Fréttablaðið - 19.12.2009, Side 94

Fréttablaðið - 19.12.2009, Side 94
16 matur „Ætli ég verði bara ekki að segja Saladmaster-pottasettið mitt, pottar og pönnur sem fást aðeins keypt á heimakynningum,“ segir Hjördís Andrésdóttir, verslunar- stjóri Aktu taktu við Skúlagötu, beðin um að ljóstra upp hvaða leynivopnum hún lumi á í eldhús- inu. Settið er gert úr tannlækna- stáli og eru allir pottar og pönnur tvöfaldir sem gerir það að verk- um að áhöldin hitna jafn mikið á hliðum og í botninum, sem trygg- ir góða eldun. „Þetta er önnur af tveimur bestu fjárfestingum sem ég gert um ævina, en hin er hlaupabrettið mitt,“ segir hún og hlær. En hvað á að hafa í matinn um jólin? „Við verðum með hamborg- arhrygg og lambahrygg á aðfanga- dagskvöld, hangikjöt á jóladag, líklega afganga á öðrum í jólum og svo nautakjöt á gamlársdag,“ svar- ar Hjördís og segir að þar komi að góðu gagni kryddblöndur sem hún og sambýlismaður hennar Stefán Halldórsson hafa framleitt um nokkurra ára skeið. „Bezt á kalk- únninn gerir til dæmis allar brún- ar sósur betri, og er ekki endilega bundinn við þá tilteknu kjöttegund sem nafnið gefur til kynna – frek- ar en hin kryddin okkar. Tilvalið er að leika sér með tegundirnar og bara prófa sig áfram.“ - rve POTTASETT ÚR TANNLÆKNASTÁLI Hjónin Stefán Halldórsson og Hjördís Andrésdóttir með syni sínum, Davíð Funa, fjögurra ára, og pottasettið og kryddin góðu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Um aldamótin ákvað ég að hætta að borða kjöt og varð því aðeins að endurhugsa aðfangadag. Ég held jólin með foreldrum mínum og bróður og var fjölskyldan alveg tilbúin til að breyta til. Þegar ég var barn höfðum við yfirleitt sveppa- eða aspassúpu í forrétt en gulrótarsúpan hefur verið á borðum síðan 1999,“ segir enskukennarinn og blaðamaður- inn Vala Ósk Bergsveinsdóttir. Vala borðar hnetusteik með tómatchilli-sósu í aðalrétt og hefur hún alltaf tekist vel. „Með henni höfum við svo alltaf hefðbundið meðlæti.“ Síðustu tvö ár hafa for- eldrar Völu og bróðir hins vegar líka viljað borða bayonneskinku og jafnvel hangikjöt. „Því má segja að það sé nokkuð marg- réttað hjá okkur.“ Súpuuppskriftina fékk Vala hjá svissneskum sælkera en hefur betrumbætt hana með engifer. „Ég ber súpuna helst fram spari en viðurkenni að ég stelst stund- um til að gera hana hversdags.“ Í dag borðar Vala fisk og kjúkling en sniðgengur enn rautt kjöt. Hún hefur gaman af því að elda en er þó misdugleg við það. „Ég tek mínar syrpur í hinu og þessu.“ - ve Frískandi forréttur Vala ber súpuna aðallega fram spari en stelst þó stundum til að gera hana hversdags. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LEYNIVOPNIÐ Hjá Völu Ósk Bergsveinsdóttur hefur meinholl og frískandi gulrótarsúpa verið í forrétt á aðfangadag undanfarin ár. Hnetusteik fylgir svo á eftir. 1 blaðlaukur 350 g gulrætur 750 ml af soðnu vatni með grænmetiskrafti 1 lime rifið engifer eftir smekk salt og pipar Gulrætur skornar smátt og blað- laukurinn líka. Smjörsteikið á pönnu í um tíu mínútur. Færið yfir í pott og blandið grænmet- iskraftsblöndu við. Sjóðið þar til grænmetið er orðið meyrt. Kryddið eftir smekk og bætið engifer út í. Leyfið súpu að kólna í um tuttugu mínútur og færið hana svo yfir í matvinnslu- vél. Maukið súpuna og færið hana svo aftur í pott og hitið upp við lágan hita. Bætið lime út í, smakkið til og berið á borð. LIME OG ENGIFERGULRÓTARSÚPA Fyrir 4 Súpan hefur reynst vel og verið í forrétt hjá Völu frá því um aldamótin. F Borgartún 24, sími 585 8700 • Hæðasmári 6, sími 585 8710 • Hafnarborg, sími 585 8720 www.madurlifandi.is Hnetusteik úr hágæðahráefni fyrir grænmetisæturnar í jólaboðinu í jólaboðið Hnetusteik Hnetusteikin er til sölu í Borgartúni, Hæðarsmára og Hafnarborg Hafnarfi rði. Munið að panta tímanlega.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.