því fólginn að
finna hverju hefur verið breytt. Og
sá sem er fyrstur að átta sig á því
verður næst einn inni og breytir
einhverju öðru og svo koll af kolli.
Breytingin verður að vera nokkuð
augljós, t. d. mynd öfug á veggn-
um, skipta um skermi á lömpum,
snúa til borði o. þ. h. Að setja ein-
hvern smáhlut þar sem hann er ekki
vanur að vera og láta það duga sem
breytingu er ekki fallega gert þvi
gestirnir þekkja herbergið að sjáif-
sögðu minna en heimafólkið, og hafa
kannski aldrei áður komið á staðinn.
Og svo auðvitað er vel Þegið af hús-
ráðendum að brothættir og verðmæt-
ir hlutir, svo sem klukkur eða krist-
alsmunir séu látnir afskaptalausir.
2. í>ið bindið hring eða einhvern
smáhlut á langa snúru sem siðan er
hntftt saman þannig að hún myndar
stóran hring. Síðan raða allir, nema
einn, sér upn i hring og halda á snúr-
unni fvrir aftan bak og þegar kallað
er ,,nú" renna allir snúrunni i gegn-
um hendur sér, þannig að hluturinn
gengur frá einni hendi til annars. Sá
sem eftir var stendur aftur á móti
innl I miðiu hringsins og reynir að
gizka á hvar hluturinn er niður kom-
inn. Og er hann hendir á einhvern
á að stöðva snúruna þegar f stað og
viðkomandi sleppir snúrunni og rétt-
ir upp hendurnar. Þannig gengur það
þangað til hluturinn finnst og þá
skipta þeir um stöðu. sá sem leitaði
og sá sem hafði hlutinn. Gæta verður
hess að haga lengd snúrunnar eftir
fiölda þátttakenda, þannig að ekki
sláist neitt I hiutinn er hann renn-
ur frá manni til manns.
3. Næsti leikur er fólginn i því að
prðfa hve næm skilningarvit hvers
og eins eru. Bundið er fyrir augun
á einhverjum viðstaddra og heyrnin
fvrst prófuð. Þið framleiðið einhver
algeng hljóð, eitt i einu, t. d. burstið
skó. rifið sundur blað, klippið pjötlu,
hellið vatni f hitapoka o. s. frv. Og
sá blindi segir hver af hljóðunum
hann þekkti. Næst er prófuð lyktnæm-
in með þvf að setja alls konar hlutl
eða efni rétt við nefið á honum, t. d.
baðsalt, olíu, tómatsósu, appelsfnu
eða raksápu. Sfðan verður hann að
bragða á nokkrum tegundum matar,
til að prófa bragðskynjunina.
Meðan þessu hefur farið fram hafa
svörin verið skrifuð niður jafnóðum.
Nú er bindið tekið frá augunum á
honum og sjónln reynd. Sykur,
haframjöl, hrfsgrjón, hveiti, vindla-
aska eða eitthvað þ. h. er sett á bakka
og haldlð uppf I dálltilli fjarlægð frá
honum.
Svo er það snertiskynið. Hann er
látinn snerta snöggvast við einhverj-
um hlutum, eins og t. d. eggi, tann-
bursta, sigarettukveikjara eða tesiu.
Hver einstakur verður að ganga
undir þetta próf og þá verður helzt
að finna upp á einhverju nýju í hvert
skipti. Og sá sem hefur flest svörin
rétt vinnur leikinn.
4. Þennan leik er varla hægt að
fara I nema píanó sé til staðar og
einhver viðstaddra geti spilað svo-
lítið. Raðið stólum, sem eiga að vera
einum færri en þátttakendur I leikn-
um, þannig i röð að seta og bak snúi
á víxl sitt í hvora áttina. Síðan byrj-
ar píanóleikarinn að spila og allir
dansa kring um stólana, rólega eftir
hægum takti og hratt eftir fjörugu.
En ailt í einu hættir músíkin (spil-
arinn hefur í hendi sér hvenær það
er) og þá eiga allir að reyna að verða
sér úti um stól til að setjast á, þó
án þess að hreyfa hann, en vegna
þess að stólarnir voru einum færri
en Þátttakendurnir, verður einhver
útundan og er þar með úr leik. Nú
er einn stóllinn tekinn i burtu, músík-
in heldur áfram svo og leikurinn.
Svona gengur þetta koll af kolii, þar
til aðeins einn stóll er eftir og sá,
af tveimur sem eft.ir eru, sem krækir
I hann er sigurvegari.
Til að gera leikinn skemmtilegan
verður sá eða sú sem spilar á hljóð-
færið að taka virkan Þátt i leiknum,
þannig að spila eins fiölbreyttan
takt eins og hægt er og hætta allt I
einu þegar enginn á bess von. Spila
kannski hraðan lagstúf fvrst, I næsta
skipti bara tvo eða þrjá hljðma, síðan
langt rólegt lag og reyna þannig að
koma „dansendunum" sem mest á
óvart.
önnur hljóðfæri en píanð er ef til
vill hægt að nota, en það er mikið
óhentugra.
5. Næsta leik hafa áreiðanlega
margir krakkar gaman af að fara i.
Allir setjast I hring og einn spvr
spurningar, t. d. ..Hvað finnst bér
leiðinlegast i fari Stínu?" (eða eitt-
hvað annað svipað). Einn af við-
stöddum á að svara fvrst. (ákveðið
það fyrirfram) og verður sá að nota
orð sem byrjar á A. Næsti í röðinni
verður að bvria á B. næst.i á D, og
svo áfram stafrófsröðina eftir fjölda
þátttakendanna. Aðeins má svara með
einu orði. Svörin gæt.u orðið t. d.:
„Afbrýðisemin", „Bíladellan", „Daðr-
ið", ..Eigingirnin", „Forvitnin",
„Grobbið", o. s. frv. Leikurinn er
skemmtilegri því fljótar sem svarað
er, og hlægilegri verða svörin þvi
styttri sem umhugsunartíminn er.
6. Einn úr hópnum lætur alla hafa
pappirsblöð sem á er skrifað fyrsta
Íínan úr einhverri vísu, sem fáir
þekkja. Það sama á öll blöðin. Og
auk þess eru gefin upp endaorðin I
hverrl af hinum ljóðlínunum (rim-
orðin). Eins má búa fyrstu línuna og
rimorðin til á staðnum. Þetta gæti
t. d. litið svona út:
Ef ég væri oröinn stór
— — — — taka
— — — — mjór
— — — — vaka
— — — — sjór
— — — — aka.
Fyrst fylla allir upp ljóðlínu nr. 2
eftir eigin geðþótta og brjóta síðan
upp á blaðið svo ekkert sjáist af
henni. Því næst skipta allir um blöð
og bæta þeirri þriðju við, brjóta enn
upp á blaðið, skipta og búa til þá
fjórðu og svo áfram þar til allar lín-
urnar eru komnar. Að lokum eru öll
„ijóðin" lesin upp og getur þá komið
í Ijós hin undarlegasta samsetning.
Æskilegt væri að allir reyndu að
fylgja þeim hætti og línulengd, sem
fyrsta línan og rímorðin gefa til
kynna.
7. Einn af þátttakendunum fer út
úr herberginu og að honum fjarstödd-
um velja hinir einhvern velþekktan
málshátt. Þegar sá sem fór út. kemur
aftur á hann að geta upp á málshætt-
inum. Honum er' hjálpað á þennan
hátt: Hann spyr einhvern fyrst einn-
ar spurningar. Og svarið sem hann
fær verður að innihalda fyrsta orðið
í málshættinum. Þá spyr hann ein-
hvern annan annarrar spurningar og
fær þá svar sem inniheldur orð nr.
2 í málshættinum. Og síðan koll af
kolli. Hann má spyrja eins oft og
hann vill, en ef spurningarnar verða
fleiri en orðin í málshættinum, nefna
menn fyrsta orðið aftur og svo áfram.
Við skulum taka dæmi. Málshátt-
urinn, sem valinn var, var „Enginn
veit sína ævina fyrr en öll er“.
„Þekki ég Jiennan málshátt?"
„Já, ég 'held aö það sé ENGINN,
sem ekki þekkir hann.
„Helduröu aö ég veröi lengi aö
finna hann?“
„Eg VEIT þaö ekki.“
„Finnst þér þetta skemmtilegur
lekur?"
„Ja, hver hefur SfNA skoöun d því."
„Skemmtir þú þér vel hér í kvöld?“
„Eg ihef aldrei um ÆVINA skemmt
mér svona vel.“
„Hefuröu komiö hingaö áöur?“
„Nei, aldrei FYRR.“
„HvaÖa málsháttur er þetta?“
„Þaö má ég ekki segja, EN þú færö
eitt orö l einu.
„Hvernig á ég aö geta fundiö þetta
út?“
„ViÖ erum ÖLL aö reyna aö hjálpa
þér.“
„Er þetta langur málsháttur?"
„Hann ER ekkert mjög langur."
Hvað á ég að gefa vini mínum í
jólagjöf spyrja margar ungar stúlkur.
Og fyrir strákana er þetta líka vanda-
mál, þegar velja á gjöf handa vin-
stúlkunni.
En þetta er alls ekki svo erfitt. Því
móttakandinn mun alltaf vera mest
ánægður með einmitt þá gjöf, sem þú
valdir! En athugaðu þetta tvennt:
Gjöfin á ekki að vera dýr, ódýrar
gjafir eru alltaf heppilegri — nema
þvi aðeins að þið séuð trúlofuð eða
hafið verið mjög lengi saman. Föt
skaltu aldrei gefa, nema þá eitthvað
smávegis, hálsklúta, vasaklúta eða þ.h.
Stúlkunum þykir alltaf gaman að
fá skrautmuni eða skartgripi, þótt
ekki séu þeir alveg ekta, hálsfesti og
armband eða eyrnalokk og ilmvatns-
glas. Einnig kemur vel til greina bað-
salt, varalitur í fallegu hulstri, lítil
taska, vasaklútur með upphafsstöfun-
um hennar, greiða og bursti, askja
með greiðu, spegli, og varalit I,
„manicure"sett, hljómplata, bók kon-
fektkassi eða blómvöndur.
Dálítið erfiðara er aö velja handa
piltunum en ef þú lítur inn í íþrótta-
vöruverzlun finnur þú áreiðanlega
eitthvað sem hann hefur gam-
an af að fá. Kannski langar hann
til að eignast hljómplötu eða bók um
„hobbí", sem hann hefur áhuga á.
Kannski líka pennasett, lyklaveski,
eða skyrtuhnappa.
Við vonum að þessar fáu uppástung-
ur hjálpi þér eitthvað til að finna þá
gjöf sem veitir honum eða henni
mesta ánægju.
textinri
Hér birtum við samkvæmt ósk nýj-
an íslenzkan texta við lag eftir Frið-
rik Jónsson, sem kynnt var í útvarps-
þætti nýlega af Hljómsveit Svavars
Gests og Ragnari Bjarnasyni. Text-
inn er eftir Valdimar Hólm Hallstað.
Gömul spor.
Nú vefur mig að hjarta sínu nóttin
hlý og hljóð
og hláturmildur roði í vestri skín.
I minninganna strengjum vakna
æsku og ástarljóð,
sem eitt sinn kvað ég fagnandi
til þín.
Og manstu ekki kveldin, sem við
þráðum þú og ég,
er þræddu döggvott grasið tveggja
spor?
Þvi æskan á I sólskininu að ganga
glöð sinn veg.
Við gleymdum okkur bæði þetta vor.
En vornóttin er ungum vinum
aldrei nógu löng
Þó allir góðir vættir haldi vörð.
1 blárökkrinu hlýddum við á viltra
svana söng
við safaríkan ilm úr grænni jörð. —
Við höfum sjálfsagt vina, aldrei
verið nógu góð
og vakað helzt til stutt i heitri þrá,
Því leiðir okkar skildu fljótt við
koss og kveðjuljóð
sem kliðmjúk nóttin alein heyrði
og sá. —
Ég horfi inn i kvöldroðann því
æska mín er öll,
á örlögunum fáir kunna skil.
En þú ert fangi i dalnum þínum
bak við bláhvit fjöll
og bíður þess, sem aldrei verður til. —'
Eh hvert sinn þá er gróandinn fær
mynnst við mildan svörð
I minningum þú kemur sérhvert vor,-
Þá leiðumst við í sólskininu glöð
um græna jörð,
sem geymir okkar löngu horfin spor,-
Valdimar Hólm Hallstaö.
hljdmlist
Fyrir nokkrum mánuðum síðan
birtist I ýmsum sænskum blöðum
klausur, þar sem sagt var frá „fiasko",
sem hinn þekkti ameríski söng-
kvartett hafði gert á skemmtistöðum
vlðsvegar um Sviþjóð. Og einnig var
þess getið að í staðinn hafði verið
ráðinn nýr sænskur söngkvartett,
The Qleuuers, sem mun vera fyrstl
1S VIKAM