Vikan


Vikan - 13.12.1962, Blaðsíða 10

Vikan - 13.12.1962, Blaðsíða 10
SAUMAVEL ER LEG JÖLAGJÖF HÉR ERU TÍU NÝTÍZKU GLÆSI- SAUMAVÉLAR Vikan hefur aflað sér upplýsinga um þær helztu saumavélar, sem hér eru á markaðn- um í dag, og hefur tekiö þær saman til þæginda fyrir þá sem hafa slík kaup í huga Undanfarin 5—10 ár má scgja að gerbylting liafi átt sér stað í framleiðslu saumavéla. Þær vélar, sem nú eru á markaðnum eru svo ótrú- lega mikið fullkomnari en þær vélar, sem bezt- ar þóttu fyrir 10 árum síðan. Nýtizku vé'ar geta gert furðulegustu hluti algeriega sjálfvirkt, saumað allskonar mynztur bæði afturábak og áfram, stoppað í sokka og allt hvað eina. Gömlu vélarnar, sem aðeins sauma beinan saum áfram, eru nú úreltar orðn- ar, enda alls ekki sambærileg verkfæri við þær nýju. Hér á landi eru margar gerðir sjálfvirkra saumavéla á markaðnum, að sjálfsögðu misgóð- ar og misdýrar. Til þess að auðvelda tilvonandi kaupendum nokkuð val á nýrri saumavél, hefur Vikan tekið saman það helzta um þessar vélar, og lýsir þeim nokkuð hér á eftir og birtir mynd- ir af Jæim. Allar þessar vélar eru nefndar sjálfvirkar og hafa marga hluti sameiginlega, og verður þeiin lýst í heild. Tvær þeirra eru „super- automatic", en þær liafa jiað fram yfir liinar að ]iær geta saumað sjálfvirkt mynztur, sem eru þannig í laginu að vélin flytur efnið bæði áfram og afturábak, a'gjörlega sjálfvirkt. Hinar vélarnar geta einnig flutt efnið bæði afturábak og áfram, en til þess þarf stjórnandinn að hreyfa takka á vélinni í hvert sinn og skipt er um saumaátt. Allar hafa þær það semsagt sameiginlegt að tennurnar, sem færa til efnið, geta gengið bæði afturábak og áfram og að hægt er að breyta saumaáttinni með einu handtaki, jafnvel þótt vélin sé að sauma á fullum hraða. Sömuleiðis er hægt að lækka þessar færitennur þannig, að þær færi alls ekki efnið. Það gerir saumakon- an þá sjálf, en slíkt er einkum notað við að stoppa í göt. Allar hafa þær sporlcngdarstilli, sein breytir sporlengdinni mjög nákvæmlega, og ein þeirra, a. m. k., PFAFF, hefur svokallaðan „mikro“- stilli, sem er nákvæmari sporlengdarstilling. Sporbreiddarstillir er einnig á þeim öllum. Stjórnar hann breidd sporsins, en nálin gengur þá til skiptis til hægri og vinstri. Slík jiver- spor eru mikið notuð í alls konar mynztrum, zig-zag, hnappagatasaum o. fl. Allar hafa þær einnig alls konar mynztur, sem vélarnar sauma sjálfkrafa. Það er nokkuð misjafnt hvernig þessum mynzturstjórntækjum cr komið fyrir. í sumum vélunum eru þessi tæki algerlega innbyggð og óbreytanleg, en aðrar hafa sérstakar mynzturskífur, sem tekur að- eins augnablik að skipta um. Hver mynztur- skífa hefur síðan nokkurt úrval mynztra, og stjórnar því takki á vélinni, hvaða mynztur er valið hverju sinni. Allar geta vélarnar að sjálfsögðu saumað zig- zag saum, sem álitinn er mjög nauðsynlegur. Sumar hafa sérstaka hraðaskiptingu, eða nokk- urs konar lágdrif. Er það einkum notað við sauma, sem krefjast sérstakrar nákvæmni og við skrautsaum. Margar hafa þann kost að hafa svokallaðan „frían arm“, Þá er borð vélarinnar þannig að Framhald á bls.. 48. BERNINA (Record 530 — 2) Umb.maður: Ásbjörn Ólafsson h.f. Verð: kr. 9.97Ö. Greiðsluskilmálar: 5000 útb., afg. á 4 mánuðum. Innif. kennsla í 3 klst. Leiðarvísir ekki á íslenzku. Framleidd I Sviss. Frír armur — laust borð. Stjórnað með fæti eða hné. Innbyggðar 13 mynzturgerðir. Smelli- fesling á fæti. BORLETTI. (Super-Automatic). Umb.m.: Marco h.f., Aðalstræti 6. Upprunaland: íta'ia. Verð: kr. 9.543. Skilmálar: Helmingur út, kr. 1000 pr. mán. Kennsla innifalin (námskeið öðru hvoru). Leiðarvísir á dönsku og ensku. Ekki frír armur. Super-sjálfvirk (saumar mynzt-. ur sjálfvirkt fram og til baka). Lausar mynzturskífur. ELNA. (Supermatic). Umb.m.: Heildv. Árna Jónssonar, Aðalstræti 7. Upprunaland: Sviss. Verð: kr. 9.500. Skilmálar: Útb. eftir samkomulagi, kr. 1000 pr. mán. Kennsla: Kr. 200 aukalega. Leiðarvísir: Góður á ís'enzku. Frír armur — laust borð. Super-sjálfvirk. (Saumar mynztur sjálfvirkt fram og til baka). Lausar mynzturskífur. Saumar húllsaum. (Elna Automatic: Kr. 8.420). PF AFF. (Automatic 360). Umb.m: Pfaff (Magnús Þorgeirsson), Skóla- vörðustig 1. Upprunaland: V.-Þýzkaland. Verð: Kr. 10.500. Skilmálar: Heliningur út, eftirst. eftir samkomu- lagi. Kennsla: Innifalin, 5 klt. Leiðarvisir: Á Islenzku. Frír arinur — laust borð. Mynztur innbyggð. Saumar mynztur einnig i spegilmynd. Hægt að lengja mynztur án þess að sporið gisni. „Mikro“-stilling á sporlengd. Innbyggður þræðari. JANOME. (JZ(A)—-534). Umb.m.: Heildv. Hekla. Upprunaland: Japan. Verð: Kr. 5.985. Skilmálar: Helmingur út, eftirstöðvar á 4 mán.. Kennsla: Aukalega kr. 200. Leiðarvísir: Á ensku. Ekki frír arnnir. Lausar mynzturskifur (1.5 mis- munandi mynztur). NECCHI. (Lycia 524, automatic). Umb.m.: Fálkinn li.f., Laugav. 24. Upprunaland: ítalía. Verð. Kr. 10.860. Skilmálar: Helmingur út, eftirst. á 5—6 mán. Kennsla: 10 klt. innifalin. Leiðarvísir: Á íslenzku. Frír armur — laust borð. Innbyggður þræðari. Hraðaskipting. „Mikro“-sporIengdarstilling. Ótakmarkað mynzturval. Lausar mynztur- skifur. Hægt að lengja mynztur án þess að sporið gisni. Supersjálfvirk (saumar mynztur sjálfvirkt fram og til baka). (Necchi supernova Julia: Kr. 9.945. Sams kon- ar vél, en elcki frír armur). HUSQVARNA. (Automatic). Umb.m.: Gunnar Ásgeirsson h.f., Suðurl.br. 16. Upprunaland: Svíþjóð. Verð: kr 9.630. Skilmálar: Kr. 5.000 út, afg. á 4 mán. Kennsla: Innifalin 6 klst. Leiðarvísir: Góður á íslenzku. Frír armur — laust borð. Lausar mynztur- skífur. Hraðaskipting (lágdrif). SINGER. (Slant-o-matic). Umb.m.: Samb. ísl. samvinnufélaga. Upprunaland: England. Verð: Kr. 11.381. Skilmálar: Helmingur út, eftirst, á 4 mán. Kennsla: Innifalin. Leiðarvisir: Góður, með skýringarmyndum einungis. Enginn texti. Ekki frír armur. Hallandi fótur. (Gefur betri yfirsýn). Safngler i ljósi, — geisli fellur beint á nálina. Mynztur innbyggð. Framhald á bls. 48. 10 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.