Vikan - 15.12.1960, Blaðsíða 28
MAGGIOG
fara í fjallgöngu í Ölpunum
IGGI
Maggi og Siggi fara í fjallgöngu i
Ölpunum. Skemmtilegt jólaspil fyrir
yngri börnin.
Ko nið þið sæl, börnin góð. Við heit-
um Maggi og Siggi, og við ætlum að
taka ykkur með í spennandi gönguferð
I Alpafjöllum, og í þeirri ferð gerist
margt æsandi. Kannski mætum við
stóra fjallabirninum, sem býr í dalnum
á milli trjánna, eða snjómanninum
sem leynist á milli bjargtoppanna. En
ef þið ætlið að koma með verðið þið að
hafa eitthvert lítið stykki, hnapp eða
eitthvað þess háttar með ykkur, sem
þið setjið á staðinn sem við byrjum
á, það er að segja númer 1. Svo verð-
ið þið einnig að hafa með ykkur ten-
ing, svo að þið vitið hvað mörg skref
þið eigið að fara í hvert skipti. Og
svo síðast rétt áður en þið leggið af
stað náið þið í svolítið nesti til að
hafa með, hnetur eða sælgæti sem
eftir hefur orð'.ð á jólaborðinu. Jæja,
þá byrjum við á því að allir henda
upp teningnum og sá sem fær hæstu
töluna, á að byrja. Svo verður sá, sem
fær næsthæstu töluna annar o. s.frv.
Þegar þið svo lendið á einhverjum
af dökku reitunum, skuluð þið líta í
leiðbeiningarnar, þvi að þá kemur
óhjákvæmilega eitthvað fyrir. Jæja,
góða ferð og gangi ykkur vel, og mun-
ið það að sá sem kemur fyrst í mark
er búinn að vinna.
4. Byrjunin gekk vel hjá þér og þú
færð að renna þér niður á númer sjö.
10. Þarna rétt hjá liggur fjalia-
björninn í leyni, svo að þú færð að
hlaupa yfir á númer nítján, svona rétt
til að bjarga lífinu.
21. Aumingja þú, nú ertu orðinn svo
þreyttur, að þú verður að hvíla
þig þrjú köst En það er allt í lagi
St. Bernharðshundurinn gætir þin á
meðan.
28. Það er ekki svo auðvelt að klífa
kletta, og nú losnarðu við það ef þú
hefur lent á númer 28, því að þá færðu
að hoppa yfir á númer fjörutiu.
33. Auminginn, þú datzt þegar þú
reyndir að hoppa og þar verðurðu að
liggja þangað til að þú færð tvo.
41. Þú veifar vingjarnlega til sam-
ferðamannannt og hleypur á undan
þeim upp á n imer fjörutiu og þrjú.
46. En skemmtileg ferð. Ilugsið ykk-
ur að fara með svifbraut á milli fjaila-
toppanna. Það færðu af Því að þú
lentir á númer fjörutíu og sex, og
þú ferð alla leið yfir á númer fimmtíu
og fjögur.
55. En dásamlegt útsýni hugsarðu
með þér og þú ert svo upptekinn af
útsýninu að þú ferð ekki fyrr en Þú ert
búinn að fá Þrjá.
60. Það er skemmtilegt að búa
til snjókarla, en viljirðu ekki tefja
20 V«KAN