Vikan - 15.12.1960, Page 23
Jólin í ‘Uolly
Vér lesum Það í erlendu blaði, að þegar dreg-
ur að jólum færist kvikmyndaleikarar i Holly-
wood í þann ham að verða eins og fólk er
flest. 1 þetta eina skipti á árinu útiloka þeir
sig frá leikaralíferninu og helga sig fæðingar-
hátíð frelsarans.
AVA GARDNER
er svo heppin —
eða óheppin — að
geta haldíð upp á
jólin og afmælis-
daginn sinn í einu.
Hún er sem sagt
— eins og frelsar-
inn — fædd 24.
des. Að þessu
sinni verður hún
37 ára, miðað við
þá yfirlýsingu, sem
hún gaf í fyrra, að hún yrði þá 37 ára. (Vér
höfum ekki séð fæðingarvottorðið). Jólaóskin
hennar er: Að hún hafi fundið þann mann,
sem geti gefið henni sanna ást og hamingju ...
DANNY KAYE
hefur það fyrir
sið að bjóða ætt-
ingjutn og vinum
í mat á jóladag
og klæða sig í
jólasveinabúning,
rauða kápu, há
leðurstigvél, rauða
topphúfu og setja
á sig hvítt, sítt skegg. Hann segir, að Það sé
hans mesta gleði á hverjum jólum.
BING CROSBY
ætlar að matreiða
kalkún fyrir alla
Cr.osbya, stóra og
smáa, og rétt áöur
en kalkúninn er borinn fram, syngur hann
jólalög, og synir hans, Gary, Philip og Lindsay,
taka undir.
JAMES STEW-
ART og kona hans
eiga tvenna tví-
bura, og halda jól-
in aðeins fyrir sig
og þá. Sú venja
ríkir þar á bæ, að eftir mat á jóladag les pabbi
ævintýri H. C. Andersens um „Litlu stúlktma
með eldspýturnar".
wood
JANE' MANS-
FIELD gerir líka
heiðarlega tilraun
til þess að skapa
jól fyrir fjölskyldu
sína. Síðustu vik-
urnar fyrir jól
gerir hún litið
annað en að búa til
jólaengla, sem eiga
að skreyta jólatréð.
í>eir eru gerðir úr
glanspappír, hafa
löng, svört plast-
augnahár og plat-
ínuljóst hár. Það
er engin vafi á
því, hverjum þeir
eiga að líkjast, og
Jane dregur held-
ur enga dul á
það. „Hvers vegna
mega börnin ekki
sjá engil i móður
sinni?“ spyr hún.
Þegar rökkvar á
jóladag, sjá börn
hennar sér til mik-
illar gleði, að úti er komin fegursta hunds-
lappadrifa. En það er heldur sjaldgæft i Kali-
forníu, og þegar vel er að gáð, kemur í ljós,
að Jane hefur notað sér kunningskapinn við
tæknisérfræðinga kvikmyndanna til þess að
koma af stað snjókomu ...
Okkur rekur ekki minni til að hafa
áður birt brúðkaupsmynd af þeim Nínu
og Friðrik, og sé það rétt er sannarlega
tími til kominn, en sé það rangt, er góð
visa aldrei of oft kveðin. Eins og les-
endur muna, höfðu þau sungið og leikið
við hvern finguf árum saman án þess
svo mikið sem að vera trúlofuð, og eng-
inn hafði þau grunuð um að luma á
sliku i fórum sínum. En svo kom það
allt í einu á þessu ári, þau opinberuðu
trúlofun sína, og nú eru þau harðgift.
Gerið þið svo vel!
Tveir Indverjar voru á gangi á Euston braut-
arstöðinni í London nýlega, en enginn veitti
þeim athygli fyrr en þeir köstuðu sér allt í einu
niður og skelltu enni i gólf. Skýringin var sú,
að búddamunkurinn Baikknu Thiri Maha
Shwebo U Arthapha var að koma til borgar-
innar i sinni háheilögu skikkju. Það er nátt-
úrlega ekki að orðlengja það, að munkurinn
veitti þeim blessun sína á staðnum, og það
höfum vér fyrir satt, að síðan hafi syndararnir
risið á fætur aftur.
Ungfrú Yndisfríð
sendir ykkur beztu jólaóskir — en annars er
liún í hálfgerðum vandræðum — hún er búin
að týna nýju skónum sinum og segir að þeir
séu einhvers staðar i blaðinu. Hún biður ykkur
að tilgreina blaðsíðu, skrifa í reitinn að neðan,
og ein ykkar fær i verðlaun Carabellu náttföt,
sem kosta kr. 337.
Skórnir eru á blaðsiðu: ......
Nafn
Heimilisfang
MUÍAt* 23