Vikan - 15.12.1960, Side 27
Framfarir og tækni
Síðustu árin hefur orðið stórkostleg tæknibylting á öllum sviðum. Nýj-
ar uppfinningar hafa gerbreytt jafnt samgöngum á landi, í lofti og á
legi, öllum framkvæmdum og hversdagslegu lífi manna. Ævintýri tækn-
innar er það stórbrotnasta og æsilegasta, sem gerzt hefur með mann-
kyninu.
Erlendis skýrir fjöldi blaða og tímarita almenningi frá þessari merki-
legu þróun á ljósan og auðskilinn hátt, og þykir bæði ungum og göml-
um það hið fróðlegasta og skemmtilegasta lestrarefni. Hér á landi hefur
tilfinnanlega skort slíkt tímarit — þangað til „Tækni fyrir alla“ hóf
göngu sína um síðustu áramót. Þar birtast hinar merkilegustu greinar
um uppfinningar, nýjungar í verklegum framkvæmdum, samgöngutæki
og allt það, sem mesta athygli vekur á því sviði hverju sinni, — ritaðar
á þann hátt að allir mega skilja og hafa full not af. Hér má sjá nokkur
sýnishorn ...
\i ÉLFLUGA eða sviffluga — það er álita-
™ mál. Aðalatriðið er að hún geti fiogið. Og
það getur hún, meira að segja prýðilega.
Þetta kvað vera gömul uppfinning. Ekki
er hún lakari fyrir það. í þann tið fengust
ekki þessir örlitlu hreyflar til að knýja með
flugvélalíkön; það þótti gott að mönnum
skyldi hafa tekizt að smíða svo litla hreyfla,
að þeir væru nothæfir í litlar flugvélar.
QEGJA má að ekki sé ein báran stök fyrir
^ bandariskum bílaframleiðendum- Að
undanförnu hafa þeir átt í harðri baráttu
við evrópska bílaframleiðendur og oltið á
ýmsu. Og nú, um svipað leyti og nýju ár-
gerðirnar voru að koma á markaðinn, gerð-
ist fyrst Khrustjoff til að stela athyglinni
frá þeim — og síðan forsetakosningarnar.
Fingurgull —
Ljósmyndavél
Efnafræðingur 1 Ham-
borg Dietrich Cura, hefur
það fyrir tómstundaiðju að
smíða „minnstu Ijósmynda-
vél í heimi“. Ljósmynda-
vél þessa ber hann i hring
á baugfingri og myndina
tekur hann með því að
Það er næsta örðugt að sjá að
þarna sé ekki um venjulegt
fingurgull að ræða, því að
linsan líkist helzt fáguðum
steini. Sízt dettur manni i hug
að þetta sé myndavél.
lireyfa litlafingur örlitið,
Linsan er gerð úr smásjár-
linsu og tekur vélin fjór-
ar myndir á kringlóttan
Lúttofilmubút. sem er á stærð
Þetta er myndavélarsinið-
urinn, Dietrich Cura, 22
ára að aldri, og ber hann
þarna myndavélarbauginn
á fingri sér.
upjpáfinnin.
D J'krilii'-dcn.uj hcfur boríví
° ir*['UiiQdarikjt:nuniiív
ví-gur, um' Kvropu •<« 4'' > >
þir nú tim <<“ vksrfijistíi pcxl. .
BiIkrila-V.ippukstur er' orCinn
cilt hiíi sjnvd.ÍAtu tiítufyrir^
bjrri i vcvturjiýxkuip -os;"
írv»nvkum hargural l'álMaii*
cndur 'cru af hafum kýnjuxnV
'op; i filítlíij iitdri.-kqipt Vr 'ji
Mannkyninu fjölgar um því sem næst 140 þúsundir ein-
staklinga á sólarhring. Það verða því margir um mat-
inn, og í náinni framtíð hlýtur það að verða eitt af
aðalviðfangsefnum vísindanna að
finna ráð til að auka og auð-
velda sem mest fæðuöflunina.
Tilraunir f þá átt eru reyndar
þegar hafnar á vegum vísinda-
stofnana og einstakra vísinda-
manna víða um heim. Banda-
ríkjamenn gera tilraunir með
fiskirækt í „heimatjörnum" og
vötnum, og bæði þar og f Japan
er nú í athugun hvernig auka
megi botngróður hafs og vatna,
svo fiskinum verði þar lífvænlegra og búin betri skil-
yrði til fjölgunar. Rússar hafa svipaðar tilraunir í sam-
handi við ræktun botngróðurs í undirbúningi, en þýzkir
verkfræðingar hafa unnið að merkilegum tilraunum
varðandi fiskiveiðar með raflosti, þar sem fiskinum er
síðan dælt um borð í veiðiskipin. Þessar tilraunir hafa
staðið yfir samfellt frá því 1956 og nálgast nú lokastigið.
VIKANÍ 27