Vikan - 15.12.1960, Page 31
VIKAIU
Útgefandi: VIKAN H.F.
Ritstjórí:
Gíili Slgurðsson (ábm.)
Auglýiingastjóri:
/óhannes jörundsson.
Framkvaemdaitjóri:
Hllmar A. Kristjánsson.
Ritstjórn og auglýslngar; Skipholtl 33.
Slmar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf 149.
Afgreíösla og dreiílng: BIaðadreífIng,
Miklubraut 15, slinl 15017. Verð I lausa-
sölu kr. 15 Áskríftarverð er 200 kr. irs-
þrlðjungslega, grelðist íyriríram. Prent-
un: Hllmír h.f. Myndamót: Rafgraf h.f.
Þið fáið Vikuna í hverri viku
I næsta blaði verður m. a.:
♦ Andalækningar. — Þór Baldurs, sem áður hefur
skrifað merka grein um drauma, skrifar nú anda-
lækningar, efni, sem mörgum er hugstætt.
♦ Líður að jólum. — Smellin smásaga eftir Guðnýju
Sigurðardóttur.
♦ Einbýlishús í Silfurtúni. — Myndir og frásögn.
♦ Betur að satt væri. — Lítil jólasaga.
♦ Myndafrásögn úr Reykjavík: Jólainnkaup og jóla-
veður.
♦ Hver vill ekki vaka lengur? — Síðasti þáttur Óskars
Aðalsteins, vitavarðar, um ferðalag á Norðurlöndum.
♦ Fornar dyggðir. — Eysteinn Jónsson í aldarspegli.
♦ Viðtal við Gunnfríði Jónsdóttur, myndhöggvara.
♦ Hlakkar þú til jólanna? Nokkrir menn og konur
svara þeirri spurningu.
♦ Ástargaldur, grein eftir dr. Matthías Jónasson um
kröfur sálar og líkama í ástamálum.
♦ Jólamaturinn. — Fimm blaðsíður með uppskriftum
að allskonar jólamat og góðgæti, sem raunar er í
gildi allt árið.
Nú þegar jólin nálgast vildi
mamma koma á jólastemmningu
meðal barnanna og sagði þeim einu
sinni enn söguna um Mariu og
Jesúbarnið.
Þá segir Anna Kristín, sem man
eftir að hafa heyrt hana áður: Nú,
ætlar hún að fara að eiga barn
aftur núna? } i | j
Einnig lögregluþjónar hafa hjarta.
Lögregluþjónn nokkur i París, sem
iabbaði um og gætti að því, að allt
væri í röð og reglu rakst á bíl á
götu nokkurri sem ekki mátti
stöðva biia á lengur en i þálfan
annan tima- Á spegli bílsins var
seðill með þessari áletrun: „Kæri
hcrra lögregluþjónn, ég veit vel að
ég má ekki láta bílinn standa hér,
en gefið mér undanþágu, ég er að
fara að g.iftá mig,“
„Við iokum auga laganna, til
hamingju" skrifaði lögregluþjónn-
inn á seðiiinn og fór. En þetta var
í París, þið getið rétt ímyndað ykk-
ur endalok þessa máls í Reykjavik.
Hnerrið og verðið fallegri á eftir.
Pillur, krem og fegurðarvötn af
hvaða tegund, sem er, er helber hé-
gómi segir hinn indverski fegurð-
arfræðingur G. L. Rasch, sem
nú gerir sitt bezta til að fegra
portúgalskar konur. Eina leiðin til
verða fallegur og unglegur er að
að hnerra eins oft og maður getur,
segir hann. Þess vegna selur hann
litla sílkivasaklúta með hnerra-
dufti. Nokkrir kröftugir hnett‘--
ar og snyrtingin er búin.
9
^jifcfaiuhna t
<X
.•.ViV.V.
V.VA
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Vikan virðist ætla
að verða þér heilladrjúg, einkum virðast öll ný
áform af þinni hálfu ætla að heppnast vel. Þú skalt
samt varast að leggja út í neina óvissu. þvi að fljót-
færni gæti komið þér illilega í koll. Þú skalt fyrir alla
muni ekki trúa öllu því, sem þessi nýi kunningi þinn segir þér.
Miðvikudagur verður mesti heilladagur vikunnar.
NautSmerkiS (21. apr.—21. maí>: Þú virðist um þess-
ar mundir gera allt of háar kröfur til umhverfis
ins og sjálfs þin. Þú ættir að reyna að taka öllu
smávægilegu mótlæti með jafnaðargeði, því að
þannig kemst þú mun betur áfram i lífinu. Kunningi
þinn þarfnast þess mjög, að þú sýnir honum tillitssemi, og þú
munt ekki sjá éftir þvi að verða honum að liði.
TvíburamerkiO (22 mai—21. júní): Vikan verður
næsta óvenjuleg í alla staði. Þú munt kynnast nokkr-
um persónum, sem eiga eftir að meta þig mikils
siðar meir. Reyndu að vera ekkí svona tortrygginn
i 'garð náungans, og sízt af öllu í garð sjálfs þin.
Þú hefur vanmetið einn kunningja þinn, en í vikunni muntu
kynnast nýjum eiginleika í fari hans, sem sýnir þér ljóslega, að
hann er sannarlega verður allrar vináttu þinnar.
HKrabbamerkiÖ (22 júní—23. júlí): Þú hefur verið
beittur órétti, og er ekki nema eðlilegt að þú sért
bitur. Verst er samt, að þú getur ekkert gert við
þessu, þú verður einungis að taka þessu sem hverju
öðru hundsbiti. Bftir svo sem tvær vikur muntu
samt fá uppreisn æru þinnar.
Ljónsvierkið (24. júlí—23. ág.): Hversdagsleikinn er
farinn að angra þig um of, en hætt er við að þú
gerir úlfalda úr mýflugu. Þú mátt ekki ætlast til,
að stórhátíðir og stórviðburði beri upp á hvern
einasta dag vikunnar. Reyndu að sýna meiri áhuga
við vinnu þína. 1 þessari viku eignast þú tryggan vin, sem
verður þér að miklu liði í framtíðinni, enda þótt þú kynnist
honum aldrei náið. Heillatala 6.
Meyjarmerkið (24. ág—23. sept.): Þú tekur miklum
framförum á vinnustað, en varast skaltu samt, að
velgengni þln verði ekki til þess, að þú slakir á..
Maður eða kona litur þig hýru auga þessa dagana,
og er ekki laust við, að Amor sé eitthvað við það'
mál riðinn. Þú vekur á þér athygli um helgina, en ekki er
ljóst hvort sú athygli er jákvæð eða neikvæð. Þér berst kær-
komin sending fyrir helgina. Heillalitur bleikt.
Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.): Hætt er við að'.
þú bakir þér óvináttu þess. sem þú sízt vildir særa,.
ef þú ferð ekki að öllu með gát í vikunni. Það virð-
ist þinn stóri galli um þessar mundir, að þú stefnir-
ekki að neinu marki og lætur hverjum degi nægja
sína þjáningu. Reyndu að stefna að einhverju settu marki, því
að þegar þú finnur, að þú ert að nálgast Það mark, veitir lífiO.
þér síaukna fullnægingu.
Drekamerkið (24. okt.—22 nóv ): Þetta verður vika
mikilla freistinga, og ef Þú sigrast á öllum þessum
freistingum, munu næstu vikur verða þér einkar-
ánægjuríkar. Þú munt þurfa að velja á milli ein-
hvers tvenns í vikunni, og nú ríður á að Þú sért
glöggskyggn. Fyrir alla muni skaltu ekki vera fljótfær í þessu
máli, því að ekki liggur svo á. Þú virðist heldur þrár á að við-
urkenna, að Það er líka hægt að skemmta sér heima við.
Bogmaðurinn (23. nóv.—21. des.): Miklar breyting-
ar geta orðið á högum þínum, og þær til batnaðar,.
ef þú hagar Þér skynsamlega í þessari viku. Láttu
ekki næstum ókunna menn eða konur telja úr þér
kjarkinn, ef þú þarft að taka veigamikla ákvörðun.
Tækifærið, sem Þér býðst, er ómetanlegt, en varast skaltu samt
að fara ekki of geyst af stað.
Geitarmerkið (22. des.—20. jan.): Hætt er við, að
það verði gert mun meira veður út af einhverjum
ummælum þínum en efni standa til og flest lagt
þér á verri veg. Láttu þetta samt ekki á þig fá, þvi
að bráðlega gefst þér tækifæri til þess að sýna, að
þú varst beittur hróplegu ranglæti. Kvöldin verða óvenju-
skemmtileg, ekki sizt helgin. Þú kynnist óvenjulegri stúlku.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. feb ): Þú skalt fyrir
alla muni varast að skipta þér að deilum kunningja
þlnna, því að þér kemur þetta mál hreint ekkert
við. Þér græðist fé óvænt í vikunni. Atburður, sem
i fyrstu virðist smávægilegur og engu máli skipta
mun reynast þér örlagaríkur í næstu viku. Hætt er við að ó-
framfærni Þín verði til þess að þú nærð ekki því takmarki,
sem þú settir þér — þ.e.a.s. fyrst um sinn.
Fiskamerkið (20. feb.—20. marz): Þú skalt varast að
láta smávægilegt mótlæti angra þig um of, þvi að
ef svo fer, getur það orðið til Þess að þú nýtur engan
veginn þess sem þú værir ellegar fær um að njóta.
Á þriðjudag mun kunningi þinn stinga upp á ein-
hverju í gamni, en sannleikurinn er sá, að þetta er ekki eins
hlægjjegt og virðist í fyrstu og vel Þess virði að hugsa um það.